Morgunblaðið - 22.09.2000, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.09.2000, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 95 hafa sýkst af salmonellu Evrópskt salat einnig til skoðunar RANNSÓKN hefur staðfest salmonellusýkingu í 95 ein- staklingum á höfuðborgar- svæðinu og Suðurlandi. Guðrún Sigmundsdóttir, smitsjúk- dómalæknir hjá sóttvarna- lækni, segir að vísbendingar hafi borist um að uppruni sýk- ingarinnar kunni að hafa borist úr salati frá Evrópu, en fram að þessu hefur grunurinn aðallega beinst að Dole-jöklasalati sem kemur frá Ameríku. Hún segir að skoða þurfi þetta betur áður en hægt sé að fullyrða um hvort evrópska salatið sé ludegri sjúkdómsvaldur en það amer- íska. Guðrún sagði að verið væri að rannsaka hvort salmonellu- bakterían, sem greinst hefur hér á landi, væri af sömu teg- und og salmonellubaktería sem greinst hefur í fólki að undan- förnu í Bretlandi og á Nova Scotia í Kanada. Hún sagði að ef í ljós kæmi að um sömu bakt- eríuna væri að ræða myndi það hjálpa mönnum að átta sig bet- ur á uppruna sýkingarinnar. Guðrún sagði að sér væri ekki kunnugt um að neinn sjúklingur hér á landi hefði fengið bakteríuna í blóðið, en hún sagði að sjúklingar, sem fengið hefðu bakteríuna, hefðu verið lagðir inn á spítala og fengið vökva í æð. Rögnvaldur Ingólfsson, sviðsstjóri matvælasviðs Heil- brigðiseftirlits Reykjavíkur, sagði í gær að búið væri að rannsaka öll sýni sem bárust stofnuninni af Dole-jöklasalati og hefði ekki greinst salmon- ellubaktería í neinu sýnanna. Dæmdur í 3V2 árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt 18 ára Reykvík- ing, Ragnar Davíð Bjarnason, til 3‘A árs fangels- isvistar fyrir tilraun til manndráps, líkamsárás og árás á lögreglumann. Ragnar Davíð var fundinn sekur um að hafa stungið 22 ára mann tveimur hnífstungum að- faranótt 3. nóvember í fyrra í Hafnarstræti. Mennirnir áttu í einhverjum orðahnippingum áður en Ragnar Davíð tók upp hnífinn. Hann sagði að fórnarlambið hefði ógnað sér, en Hæstiréttur segir ekkert hafa komið fram um að hann hafi orðið fyrir slíkri árás eða áreitni að það gæti skýrt geðshræringu sem leiddi til þess að hann greip til hnífs. Önnur hnífstungan kom í vinstri síðu fórnar- lambsins og hin í kviðarhol vinstra megin. Sú stunga gekk upp í gegnum lifrina og munaði að- eins þremur cm að hún gengi í hjarta. Maðurinn hlaut af miklar innvortis blæðingar sem stöðvað- ar voru í skurðaðgerð stuttu seinna en þá reyndust vera 900 millilítrar af blóði og blóðlifr- um í kviðarholi hans. Ragnar Davíð hafði einnig verið handtekinn 8. júlí í fyrra, vegna rannsóknar á ráni, en við handtökuna skallaði hann lögreglumann í fram- an svo sprakk fyrir á vör hans og framtönn losnaði. Hann var því ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni. Loks var hann svo dæmdur fyrir líkamsárás, fyrir að hafa slegið mann í götuna fyrir utan veitingastaðinn Dubliners í Hafnarstræti aðfara- nótt 4. apríl í fyrra og slegið hann nokkur högg þar sem hann lá. Tveir lögreglumenn sáu til hans og náði annar þeirra að hlaupa hann uppi. í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í apríl sl. kom fram að Ragnar Davíð hafði áður hlotið tvo refsidóma. í júní í fyrra var hann dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Þá var hann dæmdur í janúar á þessu ári í tíu mánaða fangelsi fyrir rán en átta mánuðir af þeim refsingu voru skilorðsbundnir og jafnframt var fyrri dómurinn dæmdur upp. í þessum nýjustu málum var refsing hans hegn- ingarauki við fyrri dóma og skilorðshluti síðari dómsins var dæmdur upp. Héraðsdómur dæmdi hann einnig til að greiða manninum sem hann stakk 280 þúsund krónur í bætur. Þeim hluta dómsins var ekki áfrýjað til Hæstaréttar. Heimanám á Austurvelli Morgunblaðið/Ómar Skólar landsins eru komnir á fullt og ungir námsmenn þurfa því að vera duglegir við iesturinn. Veðrið í höfuð- borginni siðustu daga hefur leyft mönnum að stunda heimanámið utan dyra og þessi ungi herramaður var í þungum þönkum á Austurvelli þegar ljósmyndari átti þar leið um. Borgaryfirvöld óska eftir viðræðum við Kópavog um Yatnsenda Hafnar kröfu Landssíma SAMKEPPNISSTOFNUN hefur hafnað þeirri kröfu Landssímans að fella úr gildi, til bráðabirgða, samning Línu.Nets og Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur um skólanet. Sam- keppnisstofnun ætlar að flýta með- ferð málsins, en Landssíminn óskaði eftir því í byrjun mánaðar að sam- kegpnisyfirvöld skoðuðu samninginn. Ólafur Þ. Stephensson, forstöðu- maður upplýsingamála Landssímans, sagði við Morgunblaðið að það væri fagnaðarefni ef Samkeppnisstofnun ætlaði að flýta efnislegri meðferð. .