Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1916, Page 23

Skírnir - 01.08.1916, Page 23
•Skímir] Snorri Sturluson. 247 3£æmi til« (Sturl. II, 86—87). Þetta sýnir, að Snorri hefir komið með miklar vonir úr utanförinni. Hann hafði auk þess þegið nafnbætur og stórgjaflr erlendis og afstýrt yfir- vofandi hættu fyrir landið. Þegar hann reið frá skipi, og þeir tólf saman, höfðu þeir meir en tylft skjalda, alla mjög vandaða, og létu allvænt yfir sér. Þá hefir Snorra fundist hann kjörinn til að verða helzti maður landsins. En nú dynja vonbrigðin yfir hann. Honum er illa tekið á Suðurlandi og gerðir hans í Noregi lagðar út á versta veg. Liðveizla hans við Loft biskupsson fer út um þúfur, og það eru Haukdælir og Sighvatur bróðir hans, sem vaxa á þeim málum. Sturla bróðursonur hans tekur Solveigu, sem Snorri hafði ætlað sér, og heldur til fulls við hann. A þessum árum lærist Snorra meir og meir að beita öðrum mönnum fyrir sig og koma sem minst við sjálfur. Nýir tímar eru að hefjast, sem hann er ekki vaxinn. Hann byrjar á því að ýta undir Loft að drepa Björn Þorvald8son. Hann otar Jónssonum á Þorvald í Vatns- firði og hvetur þá beinlínis til þess að fella hann (Sturl. II, 111). En þegar þeir vinna ekki á, og Þorvaldur vill sættast við Snorra og mægjast við hann, þóttist Þorvald- ur skilja, »að Snorri mundi unna honum inna mestu sæmda, ef hann vildi vera skyldur þess að gera hvað er Snorri legði fyrir hann, hverigir sem í mót væri« (Sturl. II, 123). Var Þorvaldur þó einn hinn versti maður, er ,þá var uppi á Islandi. Skömmu síðar vingast Snorri við ÍÞórð bróður sinn, en eggjar hann jafnframt uppreistar gegn Sturlu Sighvatssyni (Sturl. II, 125). Eftir brennu Þorvalds í Vatnsfirði virðist Snorri hafa eggjað sonu hans á hendúr Sturlu (smbr. Sturl. II, 165), og a. m. k. lét bann á eftir vel yfir hinni alræmdu Sauðafellsför, en hitt er satt, að hvorki ber Snorri ábyrgð á aðförum Þorvalds- sona á Sauðafelli, né heldur mundi hann sjálfur hafa gert «ig sekan í slíku. En viljað mun hann hafa Sturlu feig- an, enda hefði margt öðruvísi skipast, ef Sturla hefði fallið þá. — Snorri giftir dætur sínar tvær Kolbeini unga
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.