Alþýðublaðið - 24.10.1963, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 24.10.1963, Blaðsíða 7
 LUDWIG ERHARD EKKI alls fyrir löngu sagði Lud- wig Erhard, hinn 66 ára gamli kanzlari Vestur-Þýzkalands: Ég tel mig ekki aðeins færan um að stjórna Vestur-Þýzkalandi, það gleður mig einnig að ég hef verið skipaður til þess. Nokkuð eldri eru þessi ummæli: Ég er stjórn- málamaður af ástríðu og ekki í hinni frumstæðu merkingu póli- tísks metnaðar, en ég er stjórn- málamaður af þeirri sannfæringu, að mér hafi hlotnazt hæfileiki til að móta örlög þjóðar. AUÐMÝKTUR í TÍU ÁR TRÚ Erhards á pólitísku hlutverki sínu kann að vera mikilvægasta skýringin á því, að hann hefur ekki gefizt upp á hinum þyrnum stráða vegi að markinu og þolað í tíu ár auðmýkingar og móðganir Adenauers. í öll þessi ár hefur Adenauer ró- ið að því öllum árum að draga úr áhrifum hins vinsæla efnahags- málaráðherra síns, og síðan reynt að koma í veg fyrir að hann yrði eftirmaður sinn. Á árunum 1953—59 sá Adenau- er um, að hvert verkefnið af öðru, var tekið frá Erhard og falið öðr- um ráðuneytum. Vorið 1959 móðg- aði Adenauer hann hvað grófleg- ast. Taka útti ákvörðun um það, hver taka ætti við forsetaembætt- inu af Theodor Heuss úr Frjálsa demókrataflokknum og Adenauer, sem þá var 83 ára, lét telja sig á að taka við þessari stöðu, bér- sýnilega í þeirri trú, að áhrif hans í forsetaemþættinu yrðu nógu mik- il til þess, að í rauninni yrði það • hann, sem skipaði nýja kanzlai1- ann. Þetta sást á því, að þegar þing- menn Kristilegra demókrata höfðu sameinazt um Erhard sem eftir mann Adenauers í kanzlarastóli, tilkynnti Adenauer, að hann hefði skipt um skoðun og vildi halda á- fram störfum kanzlara. „Ég get ekki (sem forseti) fengið mig til að stinga upp á Erhard sem kanzlara”, sagði hann við Ger- stenmaier þingforseta, „Erhard var of óreyndur í utanríkismál- um”, sagði hann við annað tæki- færi, að vísu frábær hagfræðing- ur, „en ef hann er einnig frá- bær stjórnmálamaður, verður liann fyrst að sýna það’. Eftir nokkur beiskjuleg og gremjuleg ummæli, m. a. þess efn- is, að hann ,,hefði sagt skilið við þennan mann” (Adenauer), sætti Erhard sig einnig við þessa móðg- un og hélt áfram biðinni eftir sín- Um tíma, sannfærður um að flokk- urinn gæti ekki gengið fram hjá honum, hvað svo sem „Sá gamli’ gerði til þess að setja stein í götu hans, vegna trausts þess og vin- sældanna, sem hann naut meðal kjósenda. ★ SJÁLFSTÆTT ÁLIT ERIIARD hafði á réttu að standa eins og í ljós kom fjórum árum síðar, En einnig er greinilegt, að það er álit hans og vinsældir, sem hafa tryggt honum kanzlaraemb- ættið og flokkurinn hefur ekki sömu skoðun og hann um foringjn hæfileikana. Einmitt sú staðreynd, að hann hefur hvað eftir annað fallið á kné fyrir Adenauer — eins og „gúmmíljón”, að því er sagt er — olli efa um ákveðni hans og at- orku. Auk þess hefur Erhard aldrei í fjórtán ára ráðherratíð haft það frjálsar hendur utan sérsviðs síns, að menn viti enn þann dag í dag' bæði í Þýzkalandi og erlendis, fyllilega hvar hann stendur í nokkrum meginmálum á sviði inn- anríkis- og utanríkisstjórnmála. Það liggur nærri að ætla, að hin djúpa andúð Adenauers á eftir- manni sínum eigi rætur að rekja til álits þess, sem Erhard nýtur og á sér lengri sögu en álit Adenau- ers. Þar við bætist það, hve menn- irnir eru gerólíkir. Adenauer er napur, ráðríkur og undirförull, en hinn pattaralegi Erliard er sátt- fús og hefur þá frjálslyndu skoð- un, að öruggasta leiðin til ein- drægni í samskiptum þjóðfélags- hópa og landa liggi í „frjálsum leik aflanna’. Síðan hefur ágrein- ingurinn einnig fengið pólitískt inntak. Erhard kanzlari * ÞAKKAR SER VIÐREISNINA Á