Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1994, Blaðsíða 64
68
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
myndefni var hagrætt og það fært í stílinn eftir því sem hentaði í ferða-
bókum á síðustu öld. Númerið 87 á einni Reykjavíkurmyndinni gefur okk-
ur líka til kynna að hér sé aðeins brot þeirra mynda sem Woods tók á Is-
landi. Myndasyrpurnar tvær frá íslandi, sem áður voru nefndar frá árun-
um 1846 og 1859, hafa komið fram í dagsljósið á síðasta áratug. Hver veit
nema fleiri mynda Woods eigi eftir að verða okkur kunnar síðar.
II. Sigfús Eymundsson
kynnir fjöldaframleiddar stereóskópmyndir fyrir Islendingum
Árið 1866 sneri Sigfús Eymundsson heim til íslands eftir um níu ára
dvöl við nám og störf í Noregi og Danmörku. Hann hafði lært ljósmyndun
hjá H. Ulseth, bókbindara og ljósmyndara í Bergen 1864. Heimkoma Sig-
fúsar átti eftir að marka þáttaskil í íslenskri ljósmyndasögu.
Sigfús tók þegar til starfa við ljósmyndun eftir heimkomuna. Hann
dvaldi við myndatökur á ísafirði í ágúst 1866 og áformaði að koma við á
ýmsum stöðum á leið sinni til Reykjavíkur. Sumarið eftir dvaldi Sigfús
við myndatökur í Reykjavík. I auglýsingum um starfsemi sína þá um vor-
ið í Þjóðólfi býður hann m.a. upp á stereóskópmyndir. Þar segir: „Þarað-
auki hefi eg nokkrar stereotyp myndir, er sýna ýmsa kafla af Dýrafirði,
ísafirði, Önundarfirði og Reykjavík." Verð á tólf stereóskópmyndum var 5
rd., en á sama tíma gat fólk fengið þrjú eintök af mynd af sér fyrir 1 rd
Fuilvíst má telja að þessar myndir hafi verið afrakstur af ferð Sigfúsar um
Vestfirði sumarið áður, auk þess sem hann hefur einnig tekið slíkar mynd-
ir í Reykjavík.
Engar ljósmyndaplötur þessarar gerðar eru varðveittar í safni frá ljós-
myndastofu Sigfúsar í Þjóðminjasafni. í Ljós- og prentmyndasafni Þjóð-
minjasafns eru hins vegar skráðar fimmtán stereóskópmyndir, sem telja
verður fullvíst að séu úr þessari auglýstu syrpu. Myndirnar eru allar frá-
gengnar með sama hætti, þó spjöldin séu mismunandi að lit. Tvær myndir
eru límdar á spjaldið hvor við aðra líkt og um stereóskópmyndir væri að
ræða. Upplýsingar um myndefnið eru á prentuðum miða, sem límdur er á
bakhlið myndspjaldsins á tíu myndanna. Þær myndir sem varðveist hafa
eru flestar teknar á Vestfjörðum. Fjórar eru teknar á ísafirði, ein hópmynd
og tvær af fólki við tedrykkju framan við hús Thostrups í Neðstakaupstað.
Þrjár eru frá Þingeyri í Dýrafirði og tvær frá Flateyri við Önundarfjörð,
þar af önnur af skipinu Tellus. Tvær eru frá Þingvöllum og ein af Árhver í
Reykjadalsá. Síðasta myndin sýnir hvalveiðiskipið Thomas Roys og hvala-
bát þess. Einfaldar glerplötur með annarri myndanna tveggja eru til af