Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Side 64

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Side 64
68 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS augu: „Þetta eftirskrifað hefur biskupinn sálugi herra Þorlákur Skúlason gef- ið til kirkjunnar:” Siðan er talið upp rykkilin, silkidúkar í vængi við altari, altarisdúkur, koparstjaki og „sömuleiðis tillagði og gaf sá sálugi herra til kirkjunnar prédikunarstól sem kostað hafði 22 ríkisdali.” Að lokum er talið krossmark yfir kórdyrum. Síðan segir að „fyrirskrifaður prédikunarstóll með krossmarkinu” skyldi ,,koma fyrir hans legstað, hans kvinnu (þegar Guð léti þess auðið verða) og þeirra barna.”19 Orð þessi eru tekin úr úttekt Hólastóls árið 1657, þegar sonur Þorláks, Gísli biskup Þorláksson, er að taka við staðnum. í úttektinni eftir lát Gísla biskups 1685 segir svo: „Útlenskur prédikunarstóll, allur úthöggvinn og málaður, gef- inn af sál. herra Þorláki Skúlasyni, item himinn þar yfir, vandaður, tillagður af herra Gísla Þorlákssyni.”20 Þetta er svo endurtekið í úttekt 1692 og kostn- aðar einnig getið.21 Himninum sem Gísli biskup gaf er svo lýst í úttektum allar götur fram að því að Halldórukirkja er ofan tekin. Hér rekst hvaðeina á ann- ars horn. Því má spyrja hvað veldur. Jón Vídalín konsúll og kaupmaður fékk stólinn úr Fagraneskirkju en hún er lögð niður 1880. Að vondri venju hefur konsúllinn látið hreinsa hann upp, skafa hverja örðu og körtu af litaprýði burtu. Árið 1764 stendur nýgjörð kirkja í Fagranesi. Að vanda kemur prófastur í heimsókn, tekur út smíðina og lýsir kirkjunni og gripum hennar vandlega. Prédikunarstólinn segir hann vera: „úr þeirri gömlu dómkirkju með snikk- og bíldhúggerverki gylltur og farvaður. Honum fylgir og farvaður himinn af samslags verki.”22 Himinn Gísla biskups hefur því fylgt stólnum í Fagranes en Jón konsúll ekki hirt um að taka hann með. Vafalítið eru ummæli prófasts rétt. Árið 1759 er hann í Fagranesi og lýsir fallinni kirkju og úrsérgengnum prédikunarstól. Hann minnist ekkert á að himinn fylgi eða að stóllinn sé frá- sagnarverður að öðru leyti en því að hann „er farinn að gisna og ganga af nöglunum.”23 Nú er Halldórukirkja tekin niður 1757. Hvar var stóllinn á meðan? Á Hólum? Þór Magnússon þjóðminjavörður benti mér á gagn í málinu er varpað gæti Ijósi á þetta atriði. Valtýr Stefánsson ritaði Matthíasi Þórðarsyni bréf frá Ak- ureyri 22. febrúar 1915, þar sem hann er að lýsa fyrir Matthíasi ýmsu því er fyrir augu bar í Skagafirði sumarið áður og vakti áhuga hans. M.a. minnist hann á bænhúsið í Gröf, spyr hvort Matthías hafi séð það, segir það „býsna óhaggað” og bætir svo við: „Þar var og á flækingi prédikunarstóll sem var kostulegur — að mér fannst — af því hann var svo ómerkilegur. Sá fyrri pré- dikunarstóll gefinn þaðan einhverntíma að Fagranesi.”24 Hefur þá stóllinn verið í Gröf frá 1757 til 1764? Einhverjar sagnir hafa verið á kreiki í Gröf um að svo hafi verið. Hinsvegar er á orðum Valtýs að skilja að stóllinn sé í upp- hafi þaðan ættaður en nefnir ekki á nafn Hóladómkirkju. „Sá fyrri prédikun-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.