Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 16
ínéimt FOLK ■ EYJOLFUR Sverrisson lék allan leikinn í vörn Herthu Berlín þegar liðið sigraði Unterhaching, 2:1, í þýsku knattspyrnunni á laugardag- inn. Eyjólfur fékk 4 í einkunn hjá Kicker og var þar í meðallagi leik- manna liðsins. ■ HELGI Kolviðsson lék allan leik- inn með Mainz sem beið lægri hlut fyrir Niirnberg, 2:0, í þýsku 2. deildinni. Möguleikar Mainz á að komast upp minnkuðu verulega við þennan ósigur. Helgi fékk 3,5 í ein- kunn hjá Kicker, þá næstbestu af leikmönnum Mainz. ■ SIGURÐUR Jónsson lék á ný með Dundee United á laugardag- inn þegar liðið tapaði, 0:1, íyrir Hearts í skosku úrvalsdeildinni. Sigurður hafði verið frá í síðustu leikjum vegna veikinda. Ólafur Gottskálksson var varamarkvörður Hibernian sem lagði Celtic. ■ JENS Martin Knudsen, þjálfari Leifturs, hélt hreinu í marki Ayr United sem gerði jafntefli, 0:0, við Airdrie í skosku 1. deildinni. ■ TRYGGVI Guðmundsson skor- aði bæði mörkin fyrir Tromsö þeg- ar liðið sigraði annað norskt lið, Odd Grenland, 2:0, í úrslitaleik á æfingamóti á La Manga á Spáni á föstudagskvöldið. ■ RUNAR Kristinsson skoraði síð- ara mark Lilleström í sigri á Trel- leborg frá Svíþjóð, 2:1, í leik um 5. sætið á sama móti. ■ SIG URBJÖRN Hreiðarsson lék ekkert með Trelieborg á mótinu vegna meiðsla en hann hefur verið frá í mánuð. Reiknað er með honum aftur í næstu viku. ■ ÞÓRÐUR Guðjónsson lék allan leikinn með Genk sem fékk enn einn skellinn í Belgíu, nú 5:0 gegn Lierse. Þórður fékk eitt gott færi sem hann nýtti ekki. Bjarni Guð- jónsson lék ekki með Genk. ■ ARNAR Þór Viðarsson lék allan leikinn með Lokeren sem sigraði Harelbeke, 2:0, í Belgíu, Guð- mundur Benediktsson var ekki í liði Geel sem tapaði, 1:2, fyrir Aalst. ■ SAMI Hyypia, Finninn sterki í vörn Liverpool, verður að öllu óbr- eyttu með í næsta leik liðsins þótt hann hafi meiðst gegn Manchester United á laugardag. Hyypia fékk slæman skurð á ökkla og var saum- aður í hálfleik en gat ekki haldið áfram vegna sársaukans. ■ VEGARD Heggem, varnarmað- ur Liverpool sem einnig fór meidd- ur af velli í fyrri hálfleik, verður hins vegar frá keppni út þennan mánuð vegna tognunar. Búlgarski landsliðsmaðurinn Krasimir Balakov (no. 10), skorar fyrra mark Stuttgart beint úr aukaspyrnu. Mattháus kvaddi með tapi DORTMUND hefur ekki unnið í síðustu sex leikjum sínum í þýsku deildinni og um helgina varð liðið að gera sér að góðu að fara með skarðan hlut frá borði gegn Frankfurt, 1:1. Bayern Múnchen kvaddi Lothar Mattháus með tapi og Leverkusen færðist nær Bayern á toppnum með 3:1 sigri á Kaiserslauteren. Fyrrverandi Evrópumeistarar í Borussia Dortmund hafa ekki riðið feitum hesti í deildinni í vetur undir stjóm þjálfarans Bemd Kraus. Liðið er nú um miðja deild með 32 stig og er 17 stigum á eftir efsta liðinu, Bayem Múnchen. Heiko Herrlich kom Dortmund yfir á fimmtu mínútu, en Frankfurt, sem er í þriðja neðsta ‘sæti deildarinnar, jafnaði með marki Norðmannsins Jan-Age Fjörtorft þegar stundarfjórðungur var eftir. Bayern Múnchen, sem átti stórleik gegn Real Madrid í meistaradeildinni í síðustu viku, náði sér ekki á strik um helgina og varð að sætta sig við 2:0 tap fyrir Stuttgart í kveðjuleik Lot- hars Mattháus, sem lék 464. leik sinn í deildinni. Mattháus gerði mistök er hann braut á Krisztian Lisztes