Vísir - 09.05.1960, Page 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir oíí annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
Munið, að þeir sem gerast áskrifenáur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-Gö.
;,í
••
.■ . ■ :•;..
■•■'■ '■
Stóri sendirinn í Frumherja
V settur í gang.
Hlýddi merki frá tilraunastöðinni
í Jodrell Bank, Englandi.
Stóri sendirinn 1 Frumherja
V. var settur í gang £ gær frá
Jodrell Bank athuganastöðinni
fyrir utan Manchester, Eng-
landi, og var Frumherji þá í
13 milljón lun. fjarlægð frá
jörðu á rás sinni kringum sólu.
, Fram að þessu hefur minni
sendirinn verið í gangi og sent
frá sér tákn í samtals 100 klst.
frá því Frumherja V. var skotið
út í geiminn um miðbik marz-
mánaðar, en þau tákn innifela
hinar margvíslegustu vísbend-
ingar og upplýsingar, sem vís-
indamönnum munu að ómetan-
legu gagni koma. Lovell pró-
fessor, forstöðumaður í Yodrell
Bank, sagði í gær, að þegar
hefði verið kollvarpað ýmsum
kenningum varðandi himin-
hvolfið og hins mesta árangurs
mætti vænta af táknum stóra
sendisins, en sennilegast yrði
hægt að fylgjast með ferðum
hans í allt að 96 millj. km.
fjarlægð.
Mjög glögg tákn berast frá
Frumherja V. síðan stærri
sendirinn var settur í gang og
er iitið á það sem hér hefur
hefur gerst sem stórmerkan
viðburð og vísindalegan sigur.
Nehru hittir
de Gaulle.
Nehru forsætisráðherra Ind-
lands flaug til Parísar í gær og
ræddi við De Gaulle forseta,
Debré forsætisráðherra og
jCouve de Murville utanríkis-
iráðherra.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
þeir ræðast við Nehru og De
Gaulle.
í dag er haldið áfram við-
ræðum á samveldisráðstefn-
unni um efnahagsmál. Ekkert
isamkomulag hefur náðst varð-
andi ágreininginn um Suður-
Afríkumálið, Macmillan og
nokkrir ráðherranna ræddust
við óformlega í gær á heimili
hans utan Lundúna.
Ráðherrarnir eru í dag gestir
I garðboði Elsiabetar II. drottn-
ingar.
SSakað á lier-
lagaákvæiym.
Slakað hefur verið á herlaga-
ákvæðum í Miklagarði.
Mönnum er nú leyft að fara
' í kvikmyndahús og leikhús og'
I brúðkaupsveizlur má þalda —
j að degi til. — Útgöngubann á
' nóttum er sem sé enn í gildi. —
1 Bönnuð hefur verið útkoma
tveggja blaða til viðbótar þeim,
sem áður höfðu verið bönnuð.
Kartöfluiaust.
Kartöflulaust er í bænum
um þessar mundir og mun svo
verða þessa viku.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem Vísir hefir aflað sér,
höfðu verið gerðar ráðstafanir
til að afla kartaflna í tæka tíð,
til þess að ekki yrði um skort
að ræða. Hinsvegar hefir ferð-
um seinkað frá útlöndum, svo
að kartöflurnar munu ekki
koma fyrr en ínæstu viku.
Hver flokkur vopnaðra hermanna af öðrum fór um miðbæinn.
Herflokkar í námd við Dómkirkjuna:
Tíunda þing SVFÍ
sett í gær.
JVtjfti fétafjsheiwnili víyt.
Séra Sigurður Einarsson í
Holti lét Vísi í té fréttir af ný-
byrjuðu landsþingi Slysavarna-
félags íslands.
Þingið, sem er hið 10. í röð-
inni, hófst í gærdag með guðs-
þjónustu í Dómkirkjunni kl.
1.30. Séra Óskar Þorláksson
dómkirkjuprestur prédikaði og
þjónaði fyrir altari. Að lokinni
guðsþjónustunni var gengið í
hið nýja, veglega hús Slysa-
Snarbrá til hlýinda.
Eins og töfrasprota slægi á allan gróður.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í gær.
Hér snarbrá til sunnanáttar
og hlýinda í fyrrinótt, og má
Skiltin á myndunum gefa nokkra hugmynd um framkvæmd
. kynþáttastefnu Suður-Afríkustjórnar. Það er fróðlegt, að hvítir
menn kallast „gentlemen“ en hinir eru bara „men“.
segja, að það sé engu líkara en
slegið hafi töfrasprota á allan
gróður þann sama sólarhring.
