Skírnir - 01.08.1914, Blaðsíða 46
270
íhald og framsókn.
öllu um koll kasta, né svo íhaldssamur, að hann grípií
aldrei til nýbreytni i einhverri grein. Og æskilegast væri:
að báðum öflunum væri svo farið í huga hvers manns,.
að í hvert sinn réði sú stefnan, sem betra hefði mál-
efni. En sjaldan er þessu svo varið, heldur hefir annað
aflið venjulega algerða yflrhönd, og setur blæ sinn á allar
gerðir mannsins um alllanga stund. En við breytt kjör
og ástæður skifta menn allajafna um lit i þessum efn-
um, og er einna kunnust sú breyting, er ungir menn,.
sem byrjað hafa á geystri framsókn, verða rammir íhalds-
menn með aldrinum. Þau og önnur atvik ráða nokkru
um þá hörðu dóma, sem feldir eru um stefnuskiftinga,
því að svo er talið að frjáls vilji ráði, og viðgeranlegir
dutlungar.
En ef nánar er að gáð, sést að þessi sálarlegu straum-
hvörf eru engin blind tilviljun, heldur skiljanlegar og
skýranlegar afleiðingar undangenginna orsaka, að menn
eru íhaldsmenn og breytingamenn af því, að lífskjörin
knýja þá, hvern að settu marki, en ekki að óskir þeirra
eða umhugsun ráði. Ef önnur hvor stefnan er alröng, þá
er ekki fylgismönnum um að kenna, heldur þeim lífskjör-
um sem leiddu til stefnumyndunar. Breytum lífskjörunum
og við breytum mönnunum. Með því að þekkja ástæður
og umhverfi einhvers manns eða stéttar, má gizka á með
sæmilegri vissu um aðaldrættina í lífsskoðun þess manns eða
þeirrar stéttar. Það eru náttúrulög, að menn leita mesta
hagnaðar með minstri fyrirhöfn. Til að skilja stefnur
manna verður að vera ljóst, hvað þeim er eftirsóknar-
verðast. Sumir menn telja, að hér sé rangt frá skýrt, og
mannlegar óskir dregnar niður i duftið. En svo er ekki.
»Mestur hagnaður« er ekki samur og jafn fyrir alla, er
hvergi nærri ætíð gull og gróði eða veraldargengi. Sumum
mönnum er dýrmætast að útbreiða sannleika og réttlæti,.
og óska engra launa, nema að fá að vinna fyrir þær hug-
sjónir. Aðrir starfa til að verðskulda hagstæðan dóm eft-
irkomendanna, og hinir þriðju til að fá inngöngu í hærra
andlegt lif hinumegin við gröf og dauða. Þessi fáu.