Morgunblaðið - 20.08.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.08.2000, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ BAKSVIÐ langar deilur innan CDU. Margir forystumenn flokksins höfðu kraf- ist þess að Biedenkopf byði Kohl að halda ræðu á hátíðinni. Einn varaformanna CDU, Volker Riihe, hafði hótað því að sniðganga hina opinberu uppákomu myndi Bieden- kopf ekki endurskoða ákvörðun sína: „Ef Lothar de Maiziére held- ur ræðu en ekki Kohl þá fer ég ekki til Dresden", sagði Riihe. Á bak við slíkar yfirlýsingar býr sú röksemdafærsla að þótt Kohl sé flæktur í fjármálahneykslið er óv- iðeigandi að setja hann ekki á ræð- ulistann ef de Maiziére, sem er grunaður um að hafa verið í tengslum við austurþýsku leyni- þjónustuna Stasi, er boðið að flytja ræðu. I kjölfar umræðunnar varð skiptingin milli stuðningsmanna og gagnrýnenda Kohls innan CDU skýr á ný. Þótt flokkurinn hafi yngt upp á flokksþinginu í Essen í vor og núverandi formaður, Merk- el, hafi verið harðasti gagnrýnandi Kohls í fjármálahneykslinu, hefur umræðan um ræðulistann sýnt að stuðningurinn við Kohl er enn þá mikill innan CDU. Á meðan Wolf- gang Scháuble, sem varð að segja af sér í vor í kjölfar fjármála- hneykslisins, er glejrmdur og graf- inn virðist nærvera Kohls aftur vera orðin jafnmikil og fyrir hneykslismálið. Athafnamöguleik- ar hinnar nýju stjórnar eru því takmarkaðir og áhrifamáttur Kohls og stuðningsmanna hans mikill. Samninga- viðræður við Kohl Fram að þessu hafði það verið stefna Merkels að flokkurinn gæti ekki haldið uppi hefðbundnum samskiptum við Kohl á meðan að hann neitaði að vinna að því að upplýsa fjármálahneykslið. Þótt hin nýja stjórn vilji ekki að Kohl verði aftur að miðpunkti innan CDU sá hún sig knúna, í kjölfar þrýstings stuðningsmanna hans, til að miðla málum milli gagnrýnenda og stuðningsmanna Kohls innan flokksins. Á mánudeginum gerði stjórnin tilraun til að rétta Kohl sáttarhönd þegar framkvæmdastjóri CDU, Ruprecht Polenz, tilkynnti að flokkurinn hygðist standa fyrir eigin hátíðarhöldum þar sem hylla ætti framlag Kohls til sameiningar Þýskalands. Kohl svaraði tillögu þessari með kjaftshöggi. Nokkrum klukkutímum eftir tilkynningu Pol- enz hafði Kohl, sem er í sumarfríi við Wolfgangsee, samband við skrifstofu sína í Berlín og lét senda út þá fréttatilkynningu að hann afþakkaði boð Biedenkopfs og ætlaði sér auk þess ekki að mæta á uppákomu sem stjórnin hyggðist skipuleggja honum til heiðurs. Víst er að þessi ákvörðun Kohls hefur styrkt stuðningsmenn hans innan CDU í átökunum við Merk- el. Þremur dögum síðar tók Merk- el þá ákvörðun að hringja til Wolf- gangsee og gera aðra tilraun til að bjóða Kohl heiðurssamkomu. Að þessu sinni féllst Kohl á sáttmála: Þann 1. október munu bæði Kohl og Merkel halda ræðu á uppákomu sem flokkurinn stendur fyrir í til- efni af því að tíu ár eru liðin frá því að kristilegir demókratar í Austur-Þýskalandi sameinuðust flokksbræðrum sínum í vestri. Þetta verður í fyrsta skipti í marga mánuði sem Merkel og Kohl mæta saman á samkomu hjá CDU. Einnig eru uppi raddir um að Friedrieh Merz, formaður þing- flokks CDU/CSU, muni í næstu viku bjóða Kohl að tala fyrir hönd þingflokksins á Sambandsþinginu þegar sameining Þýskalands verð- ur á dagskrá. Hinn mikli stuðningur við Kohl hefur líklegast komið Merkel á óvart og hefur hún þurft að draga úr gagnrýni sinni á kanslarann fyrrverandi þó svo að hann neiti enn að vinna að upplýsingu fjár- málahneykslisins. „Svarti risinn“ (svartur er litur CDU) varpar skugga