Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1994, Blaðsíða 205
ÁRSSKÝRSLA 1994
209
Unastaðir, framhús, Kolbeinsdal, Skag. 200.000
Lindargata 13, Sauðárkróki 200.000
Villa Nova, Sauðárkróki 200.000
Gamla kaupfélagshúsið, „Húsið á Sandi", Hofsósi 150.000
Pakkhús á Möðruvöllum í Hörgárdal 150.000
Aðalstræti 16, Akureyri 200.000
Hafnarstræti 2, Akureyri 150.000
Hafnarstræti 86, Akureyri 150.000
Lundargata 2, Houskenshús, Akureyri 150.000
Haldórsstaðir í Laxárdal 200.000
Laxamýri í Aðaldal 200.000
Grænavatn, frambær, Mývatnssveit 800.000
Breiðavað í Eiðaþinghá 150.000
Hjaltastaður f Hjaltastaðarþinghá 100.000
Hvammur í Vallahreppi 200.000
Rangá í Hróarstungu 200.000
Kaupangur, Vopnafirði 800.000
Hafnargata 44, Wathnehús, Seyðisfirði 250.000
Ránargata 15 og 17, Seyðisfirði 150.000
Vesturvegur 3b, Elverhoj, Seyðisfirði 250.000
Vesturvegur 8, Seyðisfirði 100.000
Tærgesenshús, Reyðarfirði 400.000
Ráðhús Búðahrepps, Fáskrúðsfirði 150.000
Geysir, Djúpavogi 250.000
Fundarhús Lónsmanna, Lóni 200.000
Ytri-Sólheimar, fjárhús og hesthús, Mýrdal 100.000
Hamragarðar undir Eyjafjöllum 200.000
Útihús við Dranginn í Drangshlíð 250.000
Meðalholt eystri í Flóa 250.000
Eyrargata 30, Reginn, Eyrarbakka 100.000
Túngata 44a, Sandvík, Eyrarbakka, styrkur frá 1993 150.000
Byggðasöfn
Byggðawfn Hafnarfjarðar. Alls komu 7230 gestir í safnið og á sýningar þess á árinu 1994.
Sýningarhús eru Sívertsenshús, Siggubær og Smiðjan, sem er nýr sýningarsalur með geymslu-
rými að Strandgötu 50, þar sem áður var Vélsmiðja Hafnarfjarðar, tekinn í notkun 21. maí. Á
árinu voru haldnar fjórar sýningar þar, leikfangasýning, opnuð 21. maí, sýningin Færeyski
báturinn, frá Forngripasafni Færeyja, opnuð 28. júlí, Bændamenning frá Tavastland, frá borg-
arsafninu í Hámenlinna, opnuð 14. sept., og FH í 65 ár, afmælissýning Fimleikafélags Hafn-
arfjarðar, opnuð 27. okt. Enn fremur stóð safnið ásamt Lýðveldisnefnd Hafnarfjarðar fyrir
sýningunni Hafnarfjörður fyrr og nú í Hafnarborg með gömlum og nýjum ljósmyndum frá
Hafnarfirði, sem opin var 26. nóv. til 23. des. og „Saga hafnfirskrar verslunar" í sýningarsaln-
um Miðjunni í verzlunarmiðstöðinni í Miðbæ. Safnstjóri er Magnús Jónsson.
Byggðasafn Akraness og nærsveita. Á árinu komu 5452 skráðir gestir í safnið, innlendir 1810
en erlendir 3642, en margir munu óskráðir. I safnauka voru skráð 187 númer og má nefna
helztu nýfengna gripi vélbátana „Smára SI 35", opna trillu smíðaða á Siglufirði 1957, og
„Síldina AK 88", dekkbát smíðaðan á Isafirði 1962, báðir súðbyrðingar. 17. júní var opnuð
sýning vegna 50 ára afmælis lýðveldisins, myndasýning um hátíðarhöld á Akranesi við lýð-