Morgunblaðið - 28.10.2000, Síða 79
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 7£
Matur og matgerð
Skonsur
Hvað eru skonsur? spyr Kristín Gests-
dóttir. Eru það þykkar pönnukökur með
natronbragði, sem seldar eru hér í búð-
um, eða mótuð mjúk ilmandi smábrauð,
sem oftast eru bökuð í bakaraofni?
HVAÐ er hvað? Ég held að eng-
inn Breti sé í vafa um hvað séu
skonsur, þótt skoskar skonsur
séu þekktastar. Enda er nafnið
komið frá Scone í Skotlandi þar
sem krýningarathafnir fóru fram,
en fólk þar í sveit hélt mikið upp á
skonsur. Sagt var að hæfileikar
húsmæðra í Skotlandi væru
metnir eftir gæðum skonsanna,
sem þær bökuðu. Talið er að
skoskir landnemar hafi haft upp-
skriftina með sér til Ameríku.
Algengast er að baka skonsur í
bakaraofni, en þær eru líka
stundum bakaðar beint á hellu
eins og flatbrauð og hafðar
þynnri en ella. Móðir mín gerði
það oft. Þær skonsur sem hér eru
uppskriftir að eru svokallaðar
skoskar skonsur, en þær eru bak-
aðar í bakaraofni. Bestar eru þær
nýbakaðar en þær má frysta og
hita við notkun. Skonsur eiga að
vera þykkar og þær á að kljúfa og
smyrja með smjöri og sultu.
Einnig er gott að borða ost með
þeim, ef þær eru ekki mjög sætar.
Deig í skonsur á ekki að hnoða
mikið, það á að vera frekar lint og
er flatt út um 2 sm þykkt. Til eru
riffluð mót um 6 sm í þvermál en
líka má skera undan glasi. Úr
hvorri eftirfarandi uppskrifta
fást um 20 skonsur.
Skonsur með
kúrennum
__________500 g hveiti_______
________4 msk. lyftiduft_____
__________2 msk, sykur_______
__________'h msk. salt_______
__________125 g smjör________
-___________?egg_____________
__________2'h dl mjólk_______
_________1 dl kúrennur_______
1. Setjið hveiti, lyftiduft, sykui-
og salt í skál, skerið smjörið í
þunnar sneiðar og myljið saman
við mjölið (ég lét hrærivélina hafa
fyrir því).
2. Blandið saman eggjum og
mjólk og hrærið út í. Hrærið ekki
mikið. Blandið kúrennum út í og
hnoðið lauslega saman.
3. Leggið deigið á hveitistráð
borð og fletjið þykkt út (2 cm),
skerið undan skonsumóti eða
glasi, um 6 cm í þvermál. Leggið
á bökunarpappír og penslið með
eggjarauðu og mjólk.
4. Hitið bakaraofn i 210°C,
blástursofn í 200°C, bakið í um 15
mínútur.
5. Kælið skonsumar örlítið og
kljúfið. Borðið með smjöri og
sultu.
Ostaskonsur
__________500 g hveiti________
1 Vi tsk. salt
_________5 tsk. lyftiduft_____
1 lítil dós kotasæla___
_________1 dl matarolía_______
__________2 dl kalt vatn______
___________1 stórtegg_________
150 g fínt rifinn mjólkurostur, sú
tegund sem ykkur hentgr
1. Setjið hveiti, salt og lyftiduft
í skál, bætið kotasælu, matarolíu,
eggi og vatni út í.
2. Rífið mjókurostinn og setjið
saman við. Hnoðið lauslega sam-
an, þetta á að vera frekar lint
deig. Bætið í vatni eða hveiti ef
með þarf.
3. Leggið deigið á hveitistráð
borð og fletjið út um 2ja cm
þykkt. Skerið undan skonsumóti
eða glasi um 6 sm í þvermál og
raðið á bökunarpappír á bökunar-
plötu. Penslið með eggjarauðu og
mjólk.
4. Hitið bakaraofn í 210°C,
blástursofn í 200°C og bakið í um
15 mínútur.
5. Kælið skonsurnar örlítið,
kljúfið og borðið með smjöri.
