Morgunblaðið - 14.05.2000, Blaðsíða 51
> __________________________________________________________... __________________________________________________d——h ____________________________,_______________________________________________________________4—h _____________________________________________________________________J——>_______________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________h-.. ......................................................................................................................................................................................................................................................._______________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________ ..4HM
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. MAÍ 2000 51
IDAG
BRIDS
Umsjón Guðmundur
l’áll Arnarson
UMFJÖLLUN um brids
má í grófum dráttum skipta
í tvo flokka: Það sem gerð-
ist, og það sem ætti að hafa
gerst. Með öðrum orðum:
Annars vegar er fjallað um
sjálfa atburðarásina við
spilaborðið og hins vegar er
fræðileg umræða um bestu
aðferðina eða bestu spila-
mennskuna. En hvernig
væri að breyta til og spyrja:
Hvað mun gerast? Þegar
þetta er skrifað (sl. fimmtu-
dag) stendur til að spila
landsliðsæfingu í opnum
flokki um kvöldið. Þar mun
þetta spil koma fyrir:
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♦ 1063
♦ AKG432
+ 542
Vestur Austur
+D87 +Á952
VÁD10973 VK8652
♦ D87 +9
+9 +KG7
Suður
+ KG4
v4
♦ 1065
+ÁD10863
Hvað er nú líklegt að ger-
ist í þessu spili? Lesandinn
ætti að gera sína spá, en
auðvitað ræðst framvindan
mikið af því grunnkerfi sem
spilað er. Spilað verður á
þremur borðum, tvö pör
spila sterkt lauf, og eitt par
Standard.
Þegar rýnt er í allar
hendur, sést að fjögur
hjörtu vinnast í AV, en
bæði fimm lauf og fimm
tíglar eru spennandi spil í
NS. Hitti sagnhafi á allar
svíningar fær hann hugsan-
lega 11 slagi, en hann gæti
h'ka farið þrjá niður. Ef
norður spilar til dæmis
fimm tígla, gæti austur
spilað út hjarta upp á ás
vesturs, sem væntanlega
myndi skipta yfir í spaða.
Austur tæki með ás og spil-
aði meiri spaða. Sennilega
tæki suður þann slag á
kónginn, og ef hann spilar
nú tígli á kóng, laufi á tíu og
tígli á gosa, þá vinnur hann
spilið. En ef hann svínar
ekki í trompi og gefur slag
á lauf, þá fer hann þrjá nið-
ur (gefur tvo slagi á spaða,
einn á hjarta, einn á tromp
og einn á lauf). Eitt og ann-
að getur því gerst, en ég
ætla að spá þannig þar sem
Standard-par er í NS:
Vestur Norður Austur Suður
1 lauf
lhjarta 2 tíglar 4 hjörtu 5 tíglar
Pass Pass 5 hjörtu Allirpass
Einn niður.
A þriðjudaginn kemur í
ljós hvað raunverulega
gerðist.
Arnað heilla
JT A ÁRA afmæli. Nk. fimmtudag 18. maí verða fimmtug-
<tj\J ar tvíburasysturnar Hulda Maggý Magnúsdóttir,
Mávahlíð, Snæfellsnesi og Hafdís Auður Magnúsdóttir,
Kveldúlfsgötu 20, Borgarnesi. Taka þær á móti ættingjum
og vinum laugardaginn 20. maí kl. 18 í Félagsbæ, Borgar-
nesi.
SKAK
Umsjón Ilelgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Heimsmeistari FIDE,
Rússinn Alexander Khal-
ifman, (2656) stóð sig allvel
á Japfa stórmeistaramótinu
í Balí sem lauk fyrir
skömmu. Hann lent í 2.-3.
sæti ásamt fyrrverandi FI-
DE heimsmeistaranum
Anatoly Karpov með 6V4
vinning, en Judit Polgar
sigraði með 7 vinninga.
Meðfylgjandi staða er frá
skák Khalifmans, svart,
gegn hollenska stórmeistar-
anum Jan Timman (2655)
20...Hxg2+! Nákvæmast
þar sem eftir 20...Dxe2
21.Rg3 hefur hvítur betri
varnarmöguleika en eftir
textaleikinn. 21.Kxg2
Dxe2+ 22.Kg3 Dxh5
23.Bxd4 Rbc6 24.Hael
Rxd4 25.Dxd4 Dh3+ 26.KÍ2
Dxh2+ og hvítur gafst upp
þar sem eftir 27.Ke3 Be4 er
honum allar bjargir bann-
aðar.
