Morgunblaðið - 28.10.2000, Blaðsíða 81
MORGUNBLAÐIÐ
Árnað heilla
ardaginn 28. október, Sverr-
ir Ólafsson, yflrmaður
flæknirannsókna við
rannsóknastofur Breska
símafélagsins. Hann dvelur í
Grænuhlíið 14, Reykjavík
um þessar mundir, en tekur
á móti vinum og vanda-
mönnum í Brautarholti 30 á
á milli kl. 18 og 21 í dag.
BRIDS
llmsjnn (iiiOniiindur I'áll
Arnarson
ÞU ert í vestur í vörn
gegn þremur hjörtum eftir
opnun suðurs á veikum
tveimur.
Suður gefur; NS á
hættu.
Norður
* G986
v G75
* ÁKG106
Vestur
* ÁKD104
v D3
♦ K754
+ D8
Vestur Norður Austur Suður
2 hjörtu
2 spaðar 3 hjörtu Pass Pass
Pass
Byrjunin lofar góðu: Þú
kemur út með háspaða og í
ljós kemur að makker á
einn, en suður þrjá. Þú
tekur fyrstu þrjá slagina
og makker kallar fyrst í
tígli, en hendir svo laufí.
Hvert er framhaldið?
Makker virðist eiga
tígulósinn, svo þar er
fjórði slagur varnarinnar,
en hvar er sá fímmti?
Trompið er eina vonin og
það er nóg að austur eigi
hjartatíuna. Þú leggur nið-
ur tígulkóng ...
Norður
a G986
v G75
♦ 9
* AKG106
Vestur Austur
a AKD104 a 7
» D3 v 104
♦ K754 4 ÁDG83
+ D8 a 97543
Suður
A 532
» ÁK9862
4 1042
A 2
• •• og lætur makker um
framhaldið. í þessu tilfelli
leyfir hann þér að eiga
slaginn og þú spilar þá
spaða, sem makker tromp-
ar með tíunni. Þar með
verður hjartadrottningin
slagur. En hugsanlega á
austur aðeins tvo hunda í
hjarta og þá væri ekki
skynsamlegt að segja
sagnhafa frá trompdrottn-
ingunni með því að spila
spaðanum. Austur á að
leysa það mál með því að
yfírtaka tígulkónginn og
spila aftur tígli. Ef suður
er með ÁK10 sjötta í
trompi gæti hann kosið að
svína fyrir drottninguna í
austur. Þetta er vörn sem
kallar á nána samvinnu.
DAGBÓK
Morgunblaðið/Kristján
Þessir duglegu krakkar á Akureyri héldu hlutaveltu á
dögunum og söfnuðu þannig 4.544 krónum sem þeir
hafa afhent Rauða krossinum á Akureyri. Á myndinni
eru Bergþóra Sveinsdóttir, Arnar Logi Þorgilsson og
Gyða Ólafsdóttir.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Ásdís
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 5.845
kr. til styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Hild-
ur Hlíf Sigurkarlsdóttir, Rúna Björg Vilhjálmsdóttir
og Eydís Asa Þórðardóttir. Á myndina vantar Freyju
Jökulsdóttur.
Sk\k
llmsjóii llelgi Ass
Grólarsson
Hvítur á leik.
KÆFINGARMÁT eru að
öllu jöfnu eitt af því fyrsta
sem byrjendum er kennd um
mátstef. Þetta sígilda mát-
stef kemur sjaldan upp og
sérstaklega í skákum sterkra
stórmeistara. Það kemur þó
fyrir og er staðan dæmi um
slíkt þegar sigurvegarar 3.
alþjóðlega mótsins í Þórs-
höfn í Færeyjum áttust við.
Hvítt hafði rússneski stór-
meistarinn Aleksander
Grischuk (2606) gegn koll-
ega sínum Ruslan Ponoma-
riov (2630) frá Úkraínu. 26.
Dg8+! Hxg8 27.
