Morgunblaðið - 28.10.2000, Qupperneq 62
MORGUNBLAÐIÐ
62 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000______________
’ UMRÆÐAN
Arnarnesvogur verndaður
með 1.250 manna byggð
Uppdráttur að hugmynd Björns Ólafs arkitekts að bryggjuhverfi við
Arnarnesvog.
f Fasteignablaði
Morgunblaðsins sl.
þriðjudag var opnuvið-
tal við unglegan arki-
tekt, íslending búsett-
an í París. Þar lýsir
hann með fögrum orð-
um hugmyndum sínum
um stórfellda byggð á
miðjum Amarnesvogi,
sem mikilvirkir verk-
takar hafa nú uppi
áform um að gera að
veruleika.
Fjölbreytilegri en
flestir vogar
Lýsing arkitektsins
á verkefninu hefst
svona: „Arnarnesvogur í Garðabæ
er fjölbreytilegri en flestir vogar á
höfuðborgarsvæðinu. Þar kemur
margt til. Gálgahraun flæðir inn í
voginn að suðvestan og óvenjufalleg
fjara tekur við af hrauninu sunnan
hans. Vogurinn er víður eða um 1,6
Ajcn á breidd en benda má á að
breidd Kópavogs er aðeins hálfur
km. Glæsileg einbýlishúsabyggð er
á Arnarnesi norðaustan vogsins. Út-
sýni í norður yfir byggð og fjalla-
hring er í senn vítt og vinalegt. Mjög
lítil alda nær inn á voginn og
Hraunsholt veitir skjól fyrir land-
synningi. Helsta landslýti er hnign-
andi iðnaðarhverfi á miðri suður-
strönd vogsins, aðallega verkstæði
og vörugeymslur sem stinga mjög í
stúf við næsta umhverfi og Garðabæ
sem heild.“
Að vernda með tanga
Þennan fjölbreytileika vill arki-
tektinn nú betrumbæta með því að
gera voginn að tveimur vogum með
löngum tanga út miðjan voginn. Hér
er ekki um smánes að ræða heldur
umfangsmikinn skaga sem rúma á
um 1.250 manna byggð samkvæmt
kynningu væntanlegra verktaka.
Þar er að sögn arkitektsins um að
ræða: „lága byggð sem fellur vel inn
í landslagið enda er það aðalein-
kenni byggðar í Garðabæ sem eðli-
legt er að virða“. Hann
áréttar: „engin land-
spjöll eru gerð með
þessari byggð ... held-
ur verður allt þetta
svæði enn betur friðað
í framtíðinni". Til að
lýsa þessari lágu
byggð fylgja viðtalinu
myndir af 5 hæða hús-
um. Rúmlega ein Bol-
ungarvík, Olafsfjörður
eða Reyðarfjörður
hlýtur að flokkast sem
undarleg friðunarað-
gerð í Arnamesvogi
miðjum, þótt hann sé
1,6 km breiður. Það
kann að vera að manni
sem býr í París geti fundist það falla
inn í landslag vogsins, en fyrir okk-
ur sem búum við voginn er erfitt að
sjá samhengið. Við eigum einnig erf-
Garðabær
Við sem búum við vog-
inn, segir Asmundur
Stefánsson, höfum valið
staðinn til að njóta nátt-
úrunnar.
itt með að sjá að 5 hæða hús séu hin
dæmigerða lága byggð í Garðabæ.
Við höfum valið okkur búsetu vegna
nálægðarinnar við náttúruna og líf-
ríkið.
Friðsæld og fuglali'f
Arnarnesvogurinn er í dag frið-
sælt svæði með ríkulegu fuglalífi.
Vogurinn er grunnur og æðarfugl,
margæsir og fjöldi annarra fugla
unir sér á sænum. í fjörunni trítla
sendlingar, tildrur og lóuþrælar og
ótal fuglar aðrir. Það er unun að
ganga um fjörurnar og setjast á
stein eða grasbakka og fylgjast með
fuglalífinu. Grunnsævið sem gerir
fuglunum ætisleitina auðvelda gerir
það jafnframt ódýrt að fylla voginn
upp og breyta honum í byggingar-
land. Það er ekki bara auðvelt að
byggja upp nes út miðjan voginn.
Það er fátt þvi til fyrirstöðu að fylla
hann allan upp fyrir byggingar. Það
sama er auðvelt með aðra nálæga
voga, svo sem Kópavog sem er þurr
langt út á hverri fjöru eða þess
vegna Fossvoginn. Enginn hefur
enn sett þá hugmynd fram en ætli
hugmyndaríkir arkitektar og fram-
takssamir verktakar væru mjög
lengi að hugsa þá hugsum til enda?
Nes út miðjan Arnarnesvoginn, með
háreistri byggð, bryggjum og báta-
umferð, gæfi fuglunum lítið svig-
rúm. Þeir mundu eðli málsins sam-
kvæmt leita annað. Þetta annað
kann að vísu smám saman að verða
vandfundinn staður.
Eyjabakkar
Á liðnu sumri gengum við hjónin
inn á Eyjabakka sem mikið hafa
verið til umræðu síðustu misserin.
Það var fögur sjón, mikið graslendi í
stórfenglegri mótsögn við ógnvekj-
Ásmundur
Stefánsson
andi jökulinn. Flest bendir til þess
að náttúruverndarsjónarmið hafi nú
tryggt gæsunum griðland þar enn
um hríð. Mér varð hugsað til þess,
þegar ég las viðtalið við arkitektinn,
hvort náttúrusjónarmið ættu ein-
vörðungu við inni á hálendi. Einmitt
á Arnamesvogi og Álftanesi er meg-
inviðkomustöð margæsarinnar á
leiðinni frá Grænlandi til Evrópu.
