Morgunblaðið - 28.10.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 25
Breytingar
hjá Pharmaco
deCODE fyrirmynd Norðmanna
ósló.Morgnnblaðið.
STJÓRN Pharmaco hf. hefur ákveðið
á fundi sínum að ráða Sindra Sindra-
son sem forstjóra Pharmaco hf. og
Balkanpharma í
Búlgaríu. A sama
fundi var ákveðið
að ráða Guð-
björgu Alfreðs-
dóttur sem fram-
kvæmdastjóra
Pharmaco hf. á
Islandi.
Sindri Sindra-
son er viðskipta-
fræðingur að
mennt og hefur
verið fram-
kvæmdastjóri
Pharmaco hf. síð-
an 1981.
Guðbjörg er
lyfjafræðingur að
mennt og hefur
starfað hjá Phar-
maco hf. síðan í
ágúst 1977 og hef-
ur undanfarin ár
verið markaðs-
stjóri AstraZeneca hjá Pharmaco hf.
Samkvæmt rekstraráætlun sem
Pharmaco hefur birt fyrir Balkan-
pharma fyrir árið 2000 er gert ráð
fyrir 22,5% veltuaukningu og að
hagnaður fyrir afskriftir og íjár-
magnsliði (EBIDTA) muni nema ná-
lægt 1.800 milljónum króna. Er það
148% aukning frá því í fyrra. Gert er
ráð fyrir að framlegðin tvöfaldist og
fer úr 10% í 20%. Hagnaður eftir
skatta er áætlaður 800 milljónir
ki’óna að teknu tilliti til hlutdeildar
minnihluta samanborið við um 100
milljóna króna hagnað í fyrra.
NORSKUR fjármálamaður vill nú
stofna líftæknifyrirtæki í Noregi
með hið íslenskættaða deCode
Genetics sem fyrirmynd, að því er
grcint er frá í norska við-
skiptablaðinu Dagens Næringsliv.
Erik Must hjá fjármálafyrirtæk-
inu Fondsfinans, telur að í Noregi
séu ákjósanlegar aðstæður fyrir
líftæknifyrirtæki og hefur ritað
viðskipta- og heilbrigðisráðherr-
um bréf þar sem hann leggur til
að stofnað verði stórfyrirtæki á
sviði liftækni þar sem norska rík-
ið verði helmingseigandi.
Hugmynd Must er að til verði
fyrirtæki þar sem fram fari rann-
sóknir á sviði erfða- og læknavís-
inda. Markmiðið er að þróa og
selja niðurstöður til alþjóðlegra
lyfjafyrirtækja. Og Must segir að
ef Noregur ætli sér stað á ört vax-
andi líftæknimarkaðnum, verði
stjórnvöld að láta til skarar
skríða nú.
Ef fyrirtækið verður stofnað,
leggur Must áherslu á að eitt af
því fyrsta sem takast þarf á við
séu siðferðileg og lögfræðileg
málefni, sem reynst hafa pólitískt
viðkvæm. Að mati Must er mikil-
vægt að fyrirtækið verði í eigu
ríkisins og einkaaðila. Þannig
verði best tekist á við siðferðileg
vandamál og nægt fjármagn
tryggt. Must segir gen Norð-
manna fremur einsleit, þjóðin sé
fremur fámenn, heilbrigðiskerfi
gott og skráning gagna einnig.
Þetta geti gefið norsku líftækni-
fyrirtæki forskot á önnur lff-
tæknifyrirtæki, líkt og þær ákjós-
anlegu aðstæður sem eru á
Islandi, gefi deCode Genetics for-
skot.
I grein Dagens Næringsliv er
saga deCode sögð í stuttu máli.
Greint frá samstarfssamningnum
við Roche, skráningunni á Nasdaq
og sveiflum á gengi hlutabréf-
anna eftir það.
Sindri
Sindrason
Guðbjörg
Alfreðsdóttir
Breytingar
hja OLIS
TVEIR framkvæmdastjórar hjá OL-
IS eru að hætta störfum, samkvæmt
upplýsingum Einars Benediktsson-
ar, forstjóra OLÍS. Árni Pétur Jóns-
son viðskiptafræðingur, sem verið
hefur framkvæmdastjóri nýs sviðs
hjá OLÍS, markaðssviði heildsölu,
hættir og fer til starfa hjá Baugi hf.