Þrír efstir og jafnir
á Haustmótinu
1 Guðni Stefán Pétursson 1710 '/$ 117 119 112 12 19 TF '// V4é 16 'ÁJ 8,5 57,5 94
2 Guðfríður L Grétarsdóttir 1760 118 113 // 19 1 110 14* 4 17 vJ '/} 7 58 -2
3 Páll Siqurðsson 1615 vi %10 V29 111 12 115 6 117 114 14 '/.’ 7 56,5 21
4 Halldór Garðarsson 1845 yú 12 115 V4,» 16 15 14’ 12 '/J 3 v2 6,5 59,5 -32
5 Bjarni Maqnússon 1795 vl '/} ’/ú Vi* 114 4 115 112 '/} y} V4* 6,5 59 -16
6 Ólafur Kjartansson 1865 14 118 ■/,’ yj 4 V16 13 111 18 1 '/.} 6,5 59 -61
7 Kristján Ö Elíasson 1710 13 115 v£ 8 10 114 110 vJ 2 19 ’/.4 6,5 57 -13
8 Áslauq Kristinsdóttir 1595 vi v,1 vJ> 17 14" '/j2 vJ vi 6 -/.'* 116 6 59,5 22
9 Andrés Kolbeinsson 1585 117 y20 114 2 V4’° 1 112 vi '/.4 7 V4ð 6 57,5 8
10 Rúnar Gunnarsson 1455 vi v) 113 114 yj 2 7 15 118 117 6 54 35
11 Aldís Rún Lárusdóttir 1395 20 116 14* 3 V? 117 113 6 '// ’/.’* 118 6 50 97
12 Harpa Inqólfsdóttir 1550 V 14 V41 1 13 Vz* 9 5 V4H 116 115 6,5 58 U
13 Baldvin Þ Jóhannesson 1480 17 2 10 15 v20 118 11 16 117 14® 114 5,5 48 -25
14 Valdimar Viðar Leifsson 1325 16 119 9 10 5 7 116 118 3 117 13 5 51 29
15 Stefán Inqi Arnarson 0 V 7 4 113 117 3 5 110 141* 118 12 5.5 50,5 -18
16 Siqurjón Kjærnested 1260 w 11 17 V20 11B 7* 14 113 V4U 12 8 4 44 -11
17 Atli Freyr Kristjánsson 1565 9 1 116 118 15 11 V20 3 13 14 10 3 52,5 -39
18 Gylfi Davíðsson 0 2 6 V20 17 16 13 V19 14 10 15 11 2 47,5 0
19 Hlynur Hafliðason 1315 V41* 14 1 14" 0 v20 T’e H“ H° H° H“ 2 27 -5
20 Guðjón Heiðar Valqarðsson 1985 111 T* TI8 Tle Th tI6 T’’ H* H“ H* H° 1 28 5 1
SKAK
Tafl f él ag
Reykjavíkur
HAUSTMÓT TR
1.-25. okt. 2000
SÆVAR Bjarnason, Sigurður
Daði Sigfússon og Bragi Þorfinns-
son urðu efstir og jafnir í meist-
araílokki á Haustmóti TR. Þeir
hlutu allir l'A vinning og þurfa að
tefla aukakeppni um titilinn Skák-
meistari Taflfélags Reykjavíkur
árið 2000. Aukakeppnin hefst
þriðjudaginn 31. október. Guðni
Stefán Pétursson sigraði örugg-
lega í opnum flokki, hlaut 8V2 vinn-
ing. Næst komu Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir og Páll Sigurðsson
með 7 vinninga Lokaúrslitin í
meistaraflokki má sjá í meðfylgj-
andi töflu. í opnum flokki varð röð
efstu manna sem hér segir.
1. Guðni Stefán Pétursson 814 v.
2. Guðfríður L. Grétarsdóttir 7 v.
3. Páll Sigurðsson 7 v.
4. -8. Halldór Garðarsson, Bjarni Magnús-
son, Ólafur Kjartansson, Kristján Ö Eiías-
son, Harpa Ingólfsdóttir &A v.
o.s.frv.
Skákstjórar voru Ríkharður
Sveinsson og Ólafur Ásgrímsson.
Þátttaka í Hausmótinu var hin
minnsta um áratugaskeið og ein-
ungis var keppt í tveimur flokkum.
Lárus Knútsson sigraði á
forgjafarmóti
Lárus Knútsson sigraði á fyrsta
forgjafarskákmóti TR sem fram
fór 26. október. Keppendur voru
aðeins sex og fékk Lárus matar-
boð á Grillhúsinu við Tryggvagötu
í verðlaun. Úrslit urðu annars sem
hér segir:
1. Lárus Knútsson 814 v. af 11
2. Ríkharður Sveinsson 8 v.
3. Sigurður Daði Sigfússon 614 v.
o.s.frv.
Keppendur fá tímaforgjöf sem
miðast við íslensk skákstig þannig
að 50 stiga munur gefur eina mín-
útu í forgjöf. Hámarks munur er 3
- 7. Næsta forgjafarmót verður
haldið 2. nóvember.
Hraðskákmót TR
Hraðskákmót TR 2000 fer fram
29. október og hefst kl. 14. Verð-
launagripir fyrir efstu þrjú sætin.
