Morgunblaðið - 23.09.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.09.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NAFO vill koma á kvótasetningu í rækjuveiðum á Flæmska hattinum Sj ónarmið Islendinga að verða ofan á Á ÁRSFUNDI Fiskveiðinefndar N orðvestur-Atlantshafsins, NAFO, sem var haldinn í Boston í Bandaríkjunum í vikunni og lauk í gær, var samþykkt að á fundi í mars á næsta ári verði reynt að komast að samkomulagi um kvóta- setningu á rækjuveiðum á Flæmska hattinum og úthlutun á heildarkvótanum til aðildarríkj- anna. „Þetta er mjög stórt skref í áttina til þess sem við höfum hald- ið fram frá upphafi og viðurkenn- ing á okkar stefnu,“ segir Þórður Ásgeirsson fiskistofustjóri, sem fór fyrir íslensku sendinefndinni á fundinum. Rækjuveiði á Flæmska hattinum hefur verið stjórnað með sóknar- stýringu og hefur verið úthlutað samtals um 12.000 dögum en leyfi- legur heildarafli er um 30.000 tonn. Verði allir dagarnir nýttir Sex norræn- ar stöðvar í breiðvarpinu LANDSSÍMINN hefur samið við sex norrænar sjónvarpsstöðvar um að útsendingar þeirra verði sendar út á breiðbandi Simans. Siv Friðleifsdóttir umhverfis- ráðherra opnaði formlega fyrir útsendingar stöðvanna í húsa- kynnum Landssímans ( Ármúla í gær. Um er að ræða beint endur- varp á tveimur rásum sænska ríkissjónvarpsins, SVTl og SVT2, tveimur rásum norska ríkissjón- varpsins, NRKl og NRK2, og rás- um danska ríkissjónvarpsins, DRl og_DR2. I kynningarskyni verða nor- rænu rásirnar opnar fram til 31. október öllum þeim sem aðgang hafa að breiðbandi Símans. Eftir það verða rásirnar seldar í áskrift. Samið við rétthafa í frétt fráLandssi'manum segir að um allnokkurt skeið hafi verið unnið að því að auka fjölbreytni í endurvarpi erlends sjónvarpsefn- is hér á Iandi með útsendingum á norrænu efni í breiðvarpinu. Sú tilraun, sem gerð hafi verið með dreifingu á norrænu sjónvarps- efni f byrjun árs 1999, hafi leitt í ljós að grundvöllur fyrir dreif- ingu væri til staðar og áhugi við- skiptavina mikill en að óhjá- kvæmilegt hefði verið að gera úrbætur livað varðaði réttinda- gæzlu á meðal rétthafa efnis. Samtök innlendra höfundar- rétthafa (IHM) standa nú að samningi við Símann um endur- varp á efni norrænu stöðvanna. verður veiðin langt fram yfir ráð- legginguna, jafnvel allt að 80.000 tonn. Rækjuveiðar á Flæmingja- grunni hófust 1993. Frá 1996 hafa Islendingar verið á móti veiði- stjórnuninni, hafa notað rétt sinn til að mótmæla þessum ákvörð- unum og verið óbundnir af þessari sóknarstýringu en úthlutað sér ákveðnum kvóta. íslendingar hafa talið það einu réttu leiðina enda í samræmi við fiskveiðistjórnunina á íslandi. Aukafundur í mars með um- boð til að móta nýja stefnu „Við höfðum ekki mikinn stuðn- ing við þetta sjónarmið okkar í upphafi en það hefur fengið aukinn stuðning, sérstaklega í fyrra og aftur núna,“ segir Þórður, en með honum í sendinefndinni voru Kristján Ragnarsson hjá LÍÚ, KARLMAÐUR á sextugsaldri var í gær sýknaður í Héraðsdómi Norðurlands vestra af ákæru vegna umferðarlagabrots. Lög- reglustjórinn á Blönduósi kærði manninn fyrir brot á umferðarlög- um með því að hafa 6. júlí 1999 vanrækt að færa inn upplýsingar á tvö skráningarblöð ökurita bifreið- arinnar, segir í dómnum. Maður- inn var sýknaður þar sem dómur- inn áleit svo að reglugerð Evrópusambandsins, ESB, hefði ekki verið tekin upp í íslenskan rétt þar sem hún hefði ekki verið birt í B-deild Stjórnartíðinda. Kolbeinn Árnason, lögfræðingur í sjávarútvegsráðuneytinu, og Hösk- uldur Steinarsson hjá Fiskistofu. „Menn í NAFO hafa nú almennt viðurkennt að þetta sóknardaga- kerfi gengur ekki. Það er mikill meirihluti orðinn fyrir því að fara eftir því sem við lögðum til á fund- inum fyrir ári, að breyta yfir í kvótasetningu og úthluta kvótum. Niðurstaðan á þessum fundi var að það verður haldinn aukafundur í fiskinefndinni hjá NAFO á næsta ári, væntanlega í Kaupmannahöfn í mars. Verkefni hans verður að reyna að komast að niðurstöðu um kvótasetningu, en vísindanefndar- fundur í nóvember gefur okkur nýja ráðgjöf um hvað megi veiða mikið.