Morgunblaðið - 28.10.2000, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ IU M LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 45
■u
|L
Segulmeðferð
sögð skila árangri
Tlie New York Times Syndieate.
Associated Press
Áfengið er varasamt, en það er þreytan lfka.
Preytan verri
en áfengi
The Daily Telegraph.
NOTKUN seguls í meðferð sjúk-
dóma nýtur aukinnar athygli þessa
dagana þar sem rannsóknir sýna
fram á að segulsvið hafa áhrif á
líkamann. Fjöldi rannsókna við
þekkta háskóla hafa allar sýnt fram
á takmörkuð en hugsanlega mikil-
væg not fyrir segul í meðferð nokk-
urra kvilla. En vísindamennirnir
eru varkárir þótt þeii- séu líka
bjartsýnir.
„Sumir telja að seglar séu plat og
dettur ekki í hug að kanna mögu-
leikann. En ég held að þeir lofi góðu
og séu þess verðir að vera rannsak-
aðir frekar,“ segir lyfjafræðingur-
inn Nicole Parker sem var í hópi
vísindamanna við Háskólann í
Tennessee í Bandaríkjunum sem
komst að því að seglar geta dregið
úr þrálátum verk í mjaðmagrind.
Vísindamenn hafa í þrem öðrum
tilfellum greint frá því að rannsókn-
ir sem þeir hafi gert - við Browns-
háskóla í Providence, Baylor-
læknaskólann í Houston og háskól-
ann í Virginíu sem allir eru í Banda-
Aukaverkanir
geta verið
varasamar
ríkjunum - hafi leitt í ljós að
stöðuseglar, þ.e. seglar sem eru
festm á ákveðinn stað á líkamanum,
geti linað sárauka og flýtt fyrir því
að sár grói.
Tvær aðrar rannsóknir hafa sýnt
að seglar geta enn fremur komið að
notum við meðferð geðsjúkdóma.
Vísindamenn við Yale-háskóla í
Bandaríkjunum komust nýverið að
því, að eins konar segulmeðferð
dragi úr hljóðofskynjunum geð-
klofasjúklinga og rannsókn við há-
skólann í Flórída, Gainsville, leiddi í
ljós að segulörvun hjálpar fólki með
sjúklegt þunglyndi.
I öllum þessum tilfellum er enn
ekki ljóst hvernig seglar hafa þau
áhrif sem þeir virðast hafa. „Vera
kann að segulkrafturinn hafi áhrif á
sársaukanema í liðamótum eða
vöðvum eða lækki sársaukatilfinn-
inguna í heilanum,“ segir dr. Carlos
Vallbona, prófessor í heimilislækn-
ingum, sem var í hópi þeirra er
unnu að rannsókninni við Baylor-
læknaskólann.
En sumar rannsóknir hafa ekki
leitt í ljós nein áhrif af segulmeð-
ferð. Til dæmis varð niðurstaðan úr
rannsókn, er gerð var við Iækna-
miðstöð í Prescott í Arizona í
Bandaríkjunum, sú, að segull drægi
ekki að neinu marki úr þrálátum
verkjum í mjóbaki.
Þá getur segulmeðferð haft
óæskilegar aukaverkanir.Vísinda-
mennirnir við Brown-háskóla kom-
ust til dæmis að því að sterk seg-
ulsvið hafa greinileg áhrif á
einstakar frumur og breyta skipti-
mynstri þeirra. Slíkt gæti verið
mjög hættulegt fyrir þroska fóst-
urs, einkum á fyrstu mánuðum
meðgöngu, segir Vallbona. „Það er
ekki ráðlegt fyrir vanfærar konur
eða fólk með gangráð að fara í seg-
ulmeðferð, “sagði hann.
VAKI tiltekinn einstaklingur í 17 til
19 klukkustundh’ kann víðbragðs-
flýtir hans að skerðast meira en
hefði sá hinn sami neytt áfengis um-
fram það sem leyfilegt er til að við-
komandi megi aka bifreið. Þessi varð
alltjent niðurstaða rannsóknar sem
vísindamenn í Ástralíu stóðu að
nýyerið.
