Morgunblaðið - 28.10.2000, Side 46
46 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 47
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík.
Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SJÁLFSTÆÐISBARÁTTA
FÆREYINGA
LÖGMAÐUR Færeyja, Anfinn
Kallsberg, hefur boðað til
þjóðaratkvæðagreiðslu um
einhliða sambandsslit Færeyja og
Danmerkur. Lögmaðurinn tilkynnti
þetta eftir að slitnaði upp úr viðræð-
um landanna um aukinn sjálfs-
ákvörðunarrétt Færeyinga, en þær
stóðu í sjö mánuði. Líkur eru á því
að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram
1 Færeyjum á næsta ári.
Viðræður Færeyinga og Dana hafa
gengið stirðlega svo að segja frá
upphafi. Færeyingar hafa skellt
skuldinni á dönsku ríkisstjórnina,
einkum vegna þess að hún hafi ekki
viljað viðurkenna Færeyjar sem ríki
í þjóðréttarlegum skilningi. Danir
hafa hins vegar sagt að kengurinn í
viðræðunum hafi stafað af fjárfram-
lögum danska ríkisins til Færeyinga.
Þeir hafi viljað fá meiri og lengri
greiðslur en ríkisstjórnin og þingið
séu reiðubúin að leggja af mörkum.
Danir hafa lýst sig reiðubúna til að
viðurkenna sjálfstæði Færeyja en
aðeins svo fremi að þeir samþykki
fullveldissáttmála, sem samkomulag
landanna verði um, áður en gengið
er til þjóðaratkvæðagreiðslu. Danir
hafa ekki viljað tryggja ríkisframlög
til Færeyja nema í fjögur ár, en
Færeyingar hafa viljað fá mun
lengra aðlögunartímabil. Samkvæmt
þessu er ásteytingarsteinninn fyrst
og fremst sá hversu mikil og hversu
lengi fjárframlög Dana verða til
Færeyinga.
Miðað við ummæli Anfinns Kalls-
bergs eftir viðræðuslitin verður ekki
lögð fram mótuð tillaga í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni um með hvaða
hætti skuli standa að sambandsslit-
unum, heldur aðeins spurt um hvort
Færeyingar séu hlynntir sambands-
slitum eða ekki.
Óljóst er hvaða áhrif það hefur á
færeyska kjósendur að vita ekki með
hvaða hætti sambandsslitin verði og
vita ekki um valkosti. Hins vegar
virðist ljóst að bæði Færeyingar og
Danir gera ráð fyrir því að það sé að-
eins tímaspursmál hvenær Færeyjar
öðlast fullt sjálfstæði. Það hlýtur að
vera hægt að ná samkomulagi um
fjármálin leggi báðir aðilar sig fram.
Það væri dapurlegt ef aldagömlu
sambandi Færeyinga og Dana yrði
slitið í óvináttu. Islendingar hafa
boðizt til að leggja sitt af mörkum til
að stuðla að samkomulagi þessara
frændþjóða. En til þess þarf að koma
fram ósk af beggja hálfu. Færeying-
ar lögðu fram slíka ósk á sínum tíma
en danska ríkisstjórnin taldi enga
þörf á málamiðlunum Islendinga.
Færeyingar eiga að sjálfsögðu
fullan rétt á sjálfstæði sér til handa
standi hugur þeirra til þess. Það er
höfuðatriðið. En æskilegast er að
sjálfsögðu að sjálfstæði eyjanna
verði með fullri sátt þeirra og Dana.
MENGUNARVANDINN í SJÓNUM
ORÐATILTÆKIÐ „lengi tekur
sjórinn við“ er ein af þeim fullyrð-
ingum, sem ekki á lengur við. Mengun-
arvandi samtímans hefur séð fyrir því
en mengunin í hafinu stafar af margs
konar ástæðum. Afleiðingar mengun-
arinnar eru líka margvíslegar, m.a.
hækkun meðalhita á jörðinni. Því er nú
spáð að meðalhitinn hækki á næstu
eitt hundað árum, ef ekkert verður að
gert, um 6 stig á Celsíus, fari úr 15
gráðum í 21 gráðu. Afleiðingarnar
yrðu gífurlegar og alvarlegar.