“ Til að hafa veiðarnar ekki stjórnlausar var ákveðið að ríkj- andi dagakerfi verði við lýði þar til Bifreið mannsins, sem er vöru- bifreið af gerðinni Volvo, var stöðvuð af lögreglu á Skagastrand- arvegi í júlí á síðasta ári. Við skoð- un taldi lögregla að skráningar- blöð ökurita bifreiðarinnar hefðu ekki verið fyllt út með þeim hætti sem mælt er fyrir um í reglugerð ESB. í dómnum kemur fram að ís- því verður væntanlega breytt á fundinum í mars. Island var eina þjóðin sem var því mótfallin en Island hefur alltaf mótmælt þessu kerfi. „Við sögðum að við myndum notfæra okkur þann rétt sem við hefðum til að mótmæla formlega og vera ekki bundnir af þessu, þannig að afstaða okkar er óbreytt," segir Þórður. „En fund- urinn staðfesti að okkar sjónarmið eru að verða ofan á.“ Þórður segir að þó stuðningur við stefnu íslands hafi aukist seg- ist hann ekki geta bókað að ákveð- ið verði að taka upp kvótasetningu á fundinum í mars. „Það eru ennþá nokkrar þjóðir hér sem virðast vilja halda í þetta sóknardagakerfi þannig að það er engan veginn hægt að gefa sér það að fundurinn í mars muni binda enda á þessa óstjórn, sem við svo köllum." lensk stjórnskipan fylgi þeirri reglu, að þjóðarréttur verði ekki hluti landsréttar fyrr en hann hafi verið tekinn í íslensk lög með þeim hætti sem íslensk stjórnskipan mæli fyrir um. Þannig verði samn- ingar sem eru skuldbindandi fyrir íslenska ríkið að þjóðarrétti, ekki skuldbindandi fyrir borgarana fyrr Nýir sviðsstjórar Landspítala - háskólasjúkrahúss Stefnt að ráðningu í næstu viku STEFNT er að því að í næstu viku liggi fyrir ákvarðanir for- stjóra Landspítala - háskóla- sjúkrahúss um ráðningu yfir- manna fyrir níu lækningasvið spítalans. Nýtt skipulag sviða- skiptingar á að taka gildi 1. októ- ber og var forstjóra falið af framkvæmdastjóm spítalans að ráða í stöður yfirmanna án auglýsingar. Eftir sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkui- og Landspítalans í Landspítala - háskólasjúkrahús hefur verið unnið að marghátt- aðri samræmingu á yfirstjóm stofnunarinnar bæði á sviði stjómunar og fjármála svo og lækninga og hjúkrunar. Hafa deildir verið sameinaðar og ver- ið stefnt að því að miðstöð í sum- um sérgreinum sé aðeins á öðr- um stóru spítalanna þar sem unnt þykir að koma því við. Sviðin níu eftir 1. október verða: Bamasvið, Kvennasvið, Geðsvið, Lyflækningasvið I, Lyflækningasvið II, Skurð- lækningasvið, Svæfing, Gjör- gæslu- og skurðstofusvið, Klín- ískt þjónustusvið, Slysa- og bráðasvið. Undir lyflækninga- svið I heyra flestar greinar lyf- lækninga en undir lyflækninga- svið II krabbameinslækningar og blóðmeinafræði og klínískt þjónustusvið eru röntgenlækn- ingar, apótek og sjúkraskrár. Auk þessara níu sviða má nefna öldrunarþjónustu og end- urhæfingarþjónustu sem gerðir hafa verið um þjónustusamning- ar og síðan em Blóðbankinn og rannsóknastarfsemi en í undir- búningi er að breyta rekstrar- fyrirkomulagi þeirra. Stjóm spítalans samþykkti bókun þess efnis að skipulagið nýja skuli endurskoðað að tveimur ámm liðnum og sér- staklega yrði lagt mat á kosti og galla þess að skipta lyflækn- ingasviði, á staðsetningu bama- skurðlækninga og á samstjórn skurðstofa. en þeir hafa verið teknir upp í ís- lenskan rétt. Þá segir að að reglugerð sú, sem ákærði er talinn hafa gerst brot- legur við, hafi ekki birst í sam- felldum texta í B-deild Stjórnartíð- inda eins og kveðið er á um í lögum. „Það er því álit dómsins að reglur þær, sem ákærði er talinn hafa gerst brotlegur við, hafi ekki verið birtar með fullnægjandi hætti svo bindandi sé fyrir borg- ara þessa lands.“ Málið dæmdi Halldór Halldórs- son dómstjóri. Morgunblaðið/Kristinn Siv Friðleifsdéttir umhverfisráðherra opnaði fyrir útsendingar sex norrænna sjónvarpsstöðva á breiðbandinu. Sýknaður af ákæru vegna umferðarlagabrots 1 Héraðsdómi Norðurlands vestra E SB-reglugerð ekki talin bindandi Guðrúnu Arnardóttur langar í úrslitahlaupið/B12 Fyrsta gull Finna í kúiuvarpi i 80 ár/B3 Sérblöð í dag KIIlOtTOfilIlMlyÍCTMlDl Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is T T7d'D#Í *§ WA ■ MOIM.I ilINBLAÐSINS ■■ AUGAI iL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.