Rf7#. Skákin ber
sóknarskákstíl
Grischuk fagurt
vitni: 1. e4 Rf6 2.
e5 Rd5 3. d4 d6 4.
RÍ3 g6 5. Bc4 Rb6
6. Bb3 Bg7 7. a4 a5
8. Rg5 e6 9. f4
dxe5 10. fxe5 c5
11. c3 cxd4 12. O-
0-0-0 13. cxd4
Rc6 14. Rf3 f6 15.
Rc3 fxe5 16. Bg5
Dd717. dxe5 Rxe5
18. Rxe5 Hxfl +
19. Dxfl Dd4+ 20.
Khl Dxe5 21. Bd8 Dc5 22.
Re4 Db4 23. Rg5 Kh8 24. Df7
Bd7 25. Bxe6 Hxd8 og nú er
staðan á stöðumyndinni
komin upp.
Ólympíumótið í skák
verður sett í Istanbúl í Tyrk-
landi í dag kl. 10. Fyrsta um-
ferð hefst síðan klukkan 15.
Hannes HUfar Stefánsson
leiðir íslenska karlalandsliðið,
en Guðfríður Lilja Grétars-
dóttir fer fyrir kvennaliðinu.
LJOÐABROT
GRÁTITTLINGURINN
Ungur var ég, og ungir
austan um land á hausti
laufvindar blésu Ijúfir,
lék ég mér þá að stráum.
En hretið kom að hvetja
harða menn í bylsennu.
Þá sat ég ennþá inni
alldapur ó kvenpalli.
Nú var trippið hún Toppa,
tetur á annan vetur,
fegursta hross í haga,
og hrúturinn minn úti.
Þetta var allt, sem átti
ungur drengur, og lengi
kvöldið þetta hið kalda
kveið ég þau bæði deyði.
Jónaa Hallgrímsson.
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 81
ST J ÖRJYUSPA
eftir Franees Drake
*
SPORÐDREKI
Þú ert öflugur einstaklingur
og vel til forystu fallinn, en
mörgum finnst erfitt að
kynnast þér persónulega.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Það er um að gera að láta
félagsmál til sín taka, ef
áhugi og tími eru fyrir
hendi. Fylgstu með nýjung-
um svo þú verðir ekki á eft-
ir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þótt einkamálin séu þýðing-
armikil, verður þú að læra
að skilja í milli þeirra og
starfsins. Láttu ekki gamlar
tuggur slá þig út af laginu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júnf) Wi
Stattu af þér alla gagnrýni á
starf þitt, því þú veist að þú
ert á réttri leið og þegar öll
kurl koma til grafar munt
þú standa með pálmann i
höndunum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Leyfðu hjartanu og sköpun-
arþránni að ráða ferðinni
um stund. Það mun hleypa
nýju lífi í starf þitt og þú
munt koma öllum, jafnvel
sjálfum þér, á óvart.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það skiptir máli að sýna
menningu og trú annarra
sanngjarna tillitssemi, en
líka að vita, hvenær fram-
andi siðir taka út yfir allan
þjófabálk.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) (fifiL
Hikaðu ekki við að tjá vini
þínum tilfinningar þínar í
hans garð. Það mun hreinsa
andrúmsloftið og þið standið
báðir betur að vígi á eftir.
Vog rrx
(23. sept. - 22. okt.) 4'a
Láttu ekki fljótfærnina ná
tökum á þér. Sérstaklega
skaltu gæta þín í fjármálum
og best að halda svo fast um
budduna að engu sé eytt í
óþarfa.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.) MK
Láttu ekki öfund samstarfs-
manna þinna draga þig nið-
ur á þeirra pian. Þinn er ár-
angurinn og þú átt að njóta
hans á meðan hann stendur.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) AO
Það er eitthvað sem vefst
fyrir þér á vinnustað þínum.
Farðu í gegnum málin og
athugaðu hvaða breytinga
er þörf til þess að þú náir
árangri.