Veerle Vandeweerd, sem er fram-
kvæmdastjóri alheimsáætlunar um
varnir gegn mengun sjávar frá landi,
var stödd hér í vikunni vegna ráð-
stefnu sem hér var haldin. I samtali
við hana á miðsíðu Morgunblaðsins í
gær kemur fram að um 80% af meng-
unarvanda sjávar megi rekja til frá-
rennslis frá landi. 20% stafa af úrgangi
vegna athafna á sjó. Hún segir að
heimshöfin komi öllu mannkyni við og
ástand sjávar fari versnandi. Hún
hrósar Islendingum hins vegar fyrir
að hafa látið að sér kveða um þessi mál
og vill að í framtíðinni taki fyrirtæki
ekki síður þátt í fyrirbyggjandi að-
gerðum vegna mengunar í höfunum en
ríki. Oft og tíðum hafi stórfyrirtæki á
alþjóðlegan mælikvarða úr meiri fjár-
munum að spila en ríkisstjórnir í
hverju landi.
Eins og framkvæmdastjórinn segir
kemur ástand heimshafanna öllum
jaðarbúum við og ekki sízt þeim sem
byggja afkomu sína jafnmikið á sjáv-
arfangi og við íslendingar. Á ýmsum
stöðum er kerfisbundið sleppt í sjóinn
t.d. kjarnorkuúrgangi, svo sem í
Dounray og Sellafíeld. Komizt hefur
verið að samkomulagi um að loka stöð-
inni í Dounray í síðasta lagi árið 2006
og í Sellafield var á síðasta ári sam-
þykkt tillaga um að árið 2020 yrði því
markmiði náð að losun geislavirkra
efna frá stöðinni í umhverfí sjávar yrði
ekki „merkjanlega yfir náttúrulegum
bakgrunnsgildum“, eins og það var
orðað á sínum tíma.
Það er brýn nauðsyn á því að íslenzk
stjórnvöld séu árvökul og á verði
vegna losunar mengandi efna í hafíð,
ekki sízt geislavirkra efna. Kjarnorku-
slys í hafinu getur haft ófyrirsjáanleg-
ar afleiðingar fyrir Islendinga og
kippt grundvellinum undan sölu á öllu
sjávarfangi úr Norður-Atlantshafi.
Bæði losun geislavirkra efna og meng-
un frá kjarnorkukafbátum fyrrverandi
Sovétríkja, sem liggja við norðanverð-
an Noreg og Múrmansk, eru veruleg
ógn við heilbrigði sjávarfangs í norð-
urhöfum. Það er því aldrei nægilega
varlega farið í umgengni um þessi
hættulegu efni sem eiga allra sízt
heima í sjónum.
Það er nauðsynlegt að þjóðir heims
bindist samtökum um að hreinsa upp
kjarnorkuúrgang, sem hent hefur ver-
ið, einfaldlega vegna þess að fjármuni
hefur skort til þess að eyða honum.
Slík hreinsun kostar mikið fé en hún er
nauðsynleg eigi þessi jörð að verða
byggileg áfram um ókomnar aldir.
Demókratar uggandi vegna fylgistaps forsetaefnis þeirra á vesturströnd Bandaríkjanna
Dagbókarblöó
Nader gæti reynst
Gore skeinuhættur
Demókratar eru ugg-
andi yfír fylgistapi AIs
Gores í Kaliforníu, og
raunar á allri vestur-
strönd Bandaríkjanna.
Það helgast þó ekki ein-
vörðungu af vinsældum
George W. Bush, eins
og fram kemur í grein
Aðalheiðar Ingu
Þorsteinsdóttur, held-
ur hefur neytendafröm-
uðurinn Ralph Nader
átt meira fylgi að fagna
en búist var við. Þegar
svo mjótt er á munum
milli Gores og Bush
getur hvert prósentu-
stig sem fellur í skaut
Naders skipt sköpum.
Ralph Nader, forsetaframbjdðandi Græningjaflokksins, á fréttamannafundi í Washington.
Reuters
FRAMBJÓÐENDURNIR
í forsetakosningunum í
Bandaríkjunum leggja
mikla áherslu á að vinna
sigur í Kalifomíu, enda á ríkið einn
fimmta hluta þeirra 270 kjörmanna
sem þarf til að ná kjöri. A1 Gore,
frambjóðandi demókrata, þótti í
upphafi kosningabaráttunnar nær
ömggur um sigur í ríkinu, en vin-
sældir Ralphs Naders, frambjóð-
anda Græningjaflokksins, hafa
vaxið á kostnað varaforsetans, og
gætu orðið til þess að repúblikan-
inn George W. Bush sópaði til sín
kjörmönnunum 54 í Kaliforníu.