Eyjabakkar nýtast henni ekki.
Kannski er þetta svæði einfaldlega
of nærri okkur til þess að við hugs-
um til þess.
Sótt af hafí
Við sem búum við voginn höfum
valið staðinn til að njóta náttúrunn-
ar. Þau hús sem standa næst strönd-
inni mega samkvæmt lóðaskilmál-
um ekki vera nema ein hæð til að
skyggja ekki á þau hús sem ofar
standa. Skipulagið miðar að því að
sem flestir fái notið yfirsýnar. Það
þykir mér skynsamleg ráðstöfun.
Enn eru víða á höfuðborgarsvæðinu
auðar spildur sem ætlaðar eru undir
byggingar. Fólk á þeim svæðum veit
að umhverfið á eftir að breytast. Það
er hins vegar alveg nýtt að sótt sé að
fólki af hafi. Ég þekki ekkert dæmi
um það hér á landi að byggð sé spillt
með því að reisa háhýsi úti í miðjum
sjó, þannig að trufli bæði aðra byggð
og raski bæði umhverfi og lífríki.
Varðveitum
voginn
Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að
íbúðarbyggð komi í stað
skipasmíðastöðvarinnar sem eins og
arkitektinn segir fellur illa að um-
hverfinu. Því fer hins vegar fjarri að
það sé ekki gerlegt nema að marg-
falda byggingarsvæðið í sjó fram.
Ibúðarbyggð á svæði skipasmíða-
stöðvarinnar mun ekki spilla nátt-
úru og hún mun ekki spilla aðstöðu
þeirra íbúa sem fyrir eru á svæðinu
eða þeirra sem nú eru að koma sér
fyrir í nýbyggingunum sunnantil við
voginn. Bæjaryfirvöld hafa enn eng-
ar ákvarðanir tekið í þessu efni og
ég treysti því að á þeim bæ muni
skynsemin ráða og þessum áform-
um verði ýtt út af borðinu. Við meg-
um ekki eyðileggja þær náttúru-
perlur sem við höfum við túnfótinn.
Við eigum að varðveita voginn og líf-
ríki hans.
Höfundur er framkvæmdastjóri
fslandsbanka-FBA
og íbúi við Amarnesvog.
Erum flutt
í Bæjarlind 1, Kópavogi
(Blátt hús)
sími 544 8001
fax 544 8002
netfang vefur@centrum.is
Verslunin Vefur
Og svo fór ég
að hugsa • •.
Og núna versla
ég bara
vítamín,
heílsunnar vegna
Apótekin
Helgi Hálfdanarson
Síðustu forvöð?
EIGUM við að trúa því, að
ráðamenn opinberra mála ætli
einu sinni enn að stofna gjör-
völlum uppeldismálum þjóðar-
innar í bráðan voða með
ábyrgðarlausri þrjózku sinni
gegn réttmætum kröfum kenn-
ara um boðleg kjör? Eru stjórn-
málamenn þeir einu sem sjá
ekki hvert stefnir? Eða sjá þeir
það og láta sér fátt um finnast?
Er þeim hundsama þó að sú
stétt þjóðfélagsins sem öllum
fremur þarf á úrvalsfólki að
halda sé svívirt með smánar-
kjörum og unnvörpum hrakin
frá því mikilvæga starfi sem
hún hefur menntað sig til?
Kæra þeir sig kollótta þó að upp
vaxandi kynslóð Islendinga sé
gerð að umhirðulausum vand-
ræðalýð? Geta stjórnmálafor-
kólfar kinnroðalaust dillað sér
yfir því, að íslenzk þjóð sé með-
al hinna ríkustu í heimi, en tími
ekki að sjá börnum sínum fyrir
menningar-uppeldi? Sjá þeir
ekki, að til þess að vel megi
farnast þarf umfram allt að
skipa kennarastéttina afbragðs-
fólki sem nýtur almanna-trausts
og virðingar? Er þeim fyrirmun-
að að skilja, að slíkt er óhugs-
andi nema kjör kennara verði
bætt, og ekki aðeins bætt, held-
ur stórbætt, og það án alls tillits
til annarra stétta? Þurfum við
að horfa upp á það ár frá ári, að
skólakerfið, grundvöllur hag-
sældar og hamingju þjóðarinn-
ar, sé tráðkað í svað, að sjálf
gróðrarstöð íslenzkrar menning-
ar sé brotin niður af vanhæfum
stjórnmálamönnum? Hvar á sá
ógæfuferill að enda?
Ef örlaði á hollum vilja, yrði
skjótt brugðið til úrbóta. Hver
veit nema nú séu síðustu forvöð
til bjargar íslenzku mennta-
kerfi, meðan kennarastéttin er
enn, þrátt fyrir allt, skipuð fjöl-
mörgu hæfu fólki, sem sinnir
erfiðu og vandasömu starfi af
þjóðhollum metnaði og fórnfúsri
alúð, en hlýtur að gefast upp og
hverfa á annan vettvang, ef ekki
rætist úr, og það verulega.
KOSTABOÐ
Alltab
afsláttur
Fagleg rábgjöf
Fullkomln tölvutelknun
Fyrsta flokks hönnunarvlnna
HÁTÚNI6A (I hósn. Förlx) SfMI: 552 4420