á hina nýju stjórn flokks- ins og hið óbeina vald hans virðist tryggt í sessi um ókomin ár. Asameiningarhátíð Aust- ur- og Vestur-Þýska- lands þann 3. október 1990 stóðu kristilegu demókratarnir Helmut Kohl og Lothar de Maiziére, síðasti for- sætisráðherra Austur-Þýskalands, hlið við hlið og sungu þýska þjóð- sönginn. Tár láku niður kinnar de Maiziéres. Þá var liðið tæpt ár frá því að Kohl hélt áhrifamikla ræðu í Dresden sem varð mikilvægur lið- ur í sameiningarferlinu. Nú þegar farið er að styttast í hin opinberu hátíðarhöld í Dresden í tilefni af tíu ára sameiningarafmæli Þýska- lands er nokkuð víst að ólíkt de Maiziére mun Kohl ekki halda ræðu við þetta tækifæri. Á mánu- daginn varð síðan ljóst að Kohl mun ekki syngja þjóðsönginn með flokksbróður sínum á þjóðhátíðar- daginn þvi „kanslari sameiningar- innar“ hefur tilkynnt að hann muni ekki verða viðstaddur hátíðarhöld- in. Gamlir andstæðingar Þótt deilan um það hvort Helm- ut Kohl ætti að flytja ræðu á degi sameiningarinnar hafi byrjað fyrir nokkrum vikum var í raun löngu búið að taka ákvörðun um þetta mál. Það er ekki í höndum ríkis- stjórnarinnar heldur forseta Sam- bandsráðsins að skipuleggja hátíð- arhöldin og fer hún fram í sam- bandslandi því sem teflir fram forseta það árið. Nú vill svo til að á tíu ára afmæli sameiningarinnar er gamall andstæðingur Kohls innan CDU, Kurt Biedenkopf, forseti Sambandsráðsins. í nóvembermánuði sendi forsæt- isráðherra Saxlands Kohl tveggja blaðsíðna handskrifað bréf þar sem kanslaranum fyrrverandi er boðið sæti í fremstu röð en ekki að stíga í pontu. Þar sem Biedenkopf hefur í áraraðir verið einn harðasti gagnrýnandi Kohls innan CDU hefur eflaust læðst sá grunur að einhverjum að Biedenkopf hafi úti- lokað „kanslara sameiningarinnar" frá ræðulistanum til að kvitta fyrir gamlar deilur við Kohl. Hvað sem því líður er ekkert at- hugavert við ákvörðun Bieden- kopfs þar sem að hún samræmist skipulagi því sem hefur einkennt hátíðina undanfarin ár. Tíðkast hefur að annaðhvort tali kanslar- inn, forsetinn eða forseti Sam- bandsþingsins auk erlends þjóð- höfðingja. Biedenkopf heldur í þessa hefð; fyrstur á listanum er Johannes Rau, forseti Þýska sam- bandslýðveldisins, síðan Bieden- kopf sjálfur sem fulltrúi sam- bandslandanna og svo Jacques Chirac Frakklandsforseti. Auk þess ákvað Biedenkopf í samráði við forseta Sambands- þingsins að virða framlag Austur- Þjóðverja og bjóða Lothar de Ma- iziére sem var fyrsti og síðasti for- sætisráðherra austurþýskrar rík- isstjórnar sem valin var í frjálsum kosningum. Ekki ráðlagt að Kohl haldi ræðu Þegar Biedenkopf tók þá form- legu ákvörðun í nóvember að Kohl yrði ekki á ræðulistanum vakti það litla athygli. Skömmu síðar kom fjármálahneykslið upp á yfirborðið og eftir það hefur margt breyst. Lagabrot varpa skugga á „kansl- ara sameiningarinnar" og nú þegar styttast tekur í tíu ára afmælið sPyrja menn sig hvort mögulegt sé að aðskilja tvær staðreyndir, þ.e. hið óumdeilda framlag Kohls til sameiningar Þýskalands frá þeirri staðreynd að hann hefur brotið lög sem gilda um starfshætti stjórn- málaflokka og skaðað þannig þýsk stjórnmál, flokk sinn og eigið mannorð. í nóvember leit Bieden- kopf á ákvörðun sína sem formlega ákvörðun í samræmi við hefð og eftir atburði undanfarinna mánuða hefur skoðun Biedenkopfs ekki breyst þótt rökin séu nú önnur. Hann lítur svo á að það sé Kohl sjálfum í hag að vera ekki á ræðu- listanum 3. október. í stað þess að eiga það á hættu að verða á ný fyr- ir gagnrýni ætti kanslarinn