Alþýðublaðið - 15.10.1965, Síða 8

Alþýðublaðið - 15.10.1965, Síða 8
KIRKJUBÆKUR herma, að í Jóhannes- S. Kjarval sé áttræður, j en slíkt er aðeins bókfærsluatriði. ; Hann gekk Bankastræti á mánu- dag eins og víkingur nýkominn úr frægðarför, og kannski hefur j hann aldrei málað betur en í sum- í ar. Svona er að vera ungur í andanum, djarfur og leitandi og þora að gera að gamni sínu við guð og menn. I Saga Kjarvals er ævintýrið um ' sveitadrenginn og skútustrákinn, í sem fór út í heim að vinna sér I’ frama, en vitjaði aftur garðshorns- j ins og breytti því í kóngsríki frá- } bærrar listar. Hann er rammís- | lenzkur veraldarmaður, hefur ver- t ið úti í öllum veðrum og þekkir | landið af-sjón og raun, heyrn og ; nautn, ilman, smekk og tilfinn- ; ingu. Náttúran mælir til hans á ! tungu ljóss og skugga, kvölds og morguns, sumars og vetrar, og j hann túlkar undur hennar smá og stór í málverkum sínum. Það tekst honum svo, að furðu sætir. Þvílíkur er sigur Kjarvals. , Fyrsta myndskreytta bókin, sem ég eignaðist, var Engilbörnin | eftir Sigurbjörn minn Sveinsson | með teikningum Kjarvals. Þær ' man maður enn, þó að kverið sé í löngu týnt. Og víst er Jóhannes » S. Kjarval meistari hugkvæmn- innar, sem lýkur upp köldum kletti veruleikans og lætur draum- inn um ævintýrið rætast. Samt er snilld hans eftirminnilegust í margföldun umhverfisins, þegar steinarnir tala og mosinn grær, fjallið rís í naktri tign og dautt hraunið verður hljómkviða lita- dýrðarinnar. Þá töfra hefur Kjar- val á valdi sínu umfram aðra mál- ara samtíðarinnar. Hann gerir storkna jörð að stórveldi, speglar ísland og endursegir. En honum er gefin ríkari gáfa en að gleðja augað. Skoðendur málverka hans skynja jafnt rósamálið á kyrrlátri stund og aðdynjanda stormsins, þegar foldinni bregður og hafið æsist við hrjóstruga strönd. Hug- ann grunar fleira en sést í fljótu bragði. Þessi er galdur Kjarvals, hvort heldur hann málar í björt- um litum eða dökkum, opinberun og örlagaseiður, viðkvæmni og skapriki, mildi og þróttur. Sá á sK'lið að hafa fæðzt í mjúkum en sterkum faðmi íslenzkrar nátt- úru, þar sem alls er von næm- um anda og högum höndum. Manninum Jóhannesi S. Kjar- val verður ekki lýst eins og okkur hinum, enda er hann þjóðsaga, sem stækkar, þegar aðrir gleym- ast. Mun nokkur sérkennilegri einfari eða marglundaðri gestur á mannamóti? Og þó veit enginn hyggju Kjarvals. íslendingar fram- tíðarinnar vilja aúðvitað fá mann- lýsingu hans, en verða að láta sér nægja, að hann var engúm líkur. Samt fara þeir hans ekki á mis, því að málverkin blífa og sjálfs- myndir Kjarvals í orðum og drátt- um. Helzt kemur hann sér sjálfur á framfæri við þá, sem forvitn- ast um list hans og persónuleika. Almannarómur kallar hann meistara Kjarval. Sú nafngift er ekki skáldskapur heldur réttnefni. Þannig launar íslenzk þjóð, að hann gaf henni landið í nýjum skilningi. Helgi Sæmundsson. Nýtt og endurtekið urn MEISTARASKÁLDIÐ KJARVAL ALLIR, sem eitthvað hafa kynnzt Kjarval, eru á einu máli um það, að hann sé innblásinn listamaður, stórskáld lita, hug- mynda og máls. Hann getur ekki snert svo við pensli, að litir og form fari ekki að streyma fram í skipulegri heild. Nýlega merkti hann.- gamla mynd fyrir góðvin sinn og bjó sig að heiman með þrjárT mismunandi litadoppur á pappaspjaldi, og terpentínu á glasi, — og er hann hafði lokið við að merkja myndina var pappaspjald- ið or|íið að landslagsmynd með tveinijur dularverum, er studdu hvor jvið aðra og skimuðu undr- andi jút í birtuna og tímann. — Fyrirfeurður — tilviljun, — en fyrirliurður, sem hendir Kjarval einanj Þcssi meistari íslenzkrar mynd- listar! stendur nú á áttræðu, hnarrseistur, teinréttur og spengi- leguri Hann segist alltaf hafa vigt- ast heldur illa, þetta kringum 140 pund, og er hann þó með hæstu mönnum og vörpulegustu að vall- arsýn. Hann hefur