Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1983, Blaðsíða 103
EYVINDARKOFI OG INNRA-HREYSI
107
Ýmsir hafa talið að hér sé um gæsarétt að ræða. Það er háttur gæsa
að renna alltaf upp brekku, þegar styggð kemur að þeim. Gæsaréttir
snúa því ævinlega dyrum undan brekkunni og verður því að úrskurða
að hér geti ekki verið um gæsarétt að ræða, enda veit ég ekki til að
gæsarétt hafi fundist austan við Þjórsá.
En þá má spyrja, til hvers var þessi rétt ætluð? Fé var ekki smalað á
þessum slóðum fyrr en á seinni hluta síðustu aldar og mér líst réttin
eldri en frá þeim tíma. Þá beinist hugurinn að Innra-Hreysi og Fjalla-
Eyvindi. Vitað er að hann hafði þar búskap, hesta og nokkrar kindur,
en til þess háttar búskapar þarf rétt.
Ekki er sjáanlegur verulegur aldursmunur á réttinni og Innra-Hreysi,
og uns aldursgreining fæst á öskulaginu í réttinni eða annað það kemur
í ljós, sem afsanni þetta, má hafa þann möguleika til hliðsjónar að hér
standi heimilisrétt Fjalla-Eyvindar.
Athugagreinar:
1. Ólafur Briem: Útilegumenn og auðar tóttir (Rv. 1959), bls. 98-108.
2. Scott, Peter and Fisher, James: A Thousand Ceese, (London 1953).
3. Gísli Oddsson biskup: Undur íslands (De Mirabilibus Islandiæ) þýðing Jónasar Rafn-
ars (Ak. 1942), kap 13. Sjá einnig Islandica X kap. XIII. Eggert Ólafsson virðist ekki
hafa heyrt um þcssar gæsavciðar Árnesinga.
4. f gömlum heimildum er Þúfuverskvísl oft nefnd Blautakvísl, enda alþckkt að sand-
bleytu. Hjálmar Þorstcinsson kallar Hrcysiskvísl Blákvísl, cn á Eyvindarkvísl (cða
Eyvindarkofakvísl) cr mér ekki kunnugt ncitt annað nafn.
5. Jóhann Kolbeinsson; „Afréttur Gnúpvcrja." Cöngur og réttir I (Ak. 1948), bls. 227 og
241.
6. Brynjólfur Sigurðsson: „Skýrsla um skoðanagcrð á hýbýlum Eyvindar og Höllu
undir Arnarfcllsjökli haustið 1762.“ Söguþœttir eftir Gísla Konrdðsson (Rv. 1915-1920).
Viðbætir, bls. 94—96.
7. Einar Brynjólfsson: Kort Dag=Register. Þjskjs. Varia IV. 1770-1800. Einnig sami
höfundur: Kort Dag Register. Þjskjs. Skjalasafn stiftamtmanns III nr. 30. Rentu-
kammcrbréf til stiftamtmanns maí 1773 - mars 1775. Skýrslan í Varia IV er með
hendi Einars Brynjólfssonar sjálfs og hcfur því að mcstu gildi frumhcimildar. Hún er
prentuð stafrétt hér á eftir, en lauslcg þýðing cr prcntuð í Hrakningar og heiðarvcgir
I, 1949, bls. 44-48.
8. Guðjón Jónsson: „Holtamannaafréttur." Göttgur og réttir I. (Ak. 1948), bls. 212.
9. Munnlegar upplýsingar frá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf.
10. Hjálmar Þorstcinsson: Veglýsing yftr Sprengisand úr Bárðardal. Lbs. 2117, b. 8vo. Björn
Gunnlaugsson.
11. Páll Mclsteð: Fjalla-Eyvindur. íslendingur 1. árg. (Rv. 1861) 20. til 22. tbl. neðanmáls.
12. Björn Gunnlaugsson: „Um stöðvar útilegumanna." íslendingur 2. árg. (Rv. 1861-
1862), bls. 11-12.
13. Bruun, Daniel: „Gjcnnem affolkede Bygder. “ Sérprent úr Geograftsk Tidskrift 14.