UNDANFÖRNUM árum hefur Erhard oft gefið í skyn, að endur- nýjun vestur-þýzks þjóðfélags á árunum eftir heimsstyrjöldina sé í rauninni hans verk en ekki Aden- auers. Grundvöllurinn að efnahags- og þjóðfélagskerfi okkar var lagður með stefnu, sem þegar hafði stað- izt prófraun sína gagnvart þjóð- inni og umheiminum þegar fyrsta sambandsstjórnin var mynduð haustið 1949, segir hann í for- mála bókar sinnar um stefnu Þjóð verja í efnahagsmálum, sem kom út í marz í fyrra. Efnahagsráð vesturhernáms- svæðisins hratt þessari stefnu í framkvæmd, og hernámsveldin skipuðu hagfræðiprófessorinn Er- liard yfirmann þessa ráðs í marz 1948. Þá höfðu hernámsveldin haft Erhard fyrir helzta ráðunaut sinn allt frá því að Þýzkaland Ilitlers hrundi til grunna. Sem formaður þessa ráðs fyrir- skipaði Erhard hinn 20 júní 1948 framkvæmd hinna róttæku umbóta í peningamálum, sem hernámsyfir völdin höfðu samið og daginn eft- ir fyrirskipaði hann algerlega á eigin áb.vrgð afnám nær allrar skömmtunar á neyzluvöru og frjálsa vex-ðiagningu á neyzluvöru. Þetta var dirfskufull ráðstöfun, sem táknaði upphaf hinnar hröðu viðreisnar efnahags Vestur-Þjóð- ver.ta. enda þótt þjóðfélagsleg á- hrif viðreisnarinnar hefðu sinar skuggahliðar. 4r ADDRÁTTARAFI CDU ERIIARD hafði sermsé farið með stjórn efnahagsmála í hálft annað ár áður en fyi-sta ríkisstjórn A- denauers kom til sögunnar, og" hann var mun þekktari og í meira áliti. Hann var utanflokka allt þar til háttsettir stjórnmálamenn úr Kristilega demókrataflokknum (CÐU) heimsóttu hann í febrúax' 1949 og fengu, hann til þess að ganga í CDU til þess að flokkur- inn gæti gengið til fyrstu sam- bandskosninganna með „þjóðfé- lagslegan markaðsefnahag” Er- hai'ds á stefnuskrá sinni. Lítill vafi er á því, að það vai* nafn Erhards, miklu frekar en nafn Adenauers, sem gerði CDU Framh. á 13. síðu Það er ekki mitt hlutskipti, guði sé lof, að skrifa um mynd- list hér í blaðið. Þó get ég ekki stillt mig um að nefna 6em snöggvast haustsýningu Félags íslenzkra myndlistarmanna sem nýlokið er í Listamanna- skálanum; það held ég að liafi verið einhver skemmtilegasta samsýning íslenzkra listamanna sem eézt hefur um langt skeið. Ég man ekki hvort einhver hef- ur haldið fram þeirri fullyrð- ingu, sem ég býst við að styðja megi gildum rökum, að mynd- listin sé sú listgrein sern nú stendur í mestum og fjölskrúð ugustum blóma hérlendis; og því má ugglaust bæta við að verk margra íslenzkra mynd- listarmanna séu ágætlega fram bærileg hvar sem er í heim- inum annars staðar. Og er það trúlega meira en sagt verði um obbann af því nýja lesmáli sem hér er að koma á prent þessar vikurnar. Ýmsir íslenzkir- lista- menn hafa líka unnið sér frama óg viðurkenningu erléndis, Tvö nöfn koma mér fyrst í hug þessa stundina, þeirra Svavars Guðnasonar og Nínu Tryggva- dóttur. Svavars vegna þeirrar viðurkenningar sem hann hlaut nýverið á biennalnum í Fen- eyjum; Nínu vegna hinnar af- bragðsfögru. yfirlitssýningar á verkum hennar sem við sáum í Listamannaskálanum fyrr í haust. Og hvorugt þeirra átti verk á haustsýningunni sem þó komst vel af eins og áður er sagt. Þetta er ekki sagt vegna þess að ég haldi að útlend viður- kenning sé eitthvert úrslitamat á list okkar. Á hinu v.erður varla nógsamlega síklifað að við hljótupi ævinlega að leit- ast við að sjá list okkar og mennt í samliengi þess sem er að gerast annars staðar í beim- inum og að það er okkur í sjáífs vald sett; nú á dögum einangr- ast menn ekki í kotrassi hér heima nema fyrir fúsan og frjálsan vilja sjálfi'a sín. Það er sem sagt ekki mitt að skrifa umsögn um þessa sýn- ingu; ég nefni bara nokkra þá málara og myndir sem mér urðu gleðilegust á