Gore hafði allt að 10% forskot á
Bush í Kalifomíu fyrir mánuði, en í
nýjustu skoðanakönnunum er hann
aðeins 5-6% yfir. Samkvæmt
könnun Pubhc Policy Institute,
sem birt var í vikunni, nýtur Gore
stuðnings 44% líklegra kjósenda,
en það er 4% minna en í könnun
stofnunarinnar fyrir mánuði. Bush
stendur í stað með 39% fylgi, en
Nader bætir við sig 2% og hefur
nú 6% fylgi. Þegar svo lítill munur
er á fylgi Gores og Bush er ljóst að
fylgi Naders getur haft úrslita-
áhrif. Eftir að könnunin var gerð
hafa stuðningsmenn Naders auk
þess hert baráttuna með auglýs-
ingaherferð og fundahöldum, og
því má búast við að neytendafröm-
uðurinn eigi eftir að vinna enn
frekar á.
Clinton kallaður til?
Ymsir frammámenn úr röðum
demókrata í Kaliforníu hafa opin-
berlega lýst yfir áhyggjum af því
að dregið hafi saman með Gore og
Bush í ríkinu. „Við verðum sífellt
taugatrekktari yfir þessu,“ hefur
The New York Times eftir Paul
Maslin, sem unnið hefur að fylgis-
könnunum fyrir Demókrataflokk-
inn. „Þrenns konar ógn steðjar að
okkur: [repúblikanar] eiga digrari
kosningasjóði, þeir virðast hafa
meira baráttuþrek og við þurfum
að keppa við Ralph Nader,“ sagði
Maslin.
Bush hefur varið um 30 dögum í
Kaliforníu síðan í júní og áformar
fleiri heimsóknir. Gore hefur hins
vegar ekki komið til ríkisins síðan
20. september og fleiri heimsóknir
eru ekki á dagskrá fyrir kosning-
arnar, sem fara fram 7. nóvember.
Þá hafa repúblikanar að undan-
fömu varið um 1,5 milljónum doll-
ara á viku í sjónvarpsauglýsingar í
Kalifomíu, en demókratar hafa
enn ekki auglýst í sjónvarpi þar.
Garry South, einn af helstu stuðn-
ingsmönnum Gores í ríkinu, hefur
gagnrýnt hvernig staðið hafi verið
að kosningabaráttunni. Átelur
hann varaforsetann fyrir að hafa
eingöngu notað ríkið til fjáröflun-
ar, en látið hjá líða að halda þar
fundi og koma fram á samkomum.
Ýmsir hafa óskað eftir að gripið
verði til þess ráðs að fá Bill Clint-
on til að taka þátt í kosningabar-
áttunni í Kalifomíu, til að styðja
við bakið á Gore og frambjóðend-
unum til þingsins. „Það yrði mikill
léttir fyrir þá sem hafa áhyggjur
að sjá Clinton," sagði Bob Mulhol-
land, talsmaður Demókrataflokks-
ins í Kaliforníu við AP. „Eftir að
hann hefði ferðast í tvo daga um
ríkið væri búið að slá öll vopn úr
höndum repúblikana," bætti Mul-
holland við.
Þó em skoðanir skiptar um þátt-
töku forsetans í kosningabarátt-
unni. Stjórnmálaskýrendur era á
einu máli um að það geti reynst
Gore tvíeggjað sverð að tengja sig
við hann, bæði vegna þess að það
gæti gefið til kynna að varaforset-
inn væri ekki nógu sterkur fram-
bjóðandi einn síns liðs, og vegna
þeirra hneykslismála sem loðað
hafa við Clinton.
Einnig tvísýnt um úrslit í
hinum Kyrrahafsríkjunum
En Kalifornía er ekki eina ríkið
á vesturströndinni þar sem Gore á
í vök að verjast. Stuðningsmenn
varaforsetans höfðu vænst þess að
hann ynni auðveldan sigur í Oreg-
on- og Washington-ríki, en Bush
hefur notið meiri stuðnings þar en
búist hafði verið við, auk þess sem
Ralph Nader hefur veitt Gore
harða samkeppni frá vinstri.
AP
A1 Gore, varaforseti Bandarikjanna, ræðir við börn í Charleston í
Vestur-Virginíu þar sem hann var á kosningaferðalagi í gær.