fyrr- verandi frekar að sitja í fremstu Helmut Kohl og Hannelore, eiginkona hans, veifa til mannfjöldans er safnast hafði saman fyrir utan þinghúsið í Berlín til að fagna sameiningu Þýskalands þann 3. nóvember 1990. Kohl verður hins vegar ekki viðstaddur er haldið verður upp á að tíu ár séu liðin frá þessum atburði. Kanslarí sameining- arínnar fjarstaddur á sameiningarhátíð Helmut Kohl verður ekki viðstaddur hátíð- arhöld í Dresden í nóvember í tilefni af því að tíu ár eru liðin frá sameiningu Þýska- lands. Davíð Kristinsson í Berlín rekur aðdraganda málsins. röð og hlusta á aðra lofa framlag hans til sameiningar Þýskalands. Biedenkopf hefur eflaust rétt fyrir sér og væntanlega er Kohl sömu skoðunar enda hefur hann ekki farið fram á að fá að stíga í pontu. Þar sem að rannsókn fjármála- hneykslisins er langt frá því að vera lokið er ekki hægt að útiloka að óþægilegar upplýsingar líti dagsins ljós skömmu fyrir 3. októ- ber. Ekki er óh'klegt að pólitískir andstæðingar Kohls verði óvenju iðnir við rannsókn fjármála- hneykslisins vikurnar áður en hylla á kanslara sameiningarinnar. Fyrr í þessum mánuði sendi Uwe Lúthje, fyrrverandi fjármála- ráðgjafi Kohls, rannsóknarnefnd Sambandsþingsins skriflega til- kynningu þar sem hann heldur því fram að Kohl hafi eigi síðar en 1976 vitað að flokkurinn sniðgengi lög um starfshætti stjórnmála- flokka með notkun leynireikninga í Sviss. Líklegt er að þessar óþægi- legu upplýsingar hafi ýtt undir þá ákvörðun Kohls að afþakka boð um að vera viðstaddur hátíðarhöldin í Dresden 3. október. I bréfi því sem Kohl sendi Biedenkopf í upphafi vikunnar er ákvörðunin þó rökstudd með öðr- um hætti. Hann segir að í ljósi hlýrra tilfinninga sinna til þessa dags hafi hann ákveðið að afþakka boðið til að ýta undir að haldið verði upp á afmælið án pólitískra átaka. Hann segir að atburðurinn sjálfur fremur en einstakar per- sónur eigi að vera miðpunktur há- tíðarhaldanna. „Ég vildi sameiningu Þýskalands“ Ekki finnst þó öllum hógværð kanslarans fyrrverandi sannfær- andi. Þegar fjármálahneykslið stóð sem hæst lýsti de Maiziére hugs- unarhætti Kohls með eftirfarandi hætti: „Ég, Helmut Kohl, er CDU og CDU er ríkisstjórnin. Því er Helmut Kohl Þýska sambandslýð- veldið." De Maiziére er þeirrar skoðunar að sagnaritarar hafi gert Kohl að óþarflega miklum miðpunkti sameiningarinnar á kostnað einstaklinga á borð við Wolfgang Scháuble (CDU) sem var innanríkisráðherra á þeim tíma og vafalaust einn af bygg- ingameisturum sameiningarinnar. De Maiziére er þannig að vísa til ævisögu sem tveir þýskir blaða- menn skrifuðu í samráði við Kohl og ber titilinn „Ég vildi samein- ingu Þýskalands". Við lestur bók- arinnar segist de Maiziére nánast hafi fengið það á tilfinninguna að Kohl hafi sameinast sjálfum sér. Hann segir sameininguna ekki hafi orðið vegna þess að Kohl hafi vilj- að hana heldur sökum þess að hún hafi verið á dagskrá sögunnar. Aðrir benda á að þótt Kohl hafi ekki verið fyrstur til að sjá hvert stefndi eftir fall múrsins hafi hann þó verið fljótur til aðgerða. Hvað sem því líður er víst að margir líta svo á að einungis sú sameiningarhátíð standi undir nafni þar sem Kohl er viðstaddur. Án Kohls muni uppákoma þessi einkennast af vangaveltum um það hvers vegna kanslarinn fyrrver- andi sé ekki viðstaddur. Forsætis- ráðherra Thúringen, Bernhard Vogel (CDU), sagðist harma ákvörðun Kohls og sagði að hátíð- arhöldin yrðu ekki þau sömu án hans. Ákvörðun Kohls féll eftir viku-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.