agað sig strangt við harðrétti í útilegum og ó- byggðaferðum, við að litfesta feg- urð landsins og flytja haná í byggð. Kuldi, vosbúð og matar- leysi varð aldrei til þess, að gott mótiv yrði útundan eða gleymd- ist. Þegar þreytan ætlaði að buga hann, var hann vanur að baða sig í læk eða velta sér í dögginni. Einu sirini fékk hann skyrbjúg eftir langa útivist í Svínahrauni. Þá flutti hann í bæinn, hélt sýn- ingu og keypti sér sítrónur! Kjarval er ekki maður einham- ur. í honum hafa tekið sér bústað andar margra gjörólíkra einstakl- inga, ólíkra um allt nema það, að allir eru þeir andar fagurra lista. Svo er hann fjölhæfur að upplagi, svo skyggn á eðli hvers máls, að hann hefði allt eins vel getað orðið rithöfundur, leikari eða söngvari, — og hvað sem hann hefði orðið, annað en það, sem hann varð, mundi hann hafa borið af, skarað fram úr. En hann valdi að verða málari, til allrar ham- ingju fyrir íslenzka myndlist, sem annars sæti nú hnípin við gafl, ef hans hefði ekki notið við. Seint sóttist Kjarval heiman- búnaðurinn til ævistarfsins, — en þeim mun betur vandaði hann för sína. Tuttugu og sex ára fór hann fyrst utan til náms, lauk háskóla- prófi í listgrein sinni, ferðaðist síðan víða um lönd, dvaldi með forustuþjóðum lista, - lærði, las og leitaði — og svo fann hann allt, sem hann hafði verið að svipast eftir, hér heima! í fullan áratug dvaldi liann er- lendis, en flutti þá heim og settist að hér í Reykjavík. Hann hafði með sér ýmsa lífsreynslu og hug- myndir, strauma og stefnur, sem þá voru að skjóta upp kollinum í Evrópu. Mun hann vera fyrsti dadaistinn, fútúristinn, súrreal- istinn og abstraktmálarinn á fs- landi og fyrsta atómskáldið, þó að hann dagaði ekki uppi í þeim fræðum, og liti raunar alltaf á þau sem æfingu, leit og skóla- skyldugrein sinnar listar. Hann var fyrst og fremst natúralisti, landslagsmálari, sannur aðdáandi íslenzkrar náttúrufegurðar og lit- skrúðs. Fjöllin og hraunið, grjót- ið og mosinn seiddu hann til fundar við sig, og síðan hefur hann unnið að því að flytja feg- urð og blæbrigði fslands inn í hug og hjarta þjóðar sinnar. Og hann á mikið óunnið, sem betur fer. Er aldir líða, og kaldrifjaðir vísindamenn fletta blöðum okkar aldar, þá munu listfræðingarnir segja þetta um Kjarval: Hann kunni að laða fram í málverk sín, það sem hinum tókst aldrei að finna, — og sýna það sem lá í augum uppi, en enginn sá fyrr en hann. Hann fór sínar eigin götur, og skóp sinn frumlega, sjálfstæða og karlmannlega stíl, sem er engum líkur nema hon- um. Þó að við dáum Kjarval fyrst og fremst sem landslagsmálara, og skipum honum þar í öndvegis- sess, þá er það ekki nema önnur hliðin á list hans. Hin hliðin er skáldmyndir hans, fantasíur og fúgur, ortar í liti og ofnar í hríf- andi og sterk form stórbrotins skálds. Þessi viðfangsefni Kjar- vals býst ég við að útlendingar kunni betur að meta en við, enn sem komið er. Þar birtist hið al- þjóðlega viðhorf listamannsins skýrast, kunnátta hans og færni. Og hver eru svo siguriaun þessa athafnamanns á sviði íslenzk'rar myndiistar? Þau koma skýrast í Ijós' í hinum almennu, fölskva- lausu vinsældum hans og alþýðu- hylli. Hann er jafn vinsæll af ráðherrum og rónum, ungum og gömlum, hvar í stétt sem þeir eru. Það andar oft köldu um ýmsa, sem eiga sér marga formæl- endur og sterka, — en Kjarval virðist ekki eiga neinn óvin, eng- an öfundarmann, — tæplega, að hann njóti stéttarbróðurlegs rígs. Og hvað vill svo þjóðin gera tíl heiðurs þessum snillingi, sem hefur gefið henni meíra en ann- aðhvert málverk, sem hún á? Hún víll sýna honum virðingu og votta honum þakkir sínar með því að reisa veglegt hús yfir verk hans í hjarta höfuðborgarinnar. Þetta vill þjóðin, og þetta vildi hún þegar hafa gert. En þar sem for- feður okkar gáfu sér ekki tíma til

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.