Þingvallafundartíðindi

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Þingvallafundartíðindi - 01.01.1888, Qupperneq 31

Þingvallafundartíðindi - 01.01.1888, Qupperneq 31
31 munaðarvörum, t. a. m. kaffi, en sjer- staklega óska menn að tollaðar verði álna- vörur, og því vil jeg óska, að pað verði tekið fram í áskorun til pingsins, að álna- vörur verði tollaðar til muna. Við lausa- fjárskattinn er mönnum eigi illa, en par á móti er ábúðarskatturinn mjög ósann- gjarn, einkum í harðindaárum, þegar menn fella pening sinn og hafa eptir jarðarskrokkana eina. Jakób Ouðmundsson alpm.: Mönnum er kunnugt um mína skoðun á pessu máli. Jeg vil mikillega mæla með tillögu fund- arstjóra. Friðbjörn Steinsson: J>að var sam- huga álit manna á fundi í Eyjafirði, að afnema ábúðarskattinu og jafnvel lausa- fjárskattinn, sem menn eru pó eigi mjög óánægðir með, en setja í staðinn toll á álnavöru, kaffi og sj'kur, og taka tollinn af álnavörunni eptir pyngd; enn fremur að hækka vínfangatollinn; pótt pað kynni að minnka pessa tekjugrein landssjóðs, pá yki pað aptur farsæld landsins og efnahag margra, ef peir drykkju minna, en sumstaðar hefir átt sjer stað. Steýán M. Jónsson: Mjer pykir leitt að geta ekki sampykkt tillögur h. fulltrúa Eeykjavíkur. Jeg veit að í mínu kjör- dæmi er ekki drukkið of mikið af kaffi. Nú stendur landssjóður sig illa vegna bindindis, og er pað gleðilegt; en ef menn fara að ganga í bindindi með kaffi, pá er pað ekki neitt æskilegt. Viðvíkjandi lækkun á ábúðar- og lausafjárslcattinum verð jeg að geta pess, að menn hafa ekki oi'ðið peirri lækkun svo fegnir, eins og til hefir verið ætlazt, og pví vil jeg hiðja pingmenn um að hugsa vandlega um pað, hvort vert sje að setja niður pessa skatta, sjerstaklega lausafjárskattinn; annars vil jeg helzt, að hækkaður verði tollur á tó- baki og vínföngum og tollur lagður á álnavöru, en sem minnstur tollur verði lagður á kaffi. Benidikt Kristjánsson alpm.; Jeg vil bendamönnumá, að paðer ekki gott aðvekja eina konu hjer á landi, pví að af pví mun ekkert gott leiða. Jeg veit ekki hvað pessi kona heitir á íslenzku, en á grísku heitir hún Epic- Menn geta líklega kall- að hana prætugyðju á ísleuzku. Og af pessu máli mun hún vakna og misklíðir verða manna á milli, pví að margir eru tollfirringar og jeg er tollfjandi. pað má að vísu ná inn tekjum með tollum og og verndartollar geta ef til vil komið upp einhverri iðnaðargrein, en peir eru pó mjög ísjárverðir. Ameríkumenn hafa verndartolla, en Englendingar, sem ekki hafa verndartolla, geta selt vörurnar jafn- ódýrt og Ameríkumenn. Yerndartollarn- ir eru til að korna upp iðnaði hjá einstakl- ingnum. Bæði peir og aðrir tollar teppa eðlilega rás viðskiptanna og breyta henni í óeðlilegt liorf. Að lögleiða tolla til að varna munaði og óhófi, er ekki rjett; pað er ekki rjett, að gera menn skynsama með lögum. Lögin eiga vera til verndar gegn órjettinum. J>að er einnig óvíst, hvað miklar tekjur hafast upp úr tollunum, pví að hætt er við tollsvikum, eða að menn geti farið í kringum tolllögin, eins og opt kemur fyr- ir erlendis. Sem dæmi um pað get jeg sagt eina sögu frá Englandi; par er hár tollur á hönzkum. Maður einn par í landi pantar mikið af hönzkum frá París, en lætur pá koma í tvennu lagi til Englands, sitt á hvert landsborn, og á hvern staðinn fyrir sig eigi nema hanzka á aðra hönd- indina. Af pessum ástæðum neitar hann að borga tollinn, og hanzkarnir eru seldir á báðum stöðum fyrir ekkert verð. En sami maðurinn kaupir pá og fær pá pann- ig tolllausa. |>að er líka leiðinlegt, að láta tollpjóna róta og rífa upp hirzlur og koffort. |>að er stundum haft sem meðmæling með tollum, að gjaldendurnir vita eigi af pví, er peir greiða hann ; en pað er ekki rjett; hver maður á að vita hvað hann gel dur; pað er honum gleði, ef hann er

x

Þingvallafundartíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingvallafundartíðindi
https://timarit.is/publication/135

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.