Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Qupperneq 65

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Qupperneq 65
AF MINNISBLÖÐUM MÁLARA 69 arstóll” segir hann líkt og stóllinn hafi verið þar löngum. Hallmælir þeim er hann sá í kirkjunni og telur hann yngri og ómerkilegri. Sá stóll er enn í Gröf. Ekki eru tök á því að skera úr um þetta nú. Hugsa mætti sér gang mála eitt- hvað á þessa leið: Þegar Halldórukirkja er tekin niður hefur þurft töluvert pláss fyrir öll áhöld hennar og skrúða. Ekki er víst að staður hafi verið fyrir það allt á Hólum og því komið fyrir á næstu bæjum, þar sem biskup átti inn- angengt. Ekki er mér kunnugt um eignarhald á Gröf í þennan tíma og get því ekkert fullyrt um það hvort Gísli biskup Magnússon hafi átt jörðina. Nú er Grafarkirkja lögð niður með konungsbréfi 1765.25 Hugsast getur að í stað þess að geyma stólinn hafi átt að nota hann í Gröf, en þegar ákveðið var að leggja kirkjuna niður, hafi biskup gefið hann að Fagranesi. Hitt verður að teljast öruggt að sjálfur prófasturinn í Skagafirði Jón Jónsson til Hofsstaða- þinga hafi vitað hvað hann var að segja í Fagranesi um prédikunarstólinn þar árið 1764. Aftur á móti minnist hann ekki á Gröf, enda þurfti það ekki máli að skipta, frægð stólsins var framar öllu tengd Hólum. Hvers verðum við nú vís, ef litið er til Hóla? Mjög mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að Guðbrandur biskup Þor- láksson tekur við Péturskirkju þá hann hefur embættisferil sinn. Þeirri miklu miðaldakirkju þjónaði hann í 53 ár. Segja má að kirkja og biskup féllu sam- tímis. í júnímánuði 1624 hné Guðbrandur niður úr slagi. Fimm mánuðum síðar féll kirkjan ,,í norðan fjúkviðri miklu.” Um þann voða skaða fékk bisk- up aldrei neinar fréttir. Hafi Guðbrandur látið gera prédikunarstólinn fyrir þann tíma er eins víst að hann hafi farið í mask þegar dómkirkjan hrundi. Við höfum reyndar heimildir fyrir því að svo hafi verið. Til er frásögn eftir Odd biskup Einarsson af því þegar kirkjan féll, þar segir Oddur m.a. að „allir kal- eikar náðust heilir og óbrotnir og allur messuskrúði og allt það sem fémætt var náðist utan prédikunarstóllinn brotnaði i smáparta.”26 í uppskrift Sigurð- arregisturs frá 1569 er þess getið að dómkirkjan eigi prédikunarstól.27 Nú gat hann verið ómerkilegur að dómi Guðbrands og hann viljað fá annan betri. Hitt er ljóst að enginn stóll er í Halldórukirkju þegar dóttursonur Guðbrands Þorlákur Skúlason tekur við staðnum á Hólum 1628, það vottar afhendingar- skráin. Eftir lát Þorláks Skúlasonar er prédikunarstólsins fyrst skýrt og skil- merkilega getið í úttekt Hólastaðar. Þar er sagt berum orðum eins og áður er greint, að Þorlákur biskup hafi gefið hann og kostað til 22 ríkisdölum. Ekki er minnst einu orði á móðurafa hans. Síðan lætur sonur Þorláks Gísli biskup gera himin yfir stólinn. Tvisvar á 17. öld er þess getið að stóllinn sé útlensk- ur. Aftur á móti er einungis sagt að himinninn sé af sama verki. Óneitanlega flýgur þá nafn Guðmundar bíldhöggvara Guðmundssonar i hugann, en hann var einmitt í þjónustu Gísla biskups.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.