Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR tefam FOLK ■ ÓSKAR Már Alfreðsson, helsti markaskorari Leiknis úr Reykja- vík í knattspymunni undanfarin ár, er genginn til liðs við úrvalsdeildar- lið Leifturs á Ólafsfirði. ■ DANÍEL Borgþórsson, einn lyk- ilmanna Austfjarðaliðsins KVA í 1. deildinni á síðasta tímabili, er kom- inn í raðir ÍR-inga. Félagi hans, Veigur Sveinsson, hafði áður geng- ið til liðs við ÍR og þangað er einnig kominn Steindór Birgisson úr KS á Siglufirði. ■ VILBERG Ingi Kristjánsson, sem varði mark Skallagríms í 1. deildinni í fyrra, er genginn til liðs við úrvalsdeildarlið Fylkis. I stað- inn hefur Skallagrímur .fengið Pavle Pavlovic, júgóslavneskan markvörð sem hefur leikið með Bolvíkingum og Isfirðingum und- anfarin ár. ■ HELGI Jónas Guðfinnsson lék í 25 mínútur með RB Antwerpen og skoraði 5 stig þegar liðið tapaði, 72:77, fyrir Pepinster í belgísku úr- valsdeildinni í körfuknattleik á laugardaginn. Þetta var fyrsta tap RB Antwerpen á heimavelli í vetur og liðið tapaði dýrmætum stigum í baráttunni við Oostende, sem jók forskot sitt í deildinni með sigri. ■ FALUR Harðarson lék í 29 mín- útur og skoraði 9 stig þegar lið hans, Honka frá Finnlandi, sigraði Broceni frá Lettlandi, 92:81, í Norður-Evrópudeildinni í körfu- knattleik á laugardaginn. Leikið var í Moskvu og á sama stað tapaði Honka fyrir Lietuvos Rytas frá Lit- háen á föstudagskvöldið, 77:89. Falur lék þá í 16 mínútur en náði ekki að skora. ■ HONKA er í níunda sæti af 14 lið- um í deildinni, hefur unnið þrjá leiki af átta. Á toppnum eru CSKA Moskva og Zalgiris frá Litháen sem hafa bæði unnið alla níu leiki sína. ■ GLEN Rice skoraði 23 stig fyrir LA Lakers þegar liðið vann sinn 15. sigur í röð í NBA-deildinni í körfu- knattleik í fyrrinótt - 93:80 gegn Miami. Lakers er aðeins þriðja liðið í sögu NBA sem vinnur 14 leiki eða fleiri leiki í röð tvívegis á sama tímabilinu ■ ÁSMUNDUR Friðriksson hefur tekið við formennsku í knatt- spyrnudeild ÍBV af Jóhannesi Ól- afssyni, sem hætti í lok síðasta árs eftir að hafa gegnt embættinu í tíu ár. Eggert Garðarsson, sem hefur stýrt deildinni síðan Jóhannes hætti, verður áfram varaformaður. ■ JÓHANN Haukur Hafstein úr Ármanni keppti í risasvigi heims- bikarsins sem fram fór í Kvitfjell í Noregi um helgina. Hann var ræst- ur síðastur af stað, númer 61. Hann komst rétt niður íyrir miðja braut og keyrði þar út úr og hætti keppni. Þetta var frumraun hans í heims- bikarkeppninni. ■ NÆSTA heimsbikarmót verður í Schladming í Austurríki á fímmtu- dagskvöld. Þá verður keppt í svigi karla í flóðljósum og þar er Krist- inn Björnsson meðal keppenda. Þetta er næstsíðasta svigmót vetr- arins, en lokamót heimsbikarsins fer fram í Bormio á Italíu 19. mars. Þangað komast aðeins þeir 25 efstu á stigalistanum í svigi. ■ HERMANN Maier frá Austur- ríki setti stigamet í heimsbikarnum á sunnudaginn er hann varð annar í risasvigi sem fram fór í Kvitfjell í Noregi. Hann hefur nú hlotið 1.760 stig og sló þar með