Skírnir - 01.01.1908, Síða 92
92
Erlend tíðin4j.
fimmfaldur á við þann, er þeir hafa undir höndum, fólkafjöldinn sjö-
faldur; en landherinn tiu sinnum minni. Ur því að Þjóðverjar eru
eins og 10 móti 1 á landi, þá er ekki nein ógegnd að vér sóum
það öflugri á sjó, sem svarar 2 móti 1.
Jafnvel vorir mestu og frægustu friðarpostular, svo sem aðrir
eins menn og Richard Cobden, John Morley og W. E. Gladstone,
voru eða eru gallharðir á því, að minni yfirburði á sjó en hér segir
megum vér ekki láta oss lynda. --
Þeir hafa yfirleitt tekið uudir það, beztu menn Breta, sem W.
T. Stead ritstjóri sagði í vetur, að fyrir hvern einn höfuðorustu-
dreka, sem Þjóðverjar stofnuðu til, yrði Bretar að leggja kjöl að
tveimur.
En þeim ægir kostnaðurinn, og þykir sárt, að verða að fresta
hans vegna ár frá ári /msum stórum nauðsynlegum umbótum öðr-
um, þar á meðal nymæli um ellistyrk handa öllum vinnandi mönn-
um, er kosta mundi um 13 miljónir pd. sterl. En 32 milj. pd.
sterling og vel það er varið til herskipastólsins um árið, eins og
nú stendur; það er sama sem hátt upp í 600 milj. kr.
Þeir mega nokkuð sjálfum sér um kenna, Bretar, er Þjóð-
verjar gera þeim geig. Þeir gerðu sér fyrir fám missirum hinn
fræga vígdreka Orag hinn mikla, með nýju lagi, og svo vel víganr
að langt bar af öðrum herskipum sjálfra þeirra og þá annarra
þjóða því frenmr. En þar með gerðu þeir önnur herskip öll hálf-
ónyt, með því að aðrar þjóðir voru ekki seinar á sér að taka upp
sama lagið, fyrst og fremst Þjóðverjar, og er alls ekki við það
etjandi minni háttar skipum í höfuðorustum.
Það sem knúið hefir Þjóðverja öðrum þræði til þessa stórræðis,
hins mikla flotaauka, er einangrunarviðleitni hinuar brezku stjórnar,
er þeim hefir orðið mikið ágengt með; og er kunnugra en frá þurfi
að segja, hve kænlega Játvarður konungur hefir komið þar ár sinni
fyrir borð og verið ærið fylginn sér. Þríveldasambandið stendur að
vísu enn í orði kveðnu, eti lítið um alúð orðið með ítölum og
Þjóðverjum að minsta kosti. Hin Norðurálfuríkin öll, þau er nokk-
uð eiga undir sér, eru komiti á band með Bretum eða í vinfengi
við þá.
Það varð úr, að Bretastjórn hugsar ekki til þetta árið að auka
venju fremur herskipagerð hjá sér. En færast heldur í auk-
ana að því liðnu, ef Þjóðverjar s/na ekki á sét neitt hik með
með sína ráðagerð.