Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÖÁGUR 7. MARS 2000 B 13 KNATTSPYRNA La Coruna að missa flugið DEPORTIVO La Coruna, efsta lið spænsku knattspyrnunnar, tap- aði öðrum leik sínum í röð á nokkrum dögum og nú fyrir Malaga 1:0 á útivelli í spænsku deildakeppninni um helgina. í síðustu viku tapaði liðið 5:1 fyrir Arsenal í UEFA-keppninni. Sigurmark Malaga gerði Argentínumaðurinn Dario Silva strax á þriðju mín- útu leiksins. Deportivo hefur fjögurra stiga forskot á Alaves, sem vann Rao Vallecano um helgina, 1:0. Barcelona vann stórsigur á Num- amcia 4:0 á sunnudag á meðan Real Madrid gerði jafntefli, 1:1, við Real Oviedo á útivelli. Börsungar og Madridingar eru í þriðja og fjórða sæti með 44 stig, fimm stigum á eftir Deportivo. Éani Garcia, fyrrum leikmaður Real Mallorca, var í byrjunarliði Barcelona fyrir Hollendinginn Patr- ick Kluivert, sem tók út leikbann. Hann þakkaði fyrir sig með því að skora tvö mörk í síðari hálfleik, en FOLK ■ JOHAN Neeskens, aðstoðar- þjálfari hollenska landsliðsins, ætl- ar að hætta eftir úrslitakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu í sumar. Hann ætlar að taka við 1. deildarliðinu NEC Nijmegen næsta tímabil. Hann tekur við hollenska félagsliðinu af Ron de Groot, sem hefur aðeins verið í starfi þjálfara síðan í nóvember. Neeskens lék á sínum tíma 49 landsleiki fyrir Hol- land. ■ GERRARD Gili, landsliðsþjálfari Egypta í knattspsymu, hefur verið sagt upp störfum. ■ ADOLFO Valencia, landsliðs- framherji Colombíu og leikmaður spænska liðsins Valencia, hefur ákveðið að leika með bandaríska liðinu New York-New Jersey MetroStars. Hann er orðinn 32 ára og hefur leikið 60 landsleiki. ■ INTER hefur í hyggju að fá ann- aðhvort Frakkann Patrick Vieira frá Arsenal eða Josep Guardiola frá Barcleona til að styrkja miðj- una hjá sér fyrir næsta vetur. Talið er líklegra að Guardiola verði fyrir valinu því Arsene Wenger sé ekki tilbúinn að láta Vieira fara frá Ars- enal. ■ INTER hefur augastað á Argen- tínumanninum Mattias Almeyda, miðvallarleikmanni Lazio, en Serg- io Cragnotti, forseti Lazio, sagði að hann færi hvergi og yrði áfram í Róm næsta tímabil. ■ JUVENTUS hefur sýnt áhuga á að kaupa Alan Smith, leikmanninn unga frá Leeds. Utsendari ítalska liðsins hefur fylgst með knatt- spyrnumanninum að undanfömu, en Smith gerði fimm ára samning við Leeds síðasta suma r og hefur skoraði sex mörk á tímabilinu. Tal- ið að Juventus sé tilbúið að greiða 10 milljónir punda fyrir piltinn. ■ SKOTINN Ian Porterfield hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Trini- dad og Tobago í knattspyrnu. Hann tekur við liðinu af Bertille St. Clair, sem var rekinn í síðustu viku. Porterfieid, sem er 54 ára, hefur áður þjálfað Sambiu, Simbabwe og Oman. ■ AJAX hefur gert rúmlega sex ára samning við rúmenska mark- vörðinn, Bogdan Lobont, sem kom frá Rapid Búdapest. Hann er 22 ára og er varamarkvörður rúm- enska landsliðsins. hann hefur aðeins 12 sinnum verið í byrjunarliðinu frá því hann kom á Camp Nou-leikvanginn sl. sumar. Annar varamaður, Gabri Garcia, nýtti einnig tækifærið með því að skora fyrsta mark leiksins. Portú- galinn Luis Figo innsiglaði síðan stórsigur liðsins með fjórða markinu fimm mínútum fyrir leikslok. Barcel- ona hafði mikla yfirburði þrátt fyrir að stór nöfn hafi vantað í liðið eins og Rivaldo, Luis Enrique Martinez og Patrick Kluivert. Miðvallarleikmaðurinn hollenski, Ronald de Boer, lagði upp íyrstu tvö mörk Barcelona. Real Madrid komst yfir gegn Real Oviedo með marki Raul Gonzalez á 75. mínútu eftir íyrirgjöf frá Steve McManaman. Juan Sanchez jafnaði síðan fyrir Oviedo, sem er í mikilli botnbaráttu, þegar sjö mínútur lifðu afleik. Nýráðinn þjálfari Radomir Antic náði ekki að töfra fram neinn stórleik hjá Atletico Madrid sem gerði markalaust jafntefli við Real Betis á heimavelli sínum og er því enn í fallbaráttu. Real Zaragoza átti möguleika á að sigra Real Mallorca þrátt fyrir að vera aðeins níu inni á vellinum. And- er Garitano, sem jafnaði fyrir Zara- goza úr víti á lokamínútu fyrri hálf- leiks, átti skot í slá á lokamínútu leiksins úr vítaspymu. Juanmi Garcia, markvörður