sýningunni, Og þá er fyrst að nefna Sverri Haraldsson sem menn hafa löngum vitað að er í hópi gáf- uðustu listamanna okkar. Hann sýndi tvö öldungis ný verk, og um abstraktmálurum á landinu og átti merkilega sýningu í Li&tamannaskálanum í fyrravet ur, en verk hans njóta sín kannski bezt mörg saman í senn. Hér voru enn þrjár þess- ar yfirbragðshörðu abstrakt- sjónir sem búa yfir svo mikl- um hita og lífi. Tveir erlendir málarar áttu verk á sýningunni, þau Boye Givskov, danskur, og Eva Ced- erström, finnsk. Það var gam- an að kynnast handbragði þess ara listamanna, sem væri fjar stæða að segja að hefðu skyggt . á nokkurn á sýningunni; og vonandi verður þessi heimsókn eftir Ölaf Jónsson virðist nú kominn langleið út á sína eigin götu, með öllu ólíkur öðrum mönnum; myndir hans standa báðar fyrir mér í furðuljósi af einhverjgm allt öðrum heimi en þessum. Þessi heimur ex hins vegar kirfilega nærverandi í mynd- um eins og þeirra Jóhanns Bri ems og Gunnlaugs Schevings og Jóhannesar Geirs á sýning- unni sem allir áttu þar afbragðs góð verk; Scheving virðist stöð ugt leitast við að koma heiiurn hcimi fyrir á risavöxnum dúk- um sfnum, í þeirri upphöfnu forkláruðu ró sem er japð- neskra inuna einna. Og síðast en ekki sízt er að nefna Þor- vald Skúlason sem er yfir öll- upphaf góðra skipta ís- lenzkra myndlistarmanna og norrænna eins og boðað er í sýningarskrá. Okkur er mikill akkur í því að fá hingað heim góða erlenda list til sýningar mik)u meiri en í frama ein- stakra íslenzkra listamanna er- lendis, þó hann sé kærkcminn. Dagurinn sem ég sá sýning- una var einn þessara hpáslaga- legu haustdaga sem nú fylkja sér óendanlegir framundan, Skúraveður. Ðálítið hvasst. Inni í skálanum var nístingskalt, í- við kaldara inni en úti. Gólfið dúaði undir fæti, lekahljóð úr öllum áttum; vindar loftsins og vötn himinsins áttu frjálsan aðgang að þessu listasafni eins og fyrri daginn. Listaverkin sem þarna voru samankomin liljóta að hafa verið í háska stödd, og beint heilsutjón búið hverjum þeim sem vildi una í návist þeirra lengri dagstund en brýnasta nauðsyn krafði. „Vinur, hví leiðirðu mig inn, í þetta voðalega hús?“ Sjaldan mun nokkur vesalingsmaðiir hafa unað svo ömurlegum íveru stað sem. þessji aðalathvarfi nýrrar íslenzkrar myndlistar, hvað þá fólgið auð og yndi lífs síns í þvílíku hreysi. Frammi við dyr hékk aug- lýsingaplagg frá Félagi ís- lenzkra myndlistarmanna; það heldur happdrætti undir víg- orðiúu „Váð: byggjum nýjan sýningarskála.” Happdrættls- vinningurinn er auðvitað bíll; jafnvel listamönnum virðist ekki koma í hug að nein önn- ur verðmæti freisti landslýðs- in& til að styrkja gött málefni. Annars sýnist manní að mynd- listai’mönnum standi ýmislégt nær en garfa í húsbyggingum, m.a. að sýsla, við myndlist. Kannskj rekur nauður þá til; það er víst enginn sá aðiji til í þessu húsasafni hér í Reykja vík sem endilega vill kalla sig borg, sem sjái sóma sinn i nð byggja sæmilega yfir list þcss- arar borgar og bjóða listamönn um að gera, svo vel að ganga inn. Önnur sýning stóð; fáa daga nú um helgina í bogasal Þjóð- minjasafnsins; þar voru sýndar myndjr þær, 41 að tölu, sem frú Bjarnveig Bjarnadóttir og syn- ir hennar tveir gefa Árnes- Framh. á 13. síðu IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHII>IIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIil|||l|ll|ll|||llllllllllllllllllllllllllllllllllll|lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll|lllllllllllll 1111111111111111 IIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIHHHIttttt^J ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 24: okt. 1963 7

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.