Fréttablaðið - 23.07.2001, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 23.07.2001, Blaðsíða 6
SPURNING DAGSINS Hefur þú eitthvert prinsipp í lífinu? Já, fyrst og fremst það að elska konuna mína. Þórhallur Hinriksson Hann vinnur hjá tryggingafyrirtækinu Alliance og leikur knattspyrnu með KR. Höfuðborgarsvæðið: Hættaá náttúruvá á nokkrum stöðum SKiPUlAG Á lágsvæðum við strendur höfuðborgarsvæðisins getur verið hætta á sjávarflóð- um. Það er aðallega í vesturbæ ReYkjavíkur, á Seltjarnarnesi og á Álftanesi. Hættan er einna mest þegar saman fer mikið stórstraumsflóð, hækkun sjáv- arborðs vegna lágs loftþrýstings og ölduálag við ströndina. Hætta af völdum snjóflóða og skriðu- falla getur verið til staðar á Kjalarnesi, í Kjós og í Mosfells- bæ utan þéttbýlis. Þetta kemur fram í skýrslu samvinnunefndar sveitarfélaga um svæðisskipulag til 2024. Þar kemur fram að jarðskjálfta- hætta fari minnkandi á svæðinu frá suðri til norðurs. Þótt byggð- inni sé ekki talin stafa teljandi hætta á eldgosum og hraun- straumum er sú hætta helst til staðar á svæðum sem liggja lágt á suður- og suðausturhluta skipulagssvæðisins. Bent er á að þótt margar jarðsprungur séu á höfuðborgarsvæðinu og að þær hafi ekki bein áhrif á þróun byggðar, gætu þær skapað aukna hættu ef byggð þróast mikið inn á þau svæði. ■ Fíkniefnaneysla unglinga: Börn ein- hleypra feðra lík- legri CHICAGO. ap. Bandarísk börn á aldrinum 11-18 ára sem búa með einhleypum feðrum sínum eru líklegri til að neyta fíkniefna heldur en önnur börn. Þetta kemur fram í nýrri bandarískri rannsókn sem framkvæmd var af bandarískri stofnun í Atlanta sem berst gegn fíkniefnum. 38,4% nemenda sem aðeins bjuggu með föður sínum sögðust nota fíkniefni, en aðeins 20,4% þeirra sem bjuggu með báðum foreldrum sínum neyttu fíkni- efna. í könnuninni kom einnig fram að nemendum í mennta- skóla sem nota fíkniefni eins og heróín, helsælu og hass, hefur fjölgað, en það hefur ekki gerst í þrjú ár. Sígarettunotkun og áfengisneysla dróst hins vegar saman og er nú sú minnsta í 13 ár. Yfir 75 þúsund nemendur um gjörvöll Bandaríkin tóku þátt í könnuninni. ■ 6 FRÉTTABLAÐIÐ 23. júlí 2001 MÁNUAGUR Hafnarfjörður slakar á kröfu til íslensku menntasamtakanna: Utboðslög brotin segir Samfylking sveitastiórnir Samfylkingin í Hafnarfirði telur að meirihluti bæjarráðs brjóti lög með kennslu- og þjónustusamningum við íslensku menntasamtökin. íslensku menntasamtökin (IM) var eina félagið sem bauð í rekstur fyrirhugaðs grunnskóla í Áslandi. Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar 19. júlí sl. voru samþykktar viðbætur og breyt- ingar á samningi ÍM og Hafnar- fjarðarbæjar frá 11. maí. og Magnúsi Gunnarssyni falið að undirrita saminginn. Samfylkingarmenn segja að nú liggi skýrt fyrir að ÍM geti ekki staðið við skilyrði sem sett HAFNARFJÖRÐUR (slensku menntasamtökin þurfa nú aðeins að leggja fram tveggja mánaða fjárhags- lega tryggingu vegna Áslandsskóla í stað sex mánaða eins og útboðið sagði til um. voru í útboði vegna verkefnisins um fjárhagslegar tryggingar vegna skólahaldsins. „Það