Zaragoza, var rekinn út af strax á fjórðu mínútu Reuters Jose Guardioia, fyririiði Barcelona, faðmar Gabriel Garcia að sér, eftir að hann hafði skorað gegn Numancia um helgina. Hollendingurinn Philippe Cocu er á hlaupum til þeirra. leiksins fyrir að brjóta af sér utan vítateigs. Þá fékk félagi hans, Xavier Aguardo, rauða spjaldið fyrir aðra áminningu sína í leiknum í upphafi síðari hálfleiks. Miðvallarleikmaður Mallorca, Vicente Engonga, fékk síðan þriðju brottvísunina í leiknum fyrir gróft brot sem færði Zaragoza síðara vítið mínútu fyrir leikslok. Þrír fengu að líta rauða spjaldið hjá Athletic Bilbao sem tapaði fyrir Valencia á útivelli, 2:0. Leilanennim- ir Tiko Martinez og Carlos Garica sáu rautt hjá dómaranum og þjálfari þeirra, Frakkinn Luis Femandez, fékk sömu meðferð. Juventus tryggir enn stöðu sína JUVENTUS hefur fjögurra stiga forskot á Lazio í ítölsku deild- inni eftir leiki helgarinnar. Juve vann Bari 2:0 og tryggði stöðu sína enn frekar, Lazio lagði Lecce á útivelli 1:0 og Inter fór upp í þriðja sætið eftir 2:1 sigur í nágrannslagnum við AC Milan. Antonio Conte og Alessandro Del Piero skoruðu íyrir Juventus gegn Bari. Conte gerði fyrra markið undir lok fyrri hálfleiks eftir undir- búning Del Pieros, sem gerði það síð- ara úr vítaspymu eftir að brotið hafði verið á Filippo Inzagi. Þetta var sjötta mark hans í vetur og öll hafa þau komið eftir vítaspyrnur. Sigur Inter á AC Milan var sann- gjam. Chilemaðurinn Ivan Zamor- ano kom Inter yfir tveimur mínútum fyrir leikhlé eftir fyrirgjöf frá Alvaro Recoba, sem var í byrjunarliðinu í stað Christians Vieri. Recoba átti mjög góðan leik og m.a. skot í stöng í upphafi síðari hálfleiks eftir skemmtileg tilþrif. Annað markið kom síðan á 63. mínútu eftir skemmtilegan samleik Clarence Seedorf og Zamorano, sem Luigi Di Biagio batt endahnútinn á með því að skora með góðu skoti. Inter átti að bæta þriðja markinu við skömmu síð- ar, en Roberto Baggio misnotaði þá dauðafæri eftir góðan undirbúning Adrian Mutu. Andriy Shevchenko minnkaði síðan muninn fyrir AC Mil- an á lokamínútu leiksins úr víta- spymu. Marco Delvecchio gerði sigurmark Roma í 1:0 sigri á Tórínó. Roma hafði mikla yfirburði á vellinum og fékk fjölda marktækifæra sem ekki tókst að nýta fyrr en Delvecchio gerði það á 63. mínútu. Tékkinn Pavel Nedved gerði eina mark leiksins í fyrri hálfleik er Lazio vann Lecce á útivelli. Juan Veron, leikmaður Lazio, átti þrumuskot í stöng beint úr aukaspymu af 30 metra færi á sjöttu mínútu leiksins og aftur skot í tréverkið í síðari hálfleik. Parma náði loks að sigra eftir átta leiki í röð án sigurs. Liðið vann Regg- ina örugglega 3:0 á heimavelli. Arg- entínumaðurinn Heman Crespo gerði tvö mörk eftir að Digeo Fuser hafði komið liðinu á bragðið á þriðju mínútu leiksins. Crespo er nú marka- hæstur í deildinni með 16 mörk ásamt Andriy Shevchenko hjá AC Milan. Lizarazu til Liverpool? ENSKIR fjölmiölar sögöu frá því um helgina að Frakkinn Bix- ente Lizarazu, sem leikur með Bayem Munchen og franska landsliðinu, muni ganga til liðs við Liverpool í sumar. Enska lið- ið mun væntanlega greiða um 3 milljónir punda fyrir ieikmann- inn sem er þrftugur. Lizarazu er að margra mati einn besti vinstri bakvörður í heimi og kemur til með styrkja lið Liverpool mikið. Hann til- kynnti félögum sínum í Bayem í vikunni að hann myndi ekki tala annað tungumál við þá en ensku og þótti það gefa ákveðna vísbendingu um að hann væri á fömm frá liðinu til Englands. JÓKER Jókertölur vikunnar 3 7 4 4 6 Vinnlngar Fjöldi vinninga Upphœð á mann 5 tölur 0 1.000.000 4 síðustu 1 100.000 3 sfðustu 10 10.000 2 sfðustu 139 1.000 ■w ■ ■ VINNINGSTÖLUR MIÐVIKUDAGINN | 01.03.2000 |! AÐAL1 (2(7 (24 (34 MM I Lottó 5/38 Bðnuninniagurkom á miía sem seldur var í SSIutuminum Pðlls, Skipholti, Reyklavlk. Þrefaidur 1. vinningur nk. laugardag! Jóker 2. vlnningur kom á miða sem seldur var f Bónusvideó, Mávahlíð, Reykjavík. Víkingalottó 1. vlnnlngur fór úskiptur til Danmerkur. Upplýsingar f sfma 580 2525 Taxtavarp ÍÚ110-113 RÚV 281, 283 og 284 í þigu öryrkja, ungmenna og íþrótta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.