Þátttökugjald er kr. 400,- fyrir fé-
lagsmenn 16 ára og yngri (kr.
600.- utan TR og kr. 200.- fyrir fé-
lagsmenn 14 ára og yngri (kr. 300
utan TR).
Atskákmót Reykjavíkur á
mánudag
Atskákmót Reykjavíkur verður
að þessu sinni teflt á tveimur
mánudagskvöldum, en ekki um
helgi eins og hingað til. Mótið
hefst mánudaginn 30. október kl.
19:30 og þá verða teflar fjórar at-
skákir (25 mínútur). Mótinu lýkur
svo mánudaginn 6. nóvember og
þá hefst taflmennskan einnig kl.
19:30, en þá verða teflar þrjár síð-
ustu umferðirnar.
Titilinn Atskákmeistari Reykja-
víkur hlýtur sá Reykvíkingur sem
bestum árangri nær. Mótið er
jafnframt Atskákmót Hellis, en
Atskákmeistari Hellis verður sá
félagsmaður sem bestum árangri
nær.
Verði tveir jafnir í baráttunni
um annanhvorn titilinn verður
teflt tveggja skáka hraðskákein-
vígi. Verði jafnt að því loknu verð-
ur tefldur hraðskákbráðabani.
Verði fleiri en tveir jafnir verður
tefld einfold umferð, hraðskák.
Verði enn jafnt, þá bráðabani. All-
ir velkomnir!
Verðlaun: 1. verðlaun kr. 10.000,
2. verðlaun kr. 6.000, 3. verðlaun
kr. 4.000.
Þátttökugjald er kr. 1.000 fyrir
fullorðna og kr. 700 fyrir 15 ára og
yngri.
Núverandi atskákmeistari
Reykjavíkur er Sigurður Daði Sig-
fússon. Bragi Þorfinnsson er at-
skákmeistari Hellis. ^
Skákmót á næstunni
29.10. TR. Haustmótið-hraðskák
29.10. SA. Hausthraðskákmót
30.10. Hellir. Atskákmót RVK
2.11. TR. Forgjafarmót
3.11. SA. Atkvöld
3.11. SI. Unglingam.mót Islands
Daði Örn Jónsson
JOLASTIMPLARNIR KOMNIR
15% STGR AFSLÁTTUR AF STIMPLUM AÐEINS I DAG, LAUGARDAG
[§k^= Óðinsgötu 7
vupnnr
§> Sími 562 8448
Innköllun vegna
rafrænnar skráningar hlutabréfa
Mánudaginn 6. nóvember 2000 verða hlutabréf Nýherja
hf. skráð rafrænt hjá Verðbréfaskráningu íslands hf.
Lokað verður fyrir viðskipti með hlutabréf félagsins á
Verðbréfaþingi íslands þann dag.
Vegna rafrænu skráningarinnar eru hlutabréf í Nýherja
hf. hér meó innkölluð í samræmi við ákvæði laga um
rafræna skráningu hlutabréfa og rafræna eignarskráningu
réttinda yfir þeim hjá Verðbréfaskráningu íslands hf.
koma þeim á framfæri innan þriggja mánaða frá síðustu
birtingu innköllunar þessarar í Lögbirtingarblaðinu við
fullgilda reikningsstofnun sem hefur gert aðildarsamning
við Verðbréfaskráningu íslands hf.
Athygli hluthafa er vakin á því að hin áþreifanlegu hlutaþréf
félagsins verða ógilt sjálfkrafa og því ekki þörf á að skila
þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á því að ferli
rafrænnar skráningar hefur engin áhrif á möguleika
hluthafa til að eiga vióskipti með bréf sín í félagnu.
Hér með er skorað á alla eigendur hlutabréfa Nýherja hf.
að ganga úr skugga um að eignarhald þeirra sé réttilega
fært f hlutaskrá félagsins nieð fyrirspum til skrifstofu
Nýherja að Borgartúni 37,105 Reykjavík. Komi í Ijós við
slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber
eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu innan
þriggja mánaða frá síðustu birtingu innköllunar þessarar
í Lögbirtingarblaðinu.
Aðrir sem eiga takmörkuð réttindi í ofangreindum
hlutabréfum, s.s. veðréttindi, eru jafnframt hvattir til að
Nánari upplýsingar um rafræna skráningu hlutabréfa er
að finna á www.vbsi.is. Hluthafaskrá Nýherja hf. veitir
upplýsingar um hlutafjáreign og svarar spurningum í
síma 569 7712.
NÝHERJI
Borgartún 37
105 Reykjavík
Sími: 569 7700
www.nyherji.is