Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Page 128

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Page 128
132 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Alls bárust frásagnir 148 manna, 75 karla og 73 kvenna, stuttar og langar, eða allt frá 2-3 bls. upp í 4-500 síður. Oftast var lengdin þó á bilinu 30-40 síður, enda mun heildarmagnið vera nálægt fimmþúsund vélrituðum meðal- síðum eða sem svarar u.þ.b. tuttugu meðalstórum bókum. Þótt ekki sé unnt að rígbinda sérhvern mann við eina ákveðna sýslu, var greinilega talsverður munur á því, hversu mikið barst frá einstökum uppruna- héröðum. Langmest var frá þrem samfelldum svæðum á landinu, þ.e. Vest- fjarðakjálkanum með Breiðafirði eða 37%, Suður-Þingeyjarsýslu 10% og Ár- nessýslu 10%. Áberandi minnst kom hinsvegar úr Húnavatnssýslum, Eyja- firði, Norður-Þingeyjarsýslu, Suður-Múlasýslu og Austur-Skaftafellssýslu. Fulltrúar stofnananna þriggja, sem að þessari framkvæmd stóðu, voru Ólafur Hansson frá Sagnfræðistofnun Háskólans, Einar G. Pétursson frá Árnastofnun og Árni Björnsson frá Þjóðminjasafninu. Við mat á frásögnunum voru þeir sammála um, að eitthvað væri bitastætt í öllum þeirra og að mjög mörgum mikill fengur. Afar erfitt var að gera upp á milli u.þ.b. þrjátíu þeirra bestu, þegar veita skyldi sérstaka viðurkenningu. Það varð þó að lokum niðurstaðan, að þrjár mundu teljast sameina best það tvennt að vera mjög fróðlegar um hætti liðinnar tíðar og jafnframt ágæta vel skrifaðar. Þetta voru frásagnir þeirra Emilíu Biering frá Barðaströnd, Guðmundar Guðmundssonar úr Ófeigsfirði og Péturs Guðmundssonar frá Rifi og Hellis- sandi, en hann andaðist reyndar daginn eftir að hann sendi frá sér minning- arnar. Höfundar annarra frásagna, sem sérstök ástæða þykir til að nefna eru: Sigurður Thoroddsen, Reykjavík, Valbjörg Kristmundsdóttir, Grundarfirði og Saurbæ, Hallgrímur Jónsson, Laxárdal, Geir Sigurðsson, Hvammssveit og Arnkell Ingimundarson, Saurbæ, Dalasýslu, Theodór Daníelsson, Breiða- fjarðareyjum, Torfi Össurarson, Rauðasandshreppi, Jóhann Lúther Einars- son, Tálknafirði, Sigríður Jóna Þorbergsdóttir, Hornströndum, Sveinsína Ágústsdóttir, Strandasýslu, Guðný í. Björnsdóttir, Vestur-Húnavatnssýslu, Guðmundur Jónatansson, Eyjafirði, Sigurjón Valdimarsson, Svalbarðs- strönd, Sölvi St. Jónsson, Bárðardal, Guðrún E. Jónsdóttir, Mývatnssveit og Aðalsteinn Jónsson, Reykjadal, S.Þing., Inga Wiium, Vopnafirði, Einar Sigurfinnsson, Meðallandi, Þórður Elías Sigfússon, Fljótshlíð, Ingveldur Jónsdóttir, Stokkseyri og Jóna Guðlaugsdóttir, Suðurlandsundirlendi. Ákveðið hefur verið, að kaflar úr nokkrum bestu frásögnunum verði lesnir í útvarp seinni hluta vetrar, ef höfundar veita leyfi til. Þá verða íhugað möguleikar á að gefa nokkrar frásagnanna út eða úrval þeirra.””
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.