Demóki-atar fóra með sigur af
hólmi í Washington-ríki og Oregon
í þrennum síðustu kosningum, og
repúblikanar hafa ekki einu sinni
átt möguleika síðan 1984. Nú hefur
Gore hins vegar ekki öraggt for-
skot samkvæmt skoðanakönnun-
um. „Norðvestumíkin á Kyrrahafs-
ströndinni era mikilvægur
vígvöllur," sagði Ken Lisaius, tals-
maður Bush, við AFP-frétta-
stofuna. „Og við teljum okkur eiga
talsverða möguleika á sigri.“
Mikill efnahagsuppgangur hefur
verið í þessum ríkjum, ekki síst
vegna vaxtar hátækniiðnaðar, og
er talið að fulltrúum atvinnulífsins
ói við umhverfisverndarboðskap
Gores og hallist því frekar að
Bush. Umhverfisverndarsinnar era
þó einnig öflugir á vesturströnd-
inni og svo gæti farið að þeir fylktu
sér í stórum stíl að baki Nader,
sem vill ganga enn lengra en Gore
í umhverfisvernd. Varaforsetinn er
því í vandasamri stöðu - ef hann
reynir að höfða til atvinnulífsins
hættir hann á að tapa stuðningi
umhverfisverndarsinna, og öfugt.
Demókratar á Kyi-rahafsströnd-
inni hafa bragðist við með því að
reyna að sannfæra kjósendur um
að greiði þeir Nader atkvæði sitt
séu þeir einungis að auka sigurlík-
ur Bush. Auglýsingar þess efnis
hafa verið spilaðar á útvarpsstöðv-
um, og bæklingum hefur verið
dreift í háskólum, þar sem náms-
menn era hvattir til að „eyða ekki
atkvæði sínu“ á Nader. Hefur
Demókrataflokkurinn í þessu notið
stuðnings ýmissa verkalýðsfélaga,
umhverfisverndarsamtaka, kven-
réttindahreyfinga og samtaka sem
berjast fyrir réttindum minnihluta-
hópa. Þá hafa þekktir demókratar
á borð við blökkumannaleiðtogann
Jesse Jackson, leikarann Robert
Redford og kvenréttindakonuna
Gloriu Steinem verið fengnir til að
koma fram í auglýsingum og á
fundum til stuðnings Gore.
Varaforsetaefni demókrata, Jos-
eph Lieberman, hefur einnig reynt
að höfða til stuðningsmanna Nad-
ers. Gore hefur þó sjálfur, að ráði
aðstoðarmanna sinna, forðast að
vega að honum, þar sem það gæti
dregið athyglina frá hinum raun-
veralega andstæðingi, George W.
Bush. Hefur Gore látið nægja að
lýsa því yfir að hann óttist ekki
samkeppnina og að Nader sé „góð-
ur maður“. Hann hefur jafnframt
aukið áhersluna á umhverfismál.
„Ég mun berjast af lífi og sál fyrir
vernd umhverfísins," sagði Gore á
kosningafundi í Washington-ríki í
vikunni.
Auk Kaliforníu, Oregon og
Washington gæti Nader reynst
Gore skeinuhættur í fjóram ríkjum
sem talist hafa öragg vígi demó-
krata: Maine, Michigan, Minnesota
og Wisconsin. Stuðningsmenn Gor-
es binda þó vonir við að ógnin af
Nader dvíni þegar nær dregur
kjördegi. „Við trúum því að hefð-
bundnir kjósendur okkar snúi aft-
ur heim til föðurhúsanna þegar
þeir sjá hversu mjótt er á mun-
um,“ sagði Paul Berendt, leiðtogi
demókrata í Washington-ríki við
AFP.
Nær Nader
5% markinu?
Ralph Nader á vitanlega enga
möguleika á að verða kjörinn for-
seti, en nú virðist ekki útilokað að
hann nái því marki sem telst sigur
fyrir frambjóðendur annarra
flokka en demókrata og repúblik-
ana: að ná 5% fylgi á landsvísu. Þá
ætti Græningjaflokkurinn rétt á
fjárstuðningi frá alríkisstjórninni.
