Eimreiðin - 01.07.1918, Blaðsíða 84
212
FERÐ í ÞóRISDAL
[Eimreiðin
sást bergveggur svartur, er gengur út úr sjálfum jökl-
inum. paðan sáust og nokkrir hnúkar rísa upp á milli
jöklanna í norðvestur. Við héldum niður eftir hálsinum
og brátt sáum við alveg ofan í lægðina. pá fékk lands-
lagið á sig annan svip og brátt fór að hækka á okkur
brúnin. Við fórum ekki beint niður hálsinn, en stefnd-
um nokkuð til suðurs, og þvínær alveg að jöklinum er að
vestanverðu liggur. Við stönsuðum við bjarg eitt er stóð
upp úr snjónum. Við vorum komnir í pórisdal. Allir
vorum við í nógu góðu skapi til þess að fagna pórisdal
með húrra-ópum, en engum kom það til hugar.
Eg horfi inn eftir dalnum, þegjandi og hugsandi og
eins gerðu félagar mínir. Enginn af okkur hafði gert
sér hugmynd um að hann mundi líta svona út. póris-
dalur, sem einu sinni var með grænum hlíðum og heit-
um hverum, feitum sauðum og útilegumönnum, var nú
allmjög breyttur frá því, sem áður var. Hlíðamar horfnar,
hverirnir frosnir, sauðir og útilegumenn dauðir.
Alt í kringum okkur var snjór, hvert sem augað leit. Yfir
öllu lá köld ró og svo var kyrðin mikil, að mér fanst eg
vera einn í þessum mikla jöklasal þótt félagar minir stæðu
alveg hjá mér. Fyrir framan okkur var vatn, eins og stórt
glampandi auga á fannbörðu og freðnu andliti.. Bakvið
rís svartur bergveggur út úr jöklinum, er gefur öllu lands-
laginu skarpari svip. Lítil þokurák var að læðast niður
eftir jöklinum ofan í dalinn. Hún fór hikandi eins og hún
væri óvön hinni rauðleitu birtu, er sólin brá yfir jökulinn.
Dalurinn liggur frá útsuðri til landnorðurs. Eru brattir
hamrar, sem ganga út úr jöklinum, alveg fyrir minni
dalsins. Hann er þröngur inst en vikkar eftir því sem
utar dregur. Vatn eitt allstórt er í dalnum. Var það ísað
alt með röndunum. Ekkert afrensli hafði það. Dalurinn
var hulinn snjó og sást ekki í auðan blett nema grjót-
urðir á stöku stað, er stóðu upp úr fönninni. Líklegt er
að snjór hafi verið meiri í honum í þetta skifti en venja
er til, en víst er um það, að þar getur engi gróður þrifist.
Dalurinn er allbreiður og ekki djúpur. Jöklarnir skúta