stigamet Paul' Accola frá Sviss, sem var 1.699 stig og sett 1991. Hann vann jafnframt risasvigsbikarinn. ■ SKOSKA liðið Celtic hefur lýst yfir miklum áhuga að fá til sín Þjóð- verjann Berti Vogts sem þjálfara. Vogts, sem er 53 ára, er fyrrver- andi landsliðsþjálfari Þýskalands. Ef hann tæki við Celtic væri hann fyrsti Þjóðverjinn til að stýra einu af stóru liðinum á Bretlandseyjum. Guðjón afskríf Bjarka Það hefur hvorki verið rætt við Preston né Bjarka um að hann komi til okkar. En ég er opinn fyrir öllu, Bjarki er hugsanlega á lausu og það kæmi alveg til greina að fá hann hingað," sagði Guðjón við Morgun- blaðið í gær. Bjarki lýsti því yfír fyrir tveimur árum að hann myndi ekki leika fram- ar undir stjóm Guðjóns, eftir árekst- ur þeirra á milli þegar íslenska landsliðið var á alþjóðlegu móti á Kýpur. Guðjón segir að það sé allt að baki. „Við Bjarki kláruðum það mál á sínum tíma og það myndi ekki standa í veginum, ef sú staða kæmi upp að hann væri á leið til Stoke. Bjarki sagði sjálfur í fyrrasumar, þegar hann var með KR, að hann væri til- búinn til að leika með landsliðinu und- ir minni stjóm en þá taldi hann sig ekki í formi til þess,“ sagði Guðjón. Hann var ánægður með frammi- stöðu Arnars Gunnlaugssonar, sem lék sinn fyrsta leik með Stoke á laug- ardaginn, en liðið vann þá Chester- field, 5:1. „Arnar dró að sér mikla athygli og Peter Thorne nýtti sér það vel, skor- aði fjögur mörk og hefði getað gert sex. Arnar átti ágætan fyrri hálfleik, það dró af honum í seinni hálfleiknum þegar hann fékk högg á lærið en hann vildi klára leikinn og ég leyfði honum það,“ sagði Guðjón Þórðarson. ar ekki GUÐJÓN Þórðarson, knatt- spyrnustjóri Stoke, segist alls ekki afskrifa þann möguleika að Bjarki Gunnlaugsson gangi til liðs við félagið frá Preston. Viðræður um það hafi þó ekki farið fram, eins og haldið var fram í enskum fjölmiðlum um helgina. Amór skoraði 5 mörk Arnór Guðjohnsen er ekki hættur að hrella niark- verðina þó á 39. aldursári sé því hann skoraði 5 mörk í stórsigri 1. dcildarliðs Vals, 6:2, á úrvalsdeildar- liði Breiðabliks í deildabik- arnum í Reykjaneshöllinni á sunnudaginn. Arnór gerði ljögur markanna úr vítaspyrnum sem er einsdæmi í móts- Ieik í meistaraflokki hér á landi, og þó víðar væri leitað. Atli Knútsson, markvörður Breiðabliks, var rekinn af velli fyrir að mótmæla þriðju vítaspyrn- unni en hann hafði áður fengið gula spjaldið fyrir brot. Gjörbreytt lið Valsmanna Valsmenn tefldu fram gjörbreyttu liði frá síðasta tímabili, þar á meðal þremur útlendingum sem eru til reynslu hjá þeim. Það voru Færeyingarnir Henning Jarnskor og Pól Thorsteinsson og banda- ríski markvörðurinn John MiIIs. Einnig voru í liðinu Besim Haxhijadini, fyrr- verandi leikmaður KR, og tveir nýir Austfirðingar, Hjalti Vignisson frá Sindra og Hallur Ásgeirsson sem kemur frá Hugin/Hetti. Veigar Páll Gunnarsson skoraði öll 4 mörk Stjörn- unnar sein vann Fjölni, 4:1. Hálfdán Gíslason skor- aði þrennu fyrir Skaga- menn sem gjörsigruðu Sel- fyssinga, 