Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Page 104
104
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Tliorvaldsen: Uppkast aö sjálfsmynd. Blýantsteilcning. Einkaeign.
inn Willerup beðið hann að gera dálítið fyrir sig til minningar. Við
þessu hafði hann þagað og engu lofað, en þegar hann var farinn,
kom í ljós að hann hafði skilið eftir kassa, sem á stóð „Til Willerups",
og þegar kassinn var opnaður, lá þar brjóstlíkan, sem Thorvaldsen
hafði mótað, án þess Willerup yrði þess var“. Thiele hefur tekið
brjóstlíkanið af Willerup með í skrá sína um verk Thorvaldsens frá
1795. Þetta brjóstlíkan þekkist ekki nú, en ekki getur það fremur
en hitt verið það sem sýnt er á sjálfsmyndinni.
Enn eitt brjóstlíkan telur Thiele gert fyrir Rómarferðina, nefni-
lega af J. F. Struensee (1737—1772), og tekur það með í skránni
fyrir árið 1795, þótt hann greini frá því í ævisögunni á eftirfarandi
hátt: „... þegar Thorvaldsen fór frá Kaupmannahöfn 1796 hafði
hann þó eina pöntun með sér, og hún var um brjóstmynd af Struen-
see greifa. Þetta er okkur kunnugt um úr bréfi, sem vinur Thorvald-
sens, Peder Friis arkitekt (1763—1831) skrifaði 18. apríl 1818 í
meðmæla skyni með Freund. Þar stendur eftirfarandi: „Hr. etaz-