Tíminn - 27.08.1874, Síða 2
58
gekk konungur ásamt hirð sinni upp í hús lands-
höfðingja, þar sem hann hafði áðsetur sitt, en (
lærða skólanum borðaði hann miðdagsmat meðan
hann dvaldi hjer. Um kveldið kl. 8 gekk Jónas
járnsmiður Helgason með söngflokk sinn upp í
garð landshöfðingjans, og nam staðar neðan við
tröppurnar, og söng þar kvæði til konungs, er
sira Matth. Jochumson hafði kveðið í þeim til-
gangij og sem byrjar þannig: «Velkominn yflr ís-
lands sæ» o. s. frv., ásamt tveim öðrum kvæðum
er sungin voru, eptir tilmælum konungs; þakkaði
konungur Jónasi Helgasyni og söngfjelaginu með
mörgum fögrum orðum fyrir þá ánægju er söng-
flokkurinn hefði sýnt honum. Þannig lyktaði við-
taka konungs að þessu sinni.
Þjóðhátíð Reykvíkínga var undirbúin af nefnd
manna er til þess hafði verið kosin, og hafði hún
valið Öskjuhlíð til samkomustaðar, rutt hana, sett
þar danssvið og ræðustól ásamt nokkrum tjöldum;
aðgöngumerki voru seld, með letri þessu á: 8 7 4
— ÍSLAND — 1 8 7 4. Dómkirkjan var prýdd
að innanverðu með blómskrauti af þeim sömu er
skreyttu bryggjuna, og öll uppljómuð af ljós-
um; 3 messur voru fluttar ( kirkjunni sunnu-
daginn 2. ágúst. Fyrsta messan hófst um morg-
uninn kl. 8 er dómkirkjuprestur Hallgrímur Sveins-
son flutti, þar næst flutti hámessuna biskup lands-
ins, og var konungur þar viðstaddur ásamtValdi-
mar syni sínum og annari sveit hans. Norðanvert
við kirkjuna á Austurvelli stóðu margir hermenn
af konungsskipunum í beinum röðum, upp á her-
manna hátt, til að veita konungi lotningu, þegar
hann gekk í kirkjuna. Mátti þar einnig heyra
hljóðfæra- og bumbuslátt. Viðhöfn þessi var
ítrekuð þegar konungur gekk úr kirkjunni að end-
aðri messugjörð, (mátti þá sjá mann á Austur-
velli). Auk konungs og hirðar hans gengu ótal
margir til kirkju útlendir yfirmenn og herforingja-
efni, admíráll Lagerkrantz, Svíar, Norðmenn, Eng-
lendingar, Þjóðverjar og Ameríkumenn. Þriðju
messuna flutti aptur dómkirkjupresturinn, er var
á enda um kl. 2V2. Um kl. 3‘/2 safnaðist mann-
fjöldinn er taka ætlaði þátt í þjóðhátíðinni á Öskju-
hlíð saman á Austurvelli til göngu inn á þjóðhá-
tíðarstaðinn1, er hófst þar kl. 4, stje bæjarfóget-
inn L. Sveinbjörnssen fyrst í ræðnstólinn og lýsti
yfir því með nokkrum orðum, að þjóðhátíð Reyk-
víkinga væri sett, þar eptir stigu ýmsir í ræðustól-
inu og hjeldu tölur fyrir ýmsum minnum, en söng-
fjelag Jónasar söng kvæði, eptir hverja ræðu;
alls voru kvæðin 8, og hafði sira M. Jochums- >
sonorktþauöll, nema eitt, erSteingrímurThorstein- !
son orti. Eptir kl. 7 kom konungur á Öskjuhlíð i
með sveit mikilli, landshöfðingja vorum og fleiri
yfirmönnum, var þá lostið upp fagnaðarópi, en
landfógeti Árni Thorsteinsson stje þá í ræðustól-
inn og bað þá konung þangað velkominn í nafni
fundarins, því ávarpi tók konungurinn blíðlega
með alúðarorðum til sinna kæru og trúu íslend-
inga. Einnig söng söngfjelagið við komu kon-
ungs, hið fyrnefnda kvæði: «Velkominn yfir ís-
lands sæ«. — Áður en konungur vor kom inn
á Öskjuhlíð hafði hann miðdegisveizlu í skólanum,
þangað hafði hann boðið embættismönnum vorum
og yfirmönnum af herskipunum m. fl., og voru
þar mörg minni drukkin, eitt af þeim var íslands
og um leið og það var drukkið, tóku herskipin
undir með 101 skoti. — Þnr menn af herskipinu
«Fylla», höfðu undirbúið skot á öskjuhlíð, er ríða
áttu af við komu konungs þangað, en þá vildi það
syls til, að þegar þeir höfðu hleypt af nokkrum
skotum, að hin næstu skot lustu áhendur tveggja
þeirra, svo þeir misstu sína hver, og voru íiuttir
til sjúkrahússins, og var daginn eptir tekin hin
skotna hönd af báðum, á öðrum um olnboga en
hinum um úlflið, og eru þeir nú á góðum bata-
vegi. Reykjavíkurbúar hafa skotið saman handa
þeim nokkrum hundruðum ríkisdala, auk þeirra er
konungur gaf. Mátti segja að hátíð þessi
væri blönduð sorg og gleði. — Eptir það var há-
tíðinni haldið áfram með ræðum og söngvum
fram að miðnætti. Munu þar hafa verið saman-
komin rúm 1400 manna?
Daginn eptir 3. ágúst kl. 1 fór konungur á
1) Báru þangab flestar konur og meyjar hinn íslenzka
þ]óbbúniDg vorn.