9:1, og voru komnir í 7:0 eftir hálftíma leik. KNATTSPYRNA Bjarki Gunnlaugsson í leik með Preston gegn Stoke. Hér hefur Brynjar Bjöm Gunnarsson, leikmaður Stoke, gætur á Bjarka. KR í viðræðum við Guðmund GUÐMUNDUR Benediktsson, leikmaður KR, sem hefur verið leigður til belgíska félagsins KFC Verbroedering Geel, hefur átt í viðræðum við KR um nýjan samning en núgildandi samning- ur hans rennur út að loknu tímabilinu í sumar. Guðmundur hefur leikið með KR frá 1995 og var meðal annars valinn leik- maður íslandsmótsins á siðasta ári. Hann var í haust leigður til belgíska liðsins fram til næsta vors. KÖRFUKNATTLEIKUR/ÚRVALSDEILD KARLA Skellur í kveðjuleikjum SNÆFELL úr Stykkishólmi lék sinn síðasta úrvalsdeildarleik á heimavelli um sinn þegar liðið beið lægri hlut fyrir Haukum, 82:118, á sunnudagskvöldið. Hólmarar voru fallnir fyrir leikinn því eftir ósigur í Grindavík á föstudagskvöldið var von þeirra um að komast úr næstneðsta sætinu úr sögunni. Þá má geta þess að ÍA tapaði einnig stórt í kveðjuleik sínum - með 77 stiga mun, er Keflvíkingar komu í heimsókn á Akranes, 140:63. Davlð Sveinsson skrifar Leikurinn var jafn í stöðunni 6:6, en þá hófst mikil 3ja stiga veisla hjá Haukum og skoruðu þeir tólf slíkar körfur í íyrri hálfleik. Skotnýting þeirra var mjög góð í hálf- leiknum og virtust allir geta skorað þeg- ar þeir vildu, allt fór ofaní. Vöm Snæfells var frekar slök enda barátt- an í deildinni búin hvað þá varðar. Seinni hálfleikurinn var líkur þeim fyrri, hittni Haukana mun betri og vöm heimamanna götótt. Allir leik- menn Hauka skoruðu og fengu allir leikmenn að spreyta sig álíka mikið í leiknum. Besti maður Hauka var Ingvar Guðjónsson, mjög leikinn og dugleg- ur leikmaður. Aðrir í liðinu spiluðu einnigvel. Hjá Snæfelli var Kim Lewis bestur að vanda, en einnig átti Baldur Þor- leifsson mjög góðan leik, sérstaklega í vöm, en hann var kjörinn íþróttamað- ur Snæfells fyrir árið 1999 í hálfleik og Hrefna Dögg Gunnarsdóttir íþróttakona ársins. Þrátt fyrir mikinn mun var allan tímann mikil keyrsla í sókninni, en að sama skapi ekki eins góðar varnir beggja liða þegar líða tók á leikinn. Bjöm Blöndal skrifar „Menn voru ekki tilbúnir" Allt sem við höfnm verið að gera gott í síðustu leikjum gleymdist og menn voru ekki tilbúnir í þennan leik og slikt gengur ekki á útivelli gegn besta liðið landsins í dag,“ sagði Tómas Holton, þjálfari og leikmaður Skallagríms frá Borgar- nesi, eftir að lið hans hafði tapað með 19 stiga mun, 86:67, í Ljónagiyfjunni í Njarðvík á sunnudagskvöldið. I hálf- leik var staðan 45:28. Þar með halda Njarðvíkingar enn efsta sætinu í deildinni þegar ein um- ferð er eftir, en þeir leika gegn Kefla- vík í síðustu umferðinni í Keflavík á fimmtudaginn Urslitin ráðast í síðustu umferðinni og þar sem Haukar hafa betur í inn- byrðis viðureign liðanna verðum við að sigra í Keflavík til að vera öruggir með fyrsta sætið og deildarmeistara- titilinn," sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga. Borgnesingar