Morgunblaðið - 19.08.2000, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 19.08.2000, Qupperneq 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMIB691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBLJS, AKUREYRLKAUPVANGSSTRÆJTI1 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. íslensk erfðagreining og Hoffmann-La Roche Áfangi í rann- sóknum á alzheimer Mikill Morgunblaðið/Jim Smart • X BALDUR eftir Jón Leifs var fluttur í tvíg'ang í Laugardalshöll í gær við húsfylli og góðar viðtökur. „Ekki er vafi á, að þessi atburður mun umbreytast í sterka og ljóslifandi minningu um mikinn listviðburð, þar sem fengizt var við mikilvægar spurningar um baráttu hins góða og iila, sem fylgt hefur manninum frá örófi alda,“ segir Jón Ásgeirs- son, tónlistargagnrýnandi Morgun- blaðsins, f niðurlagi umsagnar sinnar. Flytjendum Baldurs var vel fagnað. Á myndinni eru Aapo Siik- ala, sem dansaði Loka, Nina Hyv- arinen, sem dansaði Nönnu, Leif Segerstam, hljómsveitarstjóri, Sami Saikkonen, sem dansaði Bald- ur, Kjartan Ragnarsson, leiklistar- ráðunautur og Katrín Á. Johnson og Jóhann F reyr Björgvinsson dansarar í íslenska dansflokknum. ■ Að hugsa /45 Flugeldasýning á menningarnótt Um fímm tonnum af flugeldum skotið upp UM FIMM tonn af flugeldum verða notuð í flugeldasýningu menningar- nætur í kvöld en þetta er stærsta flugeldasýning sem haldin hefur ver- ið hér á landi. Flugeldunum verður skotið upp úr 7 opnum gámum sem komið verður fyrir á afgirtu svæði á hafnarbakkanum. Sýningin er í boði Orkuveitu Reykjavíkur og segir Guðjón Magn- ússon, framkvæmdastjóri hjá Orku- veitunni, hana vera gjöf Orkuveit- unnar til gesta menningarnætur og viðskiptavina fyrirtækisins. Orkuveitan kaupir sýninguna og alla flugelda af Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Meðal annars hefur verið fjárfest í nýju rafeindastýrðu skot- borði frá Bretlandi en flugeldar verða tengdir við skotborðið og skotið upp þaðan. Vilja ekki gefa upp kostnað Guðjón vill ekki gefa upp hversu mikið sýningin muni kosta en segir að hún verði dýr. „Veitufyrirtækin í Reykjavík, það er Vatnsveitan, Raf- magnsveitan og Hitaveitan, hafa áð- ur-stjTkt þessa flugeldasýningu. Nú er búið að sameina þessi fyrirtæki í Orkuveitu Reykjavíkur og það þótti við hæfi að við héldum þessu áfram. Þetta er aldamótasýning og við leggj- um því sérstakan kraft í hana,“ segir Guðjón. Hann segir sýninguna verða hina glæsilegustu. „Við viljum hvetja íbúa höfuðborgarsvæðisins til þess að mæta í miðborg Reykjavíkur í kvöld en best er að sjá sýninguna frá Am- arhóli," segir Guðjón. Sýningin hefst klukkan 23:30 í kvöld þegar formlegri dagskrá menningarnætur lýkur. Banaslys við Dettifoss Israelsk kona féll í Jökulsár- gljúfur BANASLYS varð við Dettifoss um miðjan dag í gær er ísraelsk kona á sjötugsaldri féll ofan í gljúfrið við fossinn og hafnaði á undirlendi við Jökulsá. Lögreglu var tilkynnt um atburð- inn kl. 14.45 í gær, en hópur ferða- langa frá ísrael var á ferð í nágrenni Dettifoss og var konan ein þeirra. Ekki er ljóst hvemig það bar til að konan féll í gljúfrið, en fallið var á bilinu 40 til 50 metrar. Erfitt var að komast að slysstaðn- um en björgunarsveitarmenn frá Húsavík sigu niður gljúfrið ásamt lækni með sérstökum klifurbúnaði. Þegar niður var komið var konan úrskurðuð látin og er talið að hún hafi látist samstundis. Allt tiltækt lið björgunarsveitar- manna í Þingeyjarsýslum var kallað út vegna slyssins, auk þyrlu Land- helgisgæslunnar, en hún var síðar afturkölluð. Rannsókn á tildrögum slyssins stendur yfir hjá lögreglunni á Húsa- vík. Morgunblaðið/Rúnar Þór Frá slysstað við Dettifoss í gær. Björgunarmenn hafa sigið niður í gljúfrið og greina má þá við árbakkann. VÍSINDAMÖNNUM íslenskrar erfðagreiningar hefur tekist, í sam- „ípinnu við íslenska öldrunarlækna, að kortleggja á litningi erfðavísi sem talinn er hafa umtalsverð áhrif á myndun alzheimer-sjúkdómsins. Næsta skref rannsóknanna er að einangra sjálft meingenið. Nýjar aðferðir við greiningu og meðhöndlun sjúkdómsins Rannsóknirnar fara fram í sam- starfi við lyfjafyrirtækið Hoffmann- La Roche sem lýsti því yfir í frétta- tilkynningu í gær að það hyggðist þróa nýjar aðferðir til að greina og meðhöndla alzheimer-sjúkdóminn á grundvelli þessarar þekkingar. Hefur svissneska lyfjafyrirtækið reitt af hendi áfangagreiðslu til ÍE , „^egna þessa áfanga, skv. samstarfs- samningi fyrirtækjanna. Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, sagði á fréttamannafundi í gær að engin trygging væri fyrir því að þessar niðurstöður ættu eftir að hafa áhrif á myndun sjúkdómsins en sagði menn binda vonir við að þær muni endanlega koma til með að gera það. Að sögn Jóns Snædals öldrunarlæknis, sem tekið hefur þátt í rannsókninni, hefur með þessum áfanga tekist að kortleggja erfðavísi sem er mun stærri áhrifa- valdur á framvindu alzheimer-sjúk- dómsins en aðrir erfðavísar honum tengdir sem fundist hafa. Kári, Jón og dr. Þorlákur Jónsson, sem leitt hefur rannsóknarvinnuna innan IE, sögðu í gær að um mjög mikilvæg- an áfanga væri að ræða. Unnið að samningum við fleiri Iyfjafyrirtæki Fram kom í máli Kára að íslensk erfðagreining hefði að undanförnu unnið að því að ná samningum við fleiri erlend lyfjafyrirtæki um rann- sóknir sjúkdóma og hefur það gengið vel að hans sögn. „Við bæði búumst við og vonumst til að við ná- um slíkum samningum," sagði Kári. ■ Gerir kleift/12 MITSUBISHI JE A MITSUBISHI - demantar í umferð 0
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.