Raddir framtíöar
Raddir framtíðar
Röddin er það sem við tölum með og hún er
viökvæm. Hún er stundum rám. Við getum tal-
að afþví að raddböndin eru í hálsinum á okk-
ur. Við getum misst röddina en við getum líka
sungið með henni og rímað.
Aníta Ýr, Holtaborg.
UOÐABROT
AUGNABLIKIÐ
Eitt einasta syndar augnablik,
sá agnarpunkturinn smár,
oft lengist í ævilangt eymdar strik,
sem iðrun oss vekur og tár.
Eitt augnablik helgað af himinsins náð
oss hefja til farsældar má,
svo gjörvöll vor framtíð er geislum stráð
og gæfan ei víkur oss frá.
Eins augnabliks sigur, sé ákvörðun rétt,
oss eilífðar hnossi fær gætt.
Eins augnabliks tjón, það er annað en létt,
vart eih'fðin getur það bætt.
Stgr. Thorsteinsson.
ORÐABOK
Sigra og vinna
OFT virðast menn ekki
átta sig á þeim mun, sem
er á merkingu þessara
sagnorða. Árni heitinn
Böðvarsson minntist á
þetta í bók sinni, sem
hann nefndi Islenskt
málfar og kom út árið
1992. Vil ég benda les-
endum á þessa bók, því
að þar dregur Árni margt
fram um málfar, sem er
öllum holl lesning og þá
ekki sízt þeim, sem oft
þurfa að tjá sig í rituðu
eða töluðu máli. Um ofan-
greind sagnorð segir svo í
bók Áma: „sigra og vinna
eru náskyldrar merking-
ar, samheiti að hluta, en
þrátt fyrir það má ekki
hafa skipti á þessum
sögnum hvar sem er í
setningu: „Hver vann
þetta stríð?“ „Glímumað-
ur sigrar ekki glímuna"
heldur vinnur hann
keppnina með því að
sigra andstæðing sinn.
Því var óboðlegt að segja
í fréttum: „Lagið sigraði
keppnina." Þá var átt við
lag sem sigraði í keppn-
inni, sigraði hin lögin og
vann keppnina." Þá bend-
ir Árni á mörg samheiti í
þessu sambandi, svo sem
bera af, yfirbuga,
hnekkja veldi, leggja að
veUi og fleiri. Að sjálf-
sögðu fer það eftir um-
hverfi og stíl, hvert þess-
ara orða er nothæft
hverju sinni. Ég minni
hér á þetta, því að mér
hefur heyrzt fjölmiðlafólk
allt of sjaldan gera hér
skýran mun á notkuninni.
Menn tala um að sigra
keppnina eða leikinn í
stað þess að vinna keppn-
ina eða leikinn. Þennan
mun bið ég menn festa
sér í minni. - J.A.J.
stjörivuspÆ
eftir Franees llrake
NAUT
Þú ert algjör orkubanki og
menn setur hljóða, þegar
þeir sjá hverju þú færð af-
kastaðíeinu vetfangi.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Ekkert er dýrmætara en
heUsan. Haltu þér í formi
með því að vanda mataræðið
og hreyfa þig sem allra mest.
Skelltu þér nú út í góðan
göngutúr!
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það getur verið erfitt að
standast þá freistingu að láta
aðra snúast fyrir sig. En það
er rangt svo vendu þig á að
sinna þínum hlutum sjálfur.
Tvíburar .
(21. maí - 20. júní) ÁA
Þú hefur svo margt á þinni
könnu að þú sérð ekki út úr
augum. Seztu nú niður, skrif-
aðu verkefnalista og raðaðu
hlutunum í forgangsröð.
Krnbbi
(21. júní - 22. júh')
Samtöl við aðra munu taka
mikið af tíma þínum í dag.
Sumt verður bara snakk um
daginn og veginn, en innan
um ýmislegt sem þú munt
græða á að heyra.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) M
Þú ert ekki á réttu róli með
hlutina. Athugaðu hvort þú
þaft ekki að nálgast þá úr
annarri átt og með opnari
huga.Þá ættu hlutirnir að
ganga upp.
Meyja **
(23. ágúst - 22. sept.) ©íL
Einmitt þegar þú hélzt þú
værir laus við ákveðið mál, er
því dembt aftur á þitt borð.
Taktu þér tíma og ekki fara
að vinna frameftir út af
þessu.
Vog m
(23. sept. - 22. okt.) A A
Þú verður að létta einhverj-
um verkefnum af þér, ef ekki
á illa að fara. Ekki líta á það
sem niðurlægingu. Við þurf-
um öll hjálp einhvern tíman.