Þá hefur Kristján B. Ólafsson við-
skiptafræðingur, sem verið hefur
framkvæmdastjóri fjármálasviðs,
óskað eftir starfslokum og hefur ver-
ið fallist á það
Einar Marínósson viðskiptafræð-
ingur, sem starfað hefur hjá OLÍS
frá árinu 1993, hefur verið ráðinn
fjármálastjóri og Jón Halldórsson,
framkvæmdastjóri stórnotendasviðs,
mun einnig verða framkvæmdastjóri
markaðssviðs heildsölu.
------------------
Lakari afkoma
hjá Telenor
Ósló. Morgunblaðið.
HAGNAÐUR Telenor fyrir skatt á
fyrstu níu mánuðum ársins nemur 2
milljörðum norskra króna eða um 18
milljörðum íslenskra. Þetta er 12%
lakari afkoma en á sama tíma í fyrra,
að því er Dagens Næringsliv greinir
frá. Blaðið greinir einnig frá því að
norska viðskiptaráðuneytið hafi í
gær samþykkt að hlutafjárútboð
Telenor fari fram fyrir jól og
markmiðið sé að skrá bréf félagsins í
kauphöllunum í Osló og New York 4.
desember nk.
í sama blaði er þó haft eftir tals-
manni viðskiptaráðuneytisins að sá
möguleiki sé enn fyrir hendi að út-
boðinu verði frestað fram yfir ára-
mót. Formlegrar ákvörðunar ráðu-
neytisins sé að vænta innan skamms.
-------♦-♦-♦------
Velta með er-
lend bréf eykst
VELTA innlendra aðila með erlend
verðbréf í september nam 19,6 millj-
örðum króna og er sú mesta sem ver-
ið hefur frá upphafi, að því er fram
kemur í Morgunpunktum Kaup-
þings í gær. Alls námu kaupin 13
milljörðum og sala 6,6 milljörðum
króna. Viðskipti með erlend hluta-
bréf hafa aukist mikið frá því í júní á
þessu ári. Þær tölur sem þar hafa
hækkað mest eru tölur um viðskipti
með hlutdeildarskírteini í erlendum
verðbréfasjóðum, en hluta af aukn-
ingunni má rekja til stofnunar nor-
ræna hlutabréfasjóðsins Nordic
Growth Fund í eigu Kaupþings.
Tatung tölvur eru hágæða framleiðsla og þekktar
fyrir gæði og endingu. Allar Tatung tölvur sem seldar
eru í Griffli eru framleiddar og að fullu samsettar
í verksmiðjum í Hollandi samkvæmt ströngustu
gæðastöðlum og eru með 3ja ára ábyrgð
Þessa dagana er sérstakt tilboð á Tatung tölvum.
Við bjóðum tölvurnar á frábæru verði og Tkaupbæti
geturðu valið einn af þessum þremur gripum:
cLitaprentari frá Hewlett Packard
Geislaskrifari 8x4x32x frá Hewlett Packard
■ Stækkun í 19" skjá
TATUNG 550 MHz
«• AMD K6 550 MHz m/512 KB Cache
örgjörvi
«* 17’ hágæða 100 Hz skjár með áhangandi
hátölurum
** 15 GB Ultra-DMA harður diskur
<* 50x geisladrif
«• 64 MB SDRAM vinnsluminni
ATI 8 MB skjákort AGP, TV OUT
«• Creative SoundBlaster 64 bita hljóðkort
«• 56 K faxmódem
•* Tvö USB tengi
•* Frf internetáskrift
•* Windows lyklaborð og mús
** Windows 98 SE uppsett og á geisladiski
<* 3ja ára ábyrgð á varahlutum og vinnu
TATUNG 800 MHz
«* Intel Pentium III 800 MHz Coppermine örgjörvi.
«* 17’ hágæða 100 Hz skjár með áhangandi
hátölurum
** 30 GB Ultra-DMA harður diskur frá IBM
•* 12x DVD drif frá Hitatchi
■* 128 MB SDRAM 100 MHz vinnsluminni
•* D.V.M.T. skjákort allt að 32 MB
«* Creative SoundBlaster compatible 64 bita hljóðkort
«• 56 K faxmódem
* Tvð USB tengi
«* Frf internetáskrift
«* Vandað Windows lyklaborð með úlnliðsstuðningi
og skrunmús
<* Windows 98 SE uppsett og á geisladiski
«* 3ja ára ábyrgð á varahlutum og vinnu
109« 900,,- stgr. m/vsk
mmilr stgf- m/vsk