Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Page 58

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Page 58
62 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Mismunandi brattar e.t.v. íbjúgar keilur mætast í hnúð. Dökku línurnar á rauða grunninum virðast vera ómur af skorum eða förum líkt og á norsku fontunum. Hinsvegar vantar fontslokið af eðlilegum ástæðum. Eins og gefur að skilja hefur Hóladómkirkju aldrei vantað skírnarfont. Má í þvi efni vísa til bókar Guðbrands Jónssonar: Dómkirkjan á Hólum í Hjalta- dal, þar sem hann telur fram mörg dæmi úr fornbréfum.3 Fyrirmynda var því ekki vant. Þangað til annað sannast í þessu máli lít ég svo á að hér sé fundin mynd af íslenskum miðalda skírnarfonti, sú eina sem mér er kunnugt um. 2. Smeltur kross á flakki Halldór Laxness vatt eitt sinn skemmtilega uppá fræga setningu úr frægri bók. Leitið og þér munið finna allt annað en þér leituðuð að. Mér kom þetta snjallræði Halldórs í hug í fyrra er ég var að leita í skjalagögnum Mosfells- kirkju í Grimsnesi. Vegna viðgerðar á kirkjunni og alls þess umstangs sem því fylgir reyndi ég að kanna sögu hennar, einnig þeirra kirkna er á undan henni höfðu staðið og augum varð á komið í rituðum heimildum. Framar öllu var leitað í vísitasíugjörðum prófasta og biskupa. Nú, nú, þetta er töluvert verk og tíminn alltaf naumur. Maður les því oftast það í textanum er húsin varðar. Engu að síður er augunum gjóað á staði í textanum af einskærri forvitni. Einn daginn slæddist inn í ytra svið sjónarinnar setning, rituð með settlegri hendi Jóns í Villingaholti, sem vakti óskipta athygli: „Krossmark smelt yfir altari, vanséð hvort ekki er komið úr Skálholti. Cristall í hvorju horni bæði bak og brjóst. Vill biskupinn það kaupa fyrir annað þarflegt kirkjunni svo dómkirkj- an hafi sitt. Gjörðu þeir biskupinn M: Brynjólfur Sveinsson og séra Salómon Jónsson það kaup sín á milli kirknanna vegna að presturinn fékk biskupinum þann smeltan kross sem yfir altari var en biskupinn lofaði séra Salómoni aftur þremur aurum silfurs, 90 álnir að landsaurum, kirkjunni til ornamenta og það afgreiðist innan Michelsmessu 1642 og biskupinn taki kvittantiu hér í þersi bók handskriftaða af séra Salómoni og tveimur ærlegum vottum.”4 Vissulega var þetta forvitnilegt, en gat legið milli hluta ef annað hefði ekki komið til. Litlu seinna gekk ég á vit annars biskups, Þórðar Þorlákssonar. Árið 1679 er hann á Mosfelli og lætur rita í bók sína: „Krossmark smelt yfir altari með Crystall í hvorju horni, bæði bak og brjóst, hefur biskupinn M. Brynjólfur sál. Sveinsson til sín tekið og kirkjunni aftur innt 3 Ríksdali því af hans meining merkist verið hafa að sama krossmark muni hafa tilheyrt Skál- holtsdómkirkju. Er nú þetta krossmark í Tungufelli eftir biskupsins M. Þórð- ar Þorlákssonar meiningu.”5 Sá frægi Tungufellskross, kenndur við Tungu- fell í Hreppum (Þjms. 7032), er þá ættaður úr Skálholtsdómkirkju eftir allt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.