Steingeit „
(22. des. -19. janúar) 4K
Þú hefur byr í seglin þessa
stundina, en verður líka að
vera viðbúinn veðrabrigð-
um. Aðeins þannig áttu ein-
hverja möguleika á sigri.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Stundum er sannleikurinn
miklu tilþrifaminni en þú
áttir von á. Láttu það ekki
valda þér vonbrigðum, held-
ur vera þér lærdómur.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það eru miklar breytingar í
gangi í kring um þig.
Reyndu að festa hönd á
þeim og vera hluti af þeim í
stað þess að streitast á móti.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni visindafegra staðreynda.
FRETTIR
Gönguferð á
Keili með FÍ
FERÐAFÉLAG íslands stendur
fyrir gönguferð sunnudaginn 29.
október á Keili á Reykjanesskaga.
Keilir stendur stakur og áberandi
og þaðan er góð útsýn yfir Reykja-
nesskagann og allt vestur á Snæ-
fellsnes og inn til landsins til Þóris-
jökuls og Skjaldbreiðar. Uppi á
fjallinu er gestabók, sem sjálfsagt
er að rita nafn sitt í. Keilir er 378
m hár og hæðaraukning á göngu
um 280 m, segir í fréttatilkynningu.
Gönguleiðin upp og niður er 8-9
km og áætlað að hún taki 4-5 klst.
Fararstjóri í þessari ferð verður
Sigrún Huld Þorgrímsdóttir og
þátttökugjald er _ 1.500 krónur.
Brottför er frá BSÍ og Mörkinni 6
kl. 10.30 á sunnudagsmorgun.
Astmadagur
fyrir almenning
ASTMADAGUR fyrir almenning verð-
ur haldinn í dag, laugardaginn 28. októ-
ber, á Hótel Loftleiðum kl. 14 til 16.
Fundinn heldur Félag íslenskra
lungnalækna, Félag íslenskra ofnæm-
islækna í samvinnu við Astma- og of-
næmissamtökin á íslandi og Glaxo'-*^
Wellcome.
Á fundinum fjallar Unnur Steina
Björnsdóttir, sérfræðingur í ofnæmis-
lækningum og dósent við HÍ, um hvað
astmi sé, mismunandi orsakir, einkenni
og hvað gerist í astmakasti. Sigurveig
Þ. Sigurðardóttir, sérfræðingur í
barnalækningum, fjallar um astma hjá
börnum. Gunnar Guðmundsson, sér-
fræðingur í lungnalækningum, fjallar
um meðferð astma og síðan mun Bald-
ur Frederiksen astmasjúklingur segja
frá þvi hvernig það er að lifa með
astma. Einnig verður boðið upp á önd-
unarmælingar á staðnum.
„Astmi er algengt vandamál og eiÓ; "
4-5% íslendinga með astma. Astmi er
mun algengari hjá börnum og hefur
tíðnin t.d. þrefaldast hjá börnum á
Vesturlöndum undanfarna áratugi. í
könnun sem gerð var hérlendis fyrir
nokkrum árum reyndust 18% barna
yngri en 20 mánaða vera með astma,
28% fjögurra ára barna og 13% 8 ára
barna. Margir þekkja ekki einkennin
og vita ekki að um astma er að ræða,“
segir í fréttatilkynningu.
Húðsj úkdómaíæknir
Hef opnað læknastofu í Húðlæknastofunni, Smáratorgi I.
Tímapantanir í síma 520 4444.
Baldur Tumi Baldursson
dr.med. sérfr., í húðsjúkdómum
jljmœlisþcikkir
Eg þakka öllum þeim, sem heiðruðu mig á
85 ára afmœlisdegi mínum með skeytum og upp-
hringingum.
Guð blessi ykkur öll.
Karl Helmut Bruckner Kortsson, Hellu.
! i Elsku Sara oksins ertu komin til okkar
BYRJAR LAUGARD. 28. OKT.
mo • 1 ^ Vegamótastíg 4, I kJ . sími 562 5252
Málningar-
dagar
10 lítrar af Jotaproff
innimálningu
HÚSASMIDJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is