vekur sérstaka athygli að meirihluti bæjarráðs er reiðubúinn að falla frá þeim skil- málum sem settir voru þegar skólahaldið var boðið út fyrr á þessu ári. Hér er um alvarlegt brot á lögum og reglum um út- boð að ræða og öll ábyrgð á slík- um vinnubrögðum og þeim fjár- hagslega skaða sem bæjarfélag- ið getur hugsanlega orðið fyrir vegna þessa er alfarið meirihlut- ans,“ segir m.a. bókun minni- hluta Samfylkingarinnar í bæj- arráð. ■ Útafakstur undir Hafnarfjalli: Farþegi í jeppa lést umferðarslys Banaslys varð und- ir Hafnarfjalli aðfaranótt sunnu- dagsins. Karlmaður á sjötugsaldri lést samstundis er jeppabifreið á suðurleið sem hann var farþegi í fór útaf hægra megin og stakkst ofan í ræsi og hafnaði í moldar- barði. Eiginkona mannsins sem ók bifreiðinni var flutt með sjúkra- bíl á slysadeild Landspítalans í Fossvogi en fékk að fara heim að lokinni skoðun. ■ TOI'B ».\R CUKJ IKV HI <«i* O.V._ p %f\ ' ********* 1 * 1 í , : 1 I .1 ii' «'*** *T' , H ItJ tfal ÚTGERÐARFÉLAG AKUREYRINGA Víð ákvörðun VÞÍ um að lækka lokagengi bréfa ÚA fyrir 29. júní eftirá úr 4,00 í 3,20 má ætla að skráð afkoma Búnaðarbankans hafi versnað um 170 milljónir. Fyrirtækið á rúmlega 20% í ÚA og er grunað um að hafa átt viðskipti við sjálft sig til að hækka dagslokagengi hlutabréfanna þann 29. júní. Ekki hefur áður verið gripið til sambærilegra aðgerða af hálfu VÞÍ. Keyptu bréf af sjálfum sér Búnadarbankinn grunadur um að stuðla að óeðlilegri verðmyndun hlutabréfa ÚA á síðasta degi uppgjörstímabils. Bankinn er á meðal stærstu hluthafa og hafði verulega hagsmuni af góðu loka- gengi þann dag. VÞÍ lækkaði lokagengið eftirá um 20% og telur skýringar BÍ ófullnægjandi. hlutabréf „Þegar sami aðili er báðum megin við borðið og farið er að líða að lokum síðasta dags uppgjörstímabils þá má segja að líkur séu gegn því að um eðlileg viðskipti sé að ræða. Það er ljóst að lokagengi þann 29. júní er mik- ilvægara en loka- gengi aðra daga,“ segir Helena Hilmarsdóttir, hjá VÞÍ. Þingið tók ákvörðun þann 13. júlí sl. að taka við- skipti Búnaðar- bankans með hlutabréf Útgerðar- félags Akureyringa, sem áttu sér stað undir lok dags 29. júní sl., ekki með í dagslokaverð. Grun- semdirnar vöknuðu vegna þess að dagurinn markaði lok fyrra upp- gjörstímabils ársins. Síðdegis þann dag setti bankinn inn Verðbréfa- miðlarinn sem tók tilboðinu vissi hver hinn miðlarinn var. kauptilboð á genginu 4,00 sem sjóðurinn ÍS-15, sem er í vörslu bankans sjálfs, gekk að. Tveimur vikum síðar ákvað VÞÍ að lækka lokaverð 29. júní um 20%, eða úr 4,00 krónum í 3,20. í greinargerð sinni til VÞÍ, þann 18. júlí, heldur Búnaðar- bankinn því fram að aðilarnir sem áttu viðskiptin hafi verið fullkom- lega aðskildir, svonefndur „kína- múr“ hafi verið á milli þeirra sem hafi tryggt að þeir hafi ekki vitað af nafni hvors annars. Þá nefnir bankinn sér til varnar að verð- myndun hlutabréfa á íslenska markaðinum sé óskilvirk og skökk. VÞÍ telur ekki efni til að breyta ákvöðrun sinni vegna þess- ara útskýringa. „Þeir segjast ekki hafa vitað fyrir hvern viðskiptin áttu sér