Ótti demókrata virðist hafa
hleypt nokkru kappi í Nader. „Þeir
hafa undanfarið hálft ár virt mig
að vettugi, svo við fögnum vitan-
lega þessari auknu athygli," sagði
hann í viðtali við The New York
Times. Nader vísar því á bug að
hann sé að „stela atkvæðum" frá
demókrötum og fullyi'ðir að margir
af stuðningsmönnum sínum myndu
ekki hafa fyrir því að kjósa ef hann
væri ekki í framboði.
Nader er 66 ára gamall. Hann
lauk lagaprófi frá Harvard-háskóla
árið 1958 og sjö áram síðar varð
hann þjóðkunnur fyrir bók sína,
Unsafe at any speed, þar sem hann
sýndi fram á að öryggi margra
bandarískra bifreiða væri ábóta-
vant. Síðan hefur hann verið eins
konar holdgervingur neytenda-
verndar í Bandaríkjunum. Neyt-
enda- og umhverfismál era enda
efst á stefnuskrá hans fyrir kosn-
ingarnar, en hann er einnig harður
andstæðingur alþjóðlegra við-
skiptastofnana og fríverslunar-
samninga, og sakar bæði Gore og
Bush um að láta stjórnast af hags-
munum stórfyrirtækja.
Engin ógn af
Umbótaflokknum
Repúblikanar áttu við sama
vanda að etja í tveimur síðustu for-
setakosningum og demókratar nú.
Auðkýfingurinn Ross Perot hlaut
stuðning 18% kjósenda í kosning-
unum 1992 og fjóram áram síðar,
er hann bauð sig fram í nafni Um-
bótaflokksins, hlaut hann 8,4% at-
kvæða. Talið er að vinsældir Per-
ots hafi fyrst og fremst verið á
kostnað Repúblikanaílokksins.
Frambjóðandi Umbótaflokksins í
ár, Pat Buchanan, hefur hins vegar
varla mælst með 1% fylgi í
skoðanakönnunum.
Englar drekka stjörnur - hvað
skyldu þeirdrekka annað!
PAUL KLEE - Hlið á vanræktum garðinum.
Klee ritaði dagbækur og var sí-
skrifandi með myndum sínum,
lýsti afstöðu sinni, hugleiddi; leit-
aði. Hann gaf út Sköpunarjátn-
ingar sínar 1920. Fyrsta hálfan
annan áratuginn, eða fram að
fyrri heimsstyrjöld, gaf hann sig
eingöngu að teikningum, og þá
ekki sízt táknrænum myndum,
m.a. úr goðafræði, en nokkra síð-
ar uppgötvaði hann birtuna og þá
tóku olíumálverkin við. í tákn-
rænum myndum sínum minnir
Klee fremur en nokkur annar
stórmeistari á ýmis myndverk
Dalis, enda vora þeir samtíma-
menn og samleitendur í listinni.
En myndir hans minna þó aldrei
á þær fjarstæðukenndu, dalísku
myndblekkingar sem Dali sjálfur
kallaði ráðgátur.
Klee gerði sér áreiðanlega
fulla grein fyrir því að innan
hauskúpu sérhvers manns er ein-
hvers konar leikhús þar sem fjar-
stæðukenndur súrrealismi
draumvökunnar tengist því frjóa
barnslega ímyndunarflæði sem
hann lagði sjálfur svo mikla
áherzlu á, sagði jafnvel að ekki
væri unnt að finna nýlistarþróun-
inni stað án þess hafa til hliðsjón-
ar myndlist bama og jafnvel van-
gefins fólks. Þar væri ekki sízt
hægt að komast að rótunum.
Sjálfur rakst hann á eigin myndir
frá blautu barnsbeini og taldi
þær þá merkustu verk sín, þótt
hann hefði lokið listnámi og starf-
að að myndlist um þónokkurt
skeið. Þessi barnslegi heimur
birtist honum m.a. í sirkusnum
sem hann hafði mikið dálæti á,
ekki síður en Picasso. Og það var
auðvelt að skilja hvers vegna,
þegar við sáum gamla
Moskvusirkusinn um kvöldið, en
hann var á ferðalagi til að lífga
upp á tilverana og kom sem betur
fór við í Edinborg. Klee sagði um
sirkusinn sem hann teiknaði og
múlaði og hugleiddi ekki síður en
það fjarstæðuleikhús sem býr í
sérhvers manns huga, Sirkusinn
bergmálar veröldina utan dyra.
Ur þessari hugarveröld barns-
ins spretta mörg verka Klees,
ekki sízt englamyndir hans; ein
þeirra heitir Englar drekka
stjörnur - og Klee bætir við: Eða
hvað skyldu þeir drekka annað!