mæta Hamri á heimavelli í lokaum- ferðinni og með sigri í þeim leik geta þeir tryggt sér sæti í úrslitakeppn- inni. Leikurinn í Njarðvík var slakur og þá sérstaklega af hálfu Borgnesinga sem veittu lítíð viðnám. Þeir settu að vísu fyrstu stigin í leiknum en fljót- lega mátti sjá stöðuna 20:7 og síðan 39:17 fyrir Njarðvíkinga sem þar með höfðu lagt grunninn að sigri í leikn- um. Eftir góða sigra Skallagríms- manna í síðustu leikjum og þar á með- al gegn KR-ingum áttu menn allt eins von á hörkuleik. En sú varð aldrei raunin og ljóst að með slíkri frammi- stöðu verða Borgnesingar ekki lengi með í toppbaráttunni. Teitur Örlygsson lék nú aftur með Njarðvíkingum og var besti maður liðsins. Nýi Bandaríkjamaðurinn, Ril- ey Inge, lék þokkalega en ekkert meira en það. Friðrik Stefánsson og Páll Kristinsson voru einnig ágætir. Hlynur Bæringsson var eini maður- inn í liði Skallagríms sem stóðst Njarðvíkingum snúning allan leikinn og Torrey John hrökk í gang undir lokin, en þá var leikurinn löngu tapað- ur. Sextán stig Hamars í seinni hálfleik að var kaflaskiptur leikur heima- manna í Hveragerði þar sem ungir KR-ingar gáfu ekkert eftir og sigruðu auðveldlega, 68:98. Hamarsmenn Tómasson sem leiddu í hálfleik, skrifar 51-48, skoruðu aðeins 16 stig í seinni hálf- leik og eiga erfíða ferð upp í Borgar- nes í síðasta leik þar sem ekkert nema sigur kemur þeim í úrslitakeppnina. Það stefndi allt í hörkuleik í Hvera- gerði í gærkvöldi þegar KR-ingar komu í heimsókn og leikurinn byrjaði nokkuð fjörlega þar sem vestur- bæingar voru yfir framan af og kom- ust í 11-20. Þá tóku heimamenn leik- hlé og komu sterkir inn eftir það og breyttu stöðunni í 33-26 á aðeins 4 mínútum og settu m.a. fjórar þriggja stiga körfur á þessum tíma. Ekki misstu gestimir heimamenn langt frá sér og náðu að minnka muninn fyrir hlé niður í 3 stig. Brandon Titus og Keith Vassel fóru mikinn í hvoru liði í íyrri hálfleik og skoraði Titus 31 stig í hálfleiknum. Kaflaskiptin voru alger í seinnihálf- leik og mega Hamarsmenn muna margan betri hálfleikinn með aðeins 16 stig og liðið ekki að spila sem ein heild. Titus, Hjalti, Pétur, Óli Barðdal og fleri fundu sig alls ekki og gamla góða skotfjölin var algerlega týnd. Hjá KR-ingum voi-u einnig kaflask- ipti í seinni hálfleik þar sem fleri skoruðu stigin og Keith Vassel setti enga körfu í seinni hálfleik. Hjá jöfnu liði KR ber sérstaklega að nefna hlut Ingvalds undir körfunni og Jespers Sörensen sem byrjaði með látum í seinni hálfleik. Bestur var þó Ólafur Jón Ormsson sem fór fyrir sínum mönnum sem sannur fyrirliði og skor- aði 28 stig, átti ófáar stoðsendingar og setti 6 þriggja stiga körfur, þar af 4 í seinni hálfleik. Lokatölur 68:98 sem var kannski helst til of mikill munur, en enginn leikur betur en mótheijinn leyfir og það fengu heimamenn að reyna og þurfa að lagfæra sinn leik nokkuð fyrir lokaslaginn í Borgamesi ef úrslitakeppnin á að verða raunin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.