og Balakov skoraði síðan fyrra mark Stuttgart úr aukaspymunni á 50. mínútu. Fimm mínútum síðar var hin- um 38 ára Mattháus skipt út af og var klappað lof í lófa af 46 þúsund áhorf- endum sem fylltu leikvanginn í Stuttgart. Hann leikur síðasta leik sinn með Bayem gegn Real Madrid í meistaradeildinni annað kvöld, en eft- ir það flytur hann til Bandaríkjanna OPEl Lothar Mattháus, 28 ára, lék sinn 464. deildarleik með Bayern og jafnframt þann síðasta, en hann er á leiðinni til bandaríska liðsins New York Metro Stars. kom frá Bayern Múnchen. Hann markið beint úr aukaspymu á 21. mínútu. Za Roberto jafnaði og markavélin Ulf Kirsten kom Leverkusen yfir í 2:1 og Robert Ko- vac gulltryggði sigurinn með því að gera þriðja mark liðsins um miðjan síðari hálfleik. þar sem hann mun leika með New York-New Jersey MetroStar. Hann sagði um helgina að hann gæti vel hugsað sér að koma aftur til Bayern eftir fimm til tíu ár sem þjálfari. Bayer Leverkusen, sem er í öðra sæti, minnkaði bilið á Bayern niður í tvö stig með því að vinna Kaiserslaut- em 3:1. Mario Basler skoraði fyrst fyrir Kaiserslautern og var það jafn- framt fyrsta mark hans frá því hann Tvö mörk Jóhannesar JÓHANNES Karl Guðjónsson skoraði bæði mörk MVV Maas- tricht þegar liðið gerði jafntefli, 2:2, við Cambuur í fallslag í hol- lensku úrvalsdeildinni í knatt- spymu á laugardaginn. Jóhannes kom MVV tvívegis yfir í leiknum, á 31. og 63. mínútu, og í bæði skiptin beint úr aukaspyrnu. Heimaliðinu, sem er neðst í deild- inni, tókst að jafna í bæði skiptin. Frá Kosta Ríka í Þrótt German Castillo Villalobos, knattspyrnumaður frá Kosta Ríka, hefur skrifað undir þriggja ára samning við 1. deildarlið Þróttar úr Reykjavík. Hann skor- aði í fyrsta mótsleik Þróttara þeg- ar þeir lögðu Aftureldingu, 4:1, í deildabikarnum um helgina. Villalobos, sem er 21 árs, hefur dvalið meira og minna hér á landi síðan á síðasta ári en þá munaði ekki miklu að hann gengi til liðs við ÍA. „Villalobos kom mjög óvænt til okkar og hann virðist ætla að reynast okkur happafengur. Þetta er góður leikmaður og hann hefur skorað í öllum þeim þremur leikj- um sem hann hefur spilað með okkur til þessa,“ sagði Axel Gomes hjá knattspyrnudeild Þróttar í samtali við Morgunblaðið í gær. Einar Þór aftur til KR EINAR Þór Daníelsson, leikmaður KR, sem leigður var til enska 2. deildarliðsins Stoke City, er kominn aftur til vesturbæjarliðs- ins. Einar og Sigursteinn Gíslason, félagi hans hjá KR, fóru til Stoke í nóvember og hugðust leika með liðinu til 18. apríl. Einar hefur lítið fengið að spreyta sig með Stoke að undanförnu og úr varð að hann kom til landsins um helgina. Von er á Sigursteini til landsins 18. aprfl en KR heldur í æfingaferð til Hollands 22. aprfl. Þá gera forráðamenn liðsins ráð fyrir að leikmannahópur- inn verði nær fullskipaður. fSjötta mark Helga HELGI Sigurðsson skoraði I fjórða og síðasta mark Pana- ; thinaikos þegar liðið vann stórsigur á Ethnikos Asteras, 4:0, í grísku deildakeppninni í knattspyrnu á sunnudaginn. \ Markið gerði Helgi á 82. mín- ; útu og þar með hefur hann ; skorað sex mörk í deildinni í vetur. Hann kom inn á sem varamaður á 66. mínútu ! leiksins. Panathinaikos er áfram í öðru sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir meist- urum Olympiakos.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.