Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Side 49

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Side 49
MJÖLL SNÆSDÓTTIR JARÐHÝSIÐ í STÓRUBORG UNDIR EYJ AFJÖLLUM Þjóðminjasafn íslands stóð að uppgrefti í Stóruborg undir Eyjafjöllum á árunum 1978 til 1990. Sú rannsókn hófst vegna þess að hið forna bæjar- stæði Stóruborgar lá undir skemmdum vegna ágangs sjávar og fallvatna. A bæjarhólnum var grafið gegnum rústir fjölmargra húsa, og mörg bygg- ingarskeið. Lengst af höfðu aðalíveruhús á bænum legið austur og vestur, en aftur af þeim og til hliða verið viðbyggingar. Húsunum hafði marg- sinnis verið breytt, þau höfðu verið endurbyggð, stytt eða lengd. Bæjar- húsin höfðu oft verið töluvert stór. A einu af elstu byggingarskeiðunum hafa þau til dæmis verið ekki minna en 160 fermetrar að innanmáli. Vestan við bæjarhólinn fellur til sjávar á sú er Bakkakotsá heitir. Arið 1972 lá áin mjög djúpt og sást þá rúst í farvegi hennar. Sú rúst var aðeins sýnileg skamman tíma og er löngu horfin aftur, líklega hefur hún alveg eyðilagst.1 Hugsanlegt er að þarna hafi elstu bæjarhúsin staðið, en bærinn hafi síðar verið fluttur upp á hólinn þar sem hann stóð fram yfir 1800. Það mannvirki á sjálfum bæjarhólnum, sem virðist vera elst, er lítil niðurgrafin vistarvera, jarðhýsi, suðvestanvert á bæjarstæðinu. Slík jarð- hýsi eru vel þekkt annars staðar á Norðurlöndum á víkingaöld og mið- öldum, og allnokkur hafa verið könnuð hérlendis, m.a. í Hvítárholti og á Hrafnseyri.2 Jarðhúsið í Stóruborg var grafið niður um 70 cm frá yfirborði eins og það var þá og um 40-50 cm niður í sandhólinn sem er undir mannvistar- lögunum. Það var um 2 m að breidd en 2,30-2,40 m að lengd. Er það minnst þeirra jarðhýsa sem fundist hafa á Islandi. Horn þess voru bogadregin, en hliðveggir nánast beinir. Gólf í húsinu var fremur þunnt, 2-5 cm, og nokkuð viðarkolaborið. Þetta gólf var þó aðeins um miðbik hússins, en náði ekki alveg að veggjunum, nema vesturvegg. Beggja vegna í húsinu voru 30-40 cm breið belti þar sem ekki var sama kolaborna gólfið. Við norðurvegg var beltið 30 cm breitt, en við suðurvegg 40 cm. Þessi belti voru nokkru hærri en miðbik gólfsins, eða
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.