Þess má þá einnig geta að Klee
teiknaði 1938 mynd af harmsögu-
legri fígúra sem hann kallar
Trúður; annað auga opið og bjart,
en hitt einungis tvö strik. Á víst
að merkja geðklofann í okkur öll-
um. Áður hafði hann gert tvær
litógrafíur um línudansara, eða
Seiltanzer 1923, önnur í rauðum
lit en hin svargráum, og sagði
hann að þetta fyrirbrigði sirkuss-
ins sem gengi á streng yfir
hyldýpið mikla minnti á lífið sjálft
og baslnáttúra mannsins við erf-
iðar aðstæður.
En það er fleira inni í höfðinu á
manninum en fjarstæðuleikhús
drauma og tákna því á einni
myndinni, sem einnig er litógraf-
ía frá 1923, er höfuð mannsins
teiknað eins og jörð með visnuð-
um fótum og allt snýst um það
sem er í höfði mannsins: konan
sem hann elskar og þau saman.
Þannig lýsir Klee sömu reynslu
og Þórbergur, þegar hugur hans
hafði ekki stundlegan frið fyrir
elskunni og allt þurfti að víkja
fyrir henni. Þessi mynd Klees
heitir Ástfanginn maður.
Klee var undh' áhrifum náttúra
og umhverfis eins og allir lista-
menn, einkum fyrst framan af, en
síðan rofna þessi tengsl að ein-
hverju leyti og myndirnar fljóta
frjálsar og fyrirmyndarlausar
eins og ský á himni. Þegai' á leið
hafði Klee þörf fyiir að losa sig
við næsta nágrenni og sneri sér
þá að englunum. Þeir lyftu hug-
anum frá brennandi jörð stríðs-
glæpamanna eins og hann lýsir í
myndum frá 1938, Feuer, Quelle
og Armer Engel frá 1939: Engill
á svörtum fleti, útlínurnar hvítar
og tryggja að hið svarta nái ekki
yfirhöndinni. Og frá sama ári er
einnig Englamyndin Wachsamer
Engel.
Það var 1914 sem Klee fór til
Túnis, ásamt August Macke, en
þá kvaðst hann hafa skynjað birt-
una á nýjan hátt og lýsir því í lít-
illi eftirminnilegri mynd frá höfn-
inni í Hamamed. Hún minnir
sterklega á litla vatnslitamynd
frá Lækjartorgi eftir Nínu
Tryggvadóttur; sama birta, sömu
litir. Eg veit þó ekkd hvort hún sá
þessa hafnarmynd Klees, tel það
afar ósennUegt vegna þess að all-
ar þær myndir sem ég hef minnzt
á eru í Búrgi-einkasafninu og
ekki endilega aðgengUegar öðr-
um en eigendum þess. Upp úr
þessari reynslu breytast myndir
Kiees og hann notar minna blek
og penna, en snýr sér að olíunni,
þótt teikningin fylgi verkum hans
enn sem áður. Þessa þróun má
sjá í fallegri mynd sem heitir
Svartur hálfmáni frá 1917, þar er
línan í ýmsum myndum, rauð ind-
versk sól; skip. Tveir heimar
fljóta saman, himinn og jörð; eða
eigum við heldur að segja hug-
mynd að himni og jörð.
í annarri mynd frá svipuðum
tíma, EyðUegging og von, sem
máluð er sama árið og Franz
Marc féll á vígstöðvunum blasir
við okkur hrynjandi veröld í eins
konar hálfkúbískum stfl, en þó er
von í óspilltum fyrirheitum
tungls, sólar og stjama. Þetta er
hin klofna veröld sem fylgir
myndskáldinu lengst af; og helzt
aldrei án vonar.
Það var eftir Túnisreynsluna
og uppgötvun birtunnai' sem
Paul Klee sagði, Litur hefur náð
tökum á mér... ég og liturinn, við
erum eitt. Ég er listmálari!
Það er með ýmsum hætti sem
listamenn uppgötva sj álfa sig;
sjálfa sig ogumhverfi sitt. En
umhverfíð er afstætt eins og allt
annað. Þess vegna er ástæða til
að staldra við þessa frægustu
setningu í Sköpunarjátningum
Klees, List endurtekur ekki það
sem er sýnilegt, en gerir það
sýnilegt.
M- 41