Ástæðan fyrir því að við óskuðum eftir bráðabirgðaákvörðun var sú að málsmeðferð hjá Samkeppnisstofnun hefur dregist í á annað ár í ýmsum til- vikum. Samningurinn sem þama um ræðir er bara til árs þannig að ef efn- islegrar niðurstöðu er að vænta fljót- lega er það fagnaðarefni," sagði Ólaf- ur. Eiríkur Bragason, framkvæmda- stjóri Línu.Nets, sagði niðurstöðuna ekki koma á óvart í ljósi þess að um- ræddur samningur hefði verið innan þess ramma sem reglur kváðu á um. ----------------- Þörf á nánu samstarfí BORGARSTJÓRN hefur óskað eftir formlegum viðræðum við bæjaryfir- völd í Kópavogi um framtíð Vatns- endasvæðisins. A borgarstjómar- fundi í gær var samþykkt samhljóða tillaga Ölafs F. Magnússonar, borg- arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, þar sem m.a. er óskað eftir nánu sam- starfi bæjarfélaganna um skipulag þess svæðis sem liggur að Elliða- vatni. Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs í Kópavogi, sagði í gær- kvöld að vel kæmi til greina að tala við borgaryfírvöld um Elliðavatn en Kópavogsbær væri fullfær um skipulagningu á sínu landi. Tillagan hljóðar svo: „Borgar- stjóm Reykjavíkur leggur áherslu á að við skipulag byggðar við Elliða- vatn sé tekið tillit til útivistarsvæðis- ins þar og lífríkis Elliðavatns og Elliðaánna sem einnar heildar. Borgarstjóm telur að rannsaka þurfi til hlítar orsakir mengunar í Eiliða- vatni og áhrif aukinnar byggðar á hana áður en byggð á svæðinu er aukin. Jafnframt er minnt á að fyrir- huguð íbúðarbyggð í Vatnsendalandi er innan vatnsverndarsvæðis höfuð- borgarsvæðisins. Borgarstjórn telur að þörf sé á nánu samstarfi Reykja- vflcur og Kópavogs um skipulag þess svæðis sem liggur að Elliðavatni og varðar sameiginlega hagsmuni beggja sveitarfélaganna sem og ann- arra sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu. Borgarstjórn óskar því eindregið eftir viðræðum við bæjar- yfirvöld í Kópavogi um framtíð þessa mikilvæga svæðis.“ Gunnar Birgisson sagði í samtali við Morgunblaðið að sjálfsagt væri að ræða við borgaryfirvöld um Ell- iðavatn. „Við emm hins vegar alveg ein- færir um að skipuleggja okkar svæði sjálfir og hugsa um náttúrana og umhverfið og þurfum enga hjálp frá Reykjavík hvað það varðar,“ sagði Gunnar. „Það er stefna okkar hér í Kópavogi að nýta Vatnsendaland á sem skynsamlegastan hátt fyrir Kópavogsbúa því þetta er framtíðar- byggingarland okkar en við munum taka fullt tillit til umhverfisins og náttúrannar í heild áður en við för- um mikið af stað þar.“ Sjálfsagt að ræða við borgaryfirvöld Flosi Eiríksson, oddviti Kópa- vogslistans, sem er í minnihluta í bæjarstjóm Kópavogs, sagðist í samtali við Morgunblaðið fagna til- lögu borgarstjórnar Reykjavíkur. „Mér finnst þetta vera skref í rétta átt,“ sagði Flosi. „Elliðavatns- svæðið allt saman er viðkvæmt og það er mjög mikilvægt að það náist sátt og skilningur um notkun þess og umhverfi meðal allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Eg vona bara að við hér I bæjar- stjórn Kópavogs berum gæfu til að sýna sömu samstöðu og þeir í borg- arstjórn Reykjavíkur." Alzheimer Fundu nýjan erfðavísi TEKIST hefur að afmarka nýjan erfðavísi sem tengist alzheimer-sjúk- dómnum, þann fímmta sem fundist hefur á um áratug og tengist sjúk- dómnum með óyggjandi hætti. Þetta kom fram á fræðslufundi Félags aðstandenda alzheimersjúklinga, sem haldinn var í gærkvöld á Alþjóð- lega alzheimer-deginum. Að sögn Kára Stefánssonar, forstjóra Is- lenskrar erfðagreiningar, Jóns Snædal öldrunarlæknis og dr. Þor- láks Jónssonar virðist erfðavísirinn hafa meiri áhrif á myndun sjúkdóms- ins en allir hinir fjórir samanlagt. Fundur erfðavísisins vekur vænt- ingar um að takast megi að þróa mik- ilvirkari lyfvið sjúkdómnum. Sérblöð í dag Marie-Jose Perec hætt og farin frá Sydney/B12 Besti árangur íslendinga á Ólympíuleikum/B3 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is líf BÍÓBLAÐH) Á FÖSTUDÖGUM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.