í fjölmörgum tilraunum sem gerð-
ar voru til að kanna áhrif svefnleysis
á fólk kom í ljós að þeir sem voru
hvfldar þurfi voru allt að helmingi
lengur að bregðast við en þeir sem
drukkið höfðu áfengi. A óvart kom
að heldur hóflegur skortur á svefni
hefði svo mikil áhrif, en algengt er að
t.a.m. vaktavinnufólk sé að störfum í
17 til 19 klukkustundir samfleytt.
Að sögn Andrews Williamson,
sem er sálfræðingur og starfar við
New South Wales-háskóla í Sydney í
Astralíu, hafa fáar rannsóknir farið
fram á tengslum viðbragðflýtis og
svefnleysis. „Algengt er að fólk vaki
í 16 tíma samfleytt af margvíslegum
ástæðum. Niðurstöður okkar gefa til
kynna að eftir svo langa vöku komist
þreytan á það stig að það geti haft
áhrif á frammistöðu viðkomandi og
þar með ógnað öryggi hans og ann-
arra,“ segir Williamson.
Um ályktanir sínar sagði hann
þetta: „Yfirvöld í löndum heims ættu
að íhuga gerð staðla til að ti-yggja að
fólk sem vakað liefur í 18 klukku-
stundir eða lengur iðki ekki athæfi
sem felur í sér áhættu á borð við að
keyra bifreið, stjórna flugvél eða vél-
búnaði.“
í rannsókninni voru áhrif svefn-
leysis borin saman við áhrif áfengis-
drykkju. í henni tóku þátt 39 manns
á þrítugs- og fertugsaldri. Niður-
staðan vai’ð sú að eftir 18 tíma vöku
var mæld frammistaða þem-a jafn-
slæm eða verri en eftir að þeir höfðu
drukkið áfengi sem mældist 50 mg á
hverja 100 ml blóðs, sem er það
mark sem almennt er miðað við á
Norðurlöndum.
Golfið gott fyrir hjartað
New York. Reuters.
ÞEIR sem leggja á það stund
telja sig flestir vita það - það
er hollt að iðka golf. Nú hefur
þýsk rannsókn leitt í ljds að
íþróttin henti sérlega vel fyr-
ir þá sem þjást af hjartveiki.
Hjartasjúklingar verða að
Ieita hins gullna meðalvegar
þegar þeir reyna á sig.
Áreynslan á hjartað þarf að
vera hæfileg þannig að hún
styrki það án þess að álagið á
vöðvann verði of mikið. Þar
sem golf nýtur vaxandi vin-
sælda, ekki síst á meðal hinna
eldri, ákváðu nokkrir vís-
indamenn við Háskólann í
Giessen í Þýskalandi að
rannsaka hvort þessi íþrótt
væri ekki hentug fyrir þá
sem tekið hafa hjartasjúk-
dóma.
Svo reyndist vera.
í rannsókninni tóku þátt 20
menn með hjartveiki. Hjart-
slátturinn var mældur og
hann borinn saman við átta
bráðhressa menn sem einnig
tóku þátt. í ljós kom að við
það að iðka golfið varð hjart-
sláttur hinna hjartveiku sam-
Associated Press
Flest virðist mæla með golfinu.
bærilegur við þann í hinum
heilbrigðu. Samt virtist þessi
hreyfing, livorki reyna um of
á hjartað né kalla fram
hækkaðan blóðþrýsting.
Dr. Martin Unverdorben
og félagar hans gera grein
fyrir rannsókninni f október-
hefti tímaritsins Medicine
and Science in Sports and
Exercise. Þar segir m.a:
„Þótt það orð fari af golfi að
það sé fremur huggulegt
áhugamál en alvarleg íþrótt
sem reynir á líkamann er því
engu að síður þannig farið
að iðkun þess hefur veruleg
áhrif á þol viðkomandi."