stað, en þeir vissu þó að um miðlara í Búnaðarbankanum var að ræða. Verðbréfamiðlarinn sem tók tilboðinu vissi nákvæm- lega hver hinn miðlarinn var. Af þessu leiðir ekki endilega vit- neskja kaupanda um fyrri eig- anda bréfanna, en við teljum samt sem áður tilefni til frekari rann- sóknar á málinu," segir Helena og bendir á að í máli af þessum toga verði sönnun að mótast af rann- sókn á sérstökum kringumstæð- um viðskiptanna og líkindarökum. „VÞÍ hefur nokkrum sinnum skoðað mál af þessum toga en þetta er í fyrsta sinn sem loka- gengi er breytt eftirá. Það má því segja að þingið sé að beita meiri hörku en hingað til,“ segir Helena. Meðal annars þess vegna sé ekki mögulegt að spá fyrir um endalok málsins. Ljóst sé þó að úrlausn þess geti haft fordæmisgildi. Hún segir ákvörðun hafa verið tekna fyrir helgi um að Búnaðarbankan- um yrði gefinn kostur á því að gefa frekari skýringar og verði þeim að líkindum send formleg skilaboð þess efnis í dag. matti@frettabladid.is Bæjarstjón fagnar áhuga nýrra aðila: Það verður alltaf flug til Eyja samgöngur Það verður alltaf flug til Vestmannaeyja og eins og ég met umræðuna er ekki úr vegi að stofna sterkt hlutafélag um þenn- an rekstur,“ sagði Guðjón Hjör- leifsson, bæjarstjóri í Vestmanna- eyjum. Guðjón sagðist ekki hafa rætt við stjórnarmenn Jórvíkur um hugmyndir þeirra að hefja flug til Eyja á hausti komandi. „Við viljum bara fá traustar og góðar samgöngur og ég tel að bæði þeir hjá Jórvík og heima- menn þurfi að skoða þetta mál í heild sinni og vanda sig við að það falli í góðan farveg. Tíminn mun leiða það í ljós hvernig menn bregðast við þessu en það er mjög gott að fá svona áhugasama aðila sem vilja sinna þessari þjónustu.“ Guðjón sagðist hafa heyrt á mönnum hjá flugfélaginu í Vest- mannaeyjum að þeir hefðu jafn- vel áhuga á að skoða þetta mál. „Það spurning hvort ekki sé hægt að búa til eitt sterkt afl úr þessum áhugasömum aðilum." Guðjón var spurður hvort hann teldi það hafa einhver áhrif að vél- arnar tækju ekki nema nítján manns í sæti. „Það er alltaf spurn- ing með þessa stóru hópa og hvað menn eru tilbúnir að leggja á sig til að sinna þeim. Það er engin laun- ung að menn hér í Eyjum sem star- fa við ferðaiðnaðinn eru svolítið taugatrekktir að Flugleiðir hafi það góð ítök að þeir séu að selja ferðamönnum ferðir alla leið bæði fram og til baka um allt ísland án þess að hafa viðkomu í Vestmanna- eyjum. Guðjón sagði það dapurlegt ef svo yrði þar sem margir starfi við ferðaþjónustu í Eyjum og að aðgerðir af slíkum toga gæti haft áhrif í atvinnumálum. GUÐJÓN HJÖRLEIFSSON „Ein af þeim hugmyndum sem upp hafa komið og vert er að skoða nánar er hvort ekki sé hægt að sameina í áætlunarflugi til Hornafjarðar að millilent verði í Eyjum." „Menn þurfa að staldra við þegar staðið er fyrir framan ákvarðanatöku af þessu tagi og fara yfir alla þætti, segja minna en meira og hafa alla valkosti opna. I málum sem þessum verða menn að hafa borð fyrir báru þeg- ar kemur að 1. október,“ sagði Guðjón að lokum. kolbrun@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.