Sþorðdreki ™
(23. okt. -21. nóv.) HjC
Æ sér gjöf til gjalda segir
máltækið. En svo má líka
hjálpa öðrum án þess að ætl-
ast til einhvers í staðinn. Líð-
anin er einhvem veginn betri
áeftir.
Bogmaður m ^
(22. nóv.-21.des.) cHO
Einhvern veginn er eins og
allt og allir fari í taugarnar á
þér þessa stundina. Haltu þig
út af fyrir þig meðan þú ert
að vinna úr þínum málum.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) tmC
Það er ekki auðvelt að halda
ró sinni í þeim hamagangi
sem er í kring um þig. En lok-
aðu bara augunum og haltu
þínu striki; þú endar ofan á.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.)
Hlutirnir era oft ekki eins og
manni sýnist í fljótu bragði.
Það er hollt að skyggnast
undir yfirborð þeirra og sjá
hvað þar er á ferðinni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er gott að þekkja til við-
mælanda síns. Aflaðu þér
upplýsinga um þá sem sækj-
ast eftir félagsskap þínum.
Þá ætti ekkert að koma í bak-
ið á þér.
Stjömuspána á að Iesa sem
dægradröl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindaTegra staðreynda.
□ Útskriftargjafir Trúlofunarhringar
I GULLSMIÐJAN
rún iföja ntculóltir (ffuilówiirtu')' Lækjargata 34c - Haínarfirði Sími 565 4453
Ao gera erfitt hjonaband gott
og gott hjónaband betra
Námskeiö fyrir hjón og sambýlisfólk
um samskipti, tjáskipti og tilfinningar
veröur haldiö föstudaginn 26. maí
til sunnudagsins 28. maí 2000
í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar í síma 553 8800.
Stefdn Jóhannsson,
AÍA, jjölskyldu rdðgjafi
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvaö ég get orðið fp
GsKORUN HUGLTÓMUNAR
(The Enlightenment Intensive)
í Bláíjöllum 31. maí til 3. júní.
Hver er ég? Hvað er ég? Hvað er lífið? Hvað er annar?
Hvað er kærleikur?
Hver þátttakandi velur og einbeitir sér að einni af þessum fimm
grundvallarspurningum. Markmiðið er að hann öðlist beina
upplifim á sannleikanum. Bein reynsla er handan við allar óbeinar aðferðir, sem
við styðjumst venjulega við í vitneskju okkar. Tæknin sem notuð er til að ná þessu
takmarki sameinar aldagamla hugleiðslutækni og bein tjáskipti tveggja einstaklinga í
skipulögðu og kyrrlátu umhverfi, þar sem ytra áreiti er haldið í algjöru lágmarki.
Áskorun hugljómunar er krefjandi en magnað og hefur verið vendipunktur til
aukinnar meðvitundar fyrir þúsundir manna.
Leiðbeinandi Guðfinna Steinunn Svavarsdóttir.
Nánari uppl. og skráning hjá Guðfinnu í símum 562 0037 og 869 9293.
Óttar Ellingsen, 554 3930 og 899 5589.
Fáið sendan bækling. +
&
Scientific Anglers
TILKYNNING
UM NÁMSÁRANGUR
Elliðavatn, sem oft hefur verið nefnt Háskóli
fluguveiðimanna, opnaði þann 1. maí. Að venju
mætti fjöldi veiðimanna, ungir sem aldnir, til veiða
þennan dag.
Einn þeirra hóf veiði kl. 07:10 og hætti veiði kl.
13:10. Þegar hann hætti veiði eftir þessa 6 tíma,
hafði hann veitt 28 urriða, 2 bleikjur, sleppt 8
fiskum vegna smæðar og misst 2 fiska. Alls var
afiinn 10 kg.
Flugustöngin sem hann notaði var Scott Tactical
Series fyrir línu nr. 5. Flugulínan var „Stiilwater“
frá Scientific Anglers á System II hjóli frá Scientific
Anglers. Flugan var hnýtt á Kamasan öngul.
Hún fæst í flestum sérverslunum fyrir fluguveiði,
oft hnýtt á Kamasan, en það tryggir árangurinn
og gerir veiðina ánægjulegri að hnýta hana sjálf(ur)
á Kamasan öngul til að vera viss.
KAMASAN
... jm
Meðgöngufatnaður
ÞUMALÍNA
Pósthússtræti 13 s. 5512136