I skýrslu sinni segir hópur
Unverbotens einnig að golf
þjálfí samhæfingu vöðva og
hafi jákvæð álirif á Ifkams-
burð auk þess sem íþróttin
auki félagslegt samneyti iðk-
enda.
TEN6LAR
Medicine and Science
in Sports and Exercise
:www.msse.org/
Innöndun insúl-
íns vekur vonir
Jcrúsalcm. AP.
VONIR um að sykursýkisjúklingar
geti í framtíðinni andað að sér insúl-
íni og hætt að nota sprautur hafa
glæðst eftir að vísindamenn greindu
frá því að innöndun insúlíns virðist
virka í að minnsta kosti tvö ár.
Hingað tfl hafa vísindamenn aðeins
rannsakað hversu áhrifaríkt og ör-
uggt er fyrir sjúklinga að anda að
sér insúlíni í þrjá mánuði. Niður-
stöður þeirra rannsókna lofuðu
góðu en ekki var vitað hver niður-
staðan yrði ef aðferðin yrði notuð
lengur.
Niðurstöður fyrstu könnunarinn-
ar á langtímaáhrifum innöndunar
insúlíns benda til þess að innöndun
sé jafnáhrifarík og sprautun og hafi
ekki skaðleg áhrif á lungun. Næsta
stig rannsókna miðar að því að stað-
festa þessar niðurstöður sem voru
kynntar á ráðstefnu Evrópusam-
taka um sykursýkirannsóknir í
Jerúsalem.
Sérfræðingar segja að sumir syk-
ursýkisjúklingar, til dæmis í þeim
tilfellum þegar líkaminn framleiðir
ekki insúlín, muni líklega þurfa að
búa við sprautur áfram en gætu
með þessum hætti dregið úr dagleg-
um sprautuskammti. Eleazar Shafr-
ir, við Hadassah-háskólasjúkrahús-
ið í Jerúsalem, sem ekki tók þátt í
rannsókninni, segist efast um að
innöndun insúlíns geti komið alveg í
staðinn fyrir sprautuskammta.
Sagðist hann telja að önnur að-
ferð en sprautun gæti helst komið
að gagni fyrir börn sem eiga á
hættu að fá sykursýki. Sum börn
hafa sykursýkimótefni og með-
fædda þætti sem auka hættuna á að
þau fá sjúkdóminn og hafa rann-
sóknir bent til þess að insúlín-
skammtar geti komi í veg fyrir sýk-
ingu.
Innöndunarlyf gætu líka komið
að notum fyrir sjúklinga sem þurfa
að fá insúlínskammt í skyndilegu
neyðartilfelli, sagði Shafrir. Um það
bil 150 milljónir manna - um það bil
2% heimsbyggðarinnar - þjást af
Associated Press
Ör þróun á sér stað í þá átt að
sykursýkisjúklingar verði síður
háðir sprautunum.
sykursýki. Sérfræðingar telja að
fjöldi tilfella muni fara yfir 250
milljónir um 2025 vegna aukinnar
offitu og óheilsusamlegra lifnaðar-
hátta.
MAT A UMHVERFISAHRIFUM - NIÐURSTÖÐUR
Opið hús á Nesjavöllum
laugardaginn 28.október 2000 - frá ki. 13 til 18.
Orkuveita Reykjavíkur býður almenningi að koma og kynna sér
niðurstöður á mati umhverfisáhrifa Nesjavallavirkjunar - áfanga 4b.
Tekið verðurámóti gestum í gestaskála laugardaginn 28.október
frá kl. 13 til 18, þar sem niðurstöður um mat á umhverfisáhrifum
virkjunarinnar munu liggja frammi. Einnig er hægt
að kynna sér niðurstöðurnar á vefsíðu
Verkfræðistofu Guðmundar og
Kristjáns sem hefur slóðina
www.vgk.is -
Orkuveita
Reykjavíkur