Þá hafði verið mesta kulda-
tíð hér síðan á páskum, oft
hríðar í fjöllum og stundum
alveg niður í bæ. Nú hefir skipt
um, snjór hefir stórlega minnk-
að í fjöllum, og það leynir sér
ekki, að sumarið er komið. Ekki
voru lítil viðbrigðin frá leið-
indakalsa þegar hitinn var allt
íeinu kominn upp í 15 stig.
varnafélagsins við Grandagarð.
Þar setti forseti Slysavarnafé-
lagsins Guðbjartur Ólafsson
þingið, að viðstöddum forseta
íslands og frú hans, biskupin-
um yfir íslands og frú, auk fé-
lagsmálaráðherra Emils Jóns-
sonar og Geirs Hallgrímssonar
borgarstjóra. Gestir félagsins
voru Gísli J. Johnsen forstjóri
og frú hans.
Að séttu þingi tók til máls
Gunnar Friðriksson forstjóri,
formaður byggingarnefndar
hins nýja húss, og gerði grein
fyrir byggingunni og afhenti
stjórn og þingi Slysavarnafé-
lagsins húsið fullgert.
Því næst fór fram vígsla húss-
ins og framkvæmdi hana bisk-
upinn yfir íslandi. Forseti ís-
lands tók til máls og árnaði
Slysavarnaféalginu hamingju
og heilla með starf sitt og þann
merka áfanga, sem náð er með
byggingu hússins. Til máls tóku
einnig Emil Jónsson ráðherra
og Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri og báru fram árnaðarósk-
ir sínar til félagsins.
Fisklaust er í Eyjafirði.
Kaldbakur með fullfermi frá
NýfundnalandsmiBum.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
A ldugardagsnótt var stolið
hér liilum Fordbíl, og fannst
hann kl. 5 um morguninn við
endann á Glerárbrú á hliðinni.
Hafði hann farið rösklega
eina veltu á brúnni sjálfri og
stöðvast á hliðinni norðan við
brúna. Að sjálfsögðu var sá, er
tekið hafði bílinn, horfinn og
hefur ekki fundizt síðan þrátt
fyrir leit lögreglunnar, en bíll-
inn er mikið skemmdur.
Þrír togbátar eru nýkomnir
inn. Austurþýzki togarinn Sig-
urður Bjarnason er hæstur, hef-
ur fengið 600 iestir, Snæfell
270 og Súlan 170 lestir. Súlan
leggur upp hér, en Sigurður og
Snæfell í Hrísey. Mjög léleg
veiði hefur verið hjá togbátum,
og sjómenn segja, að fisklaust
sé í Eyjafirði. — Kaldbakur er
væntanlegur í nótt eða á morg-
un heim af Nýfundnalandsmið-
um með fullfermi (um 280 1.)
af karfa.
i
„Stonmii*66 —
Frh. af 1. síðu.
til athlægis. Þó kemur þar fram,
að alkunnugt sé, að bandarískar
flugvélar hafi fyrr flogið innn
yfir sovézk svæði í athugana
skyni og (jafnvel verið skotnar
niður, en það gegni furðu að á
slíkt skuli hafa verið hætt rétt
fyrir fund æðstu manna, enda
hafi Krúsév kunnað að nota sér
þetta — og' sé þó ekki alveg
augljós tilgangur hans með til—
liti til innanlandsástands í Sov-
étríkjunum, en þar hafi verið
gerðar bi'eytingar á stjórn og
flokksstjórn. og ríkisforsetinn
látið af embætti vegna heilsu-
brests og annar tekinn við. Lík-
lega hafi Krúsév með þeim
breytingum, sem gerðar hafa
verið að undanförnu og fram
komu í sambandi við fund
Æðsta ráðsins, verið til þess að
treysta aðstöðu hans, — og kom-
ið sér vel fyrir hann að geta
notað fyrrnefndan atburð til að
treysta aðstöðu sína heima fyr-
ir —- og til þess að valda banda-
mönnum erfiðleikum, fyrir
fund æðstu manna.
Mjög er rætt um hver áhrif
málið muni hafa meðal banda-
manna Bandaríkjanna.
í Pakistan hefur verið til-
kynnt, að ef það sannist, að
flugvélin hafi flogið frá Pak-
istan í leiðangurinn, verði
Bandaríkjastjórn send kröftug
mótmæli, og í Tyrklandi hefur
verið lýst yfir, að tyrkneska
stjórnín hafi aldrei heimilað,
að bandarískum flugvélum
væri flogið inn yfir sovézk
landsvæði.
Greinargerð
Krúsévs.
Á lokafundi Æðstaráðsins fyr
ir helgi gerði Krúsév ýtarlega
grein fyrir því ,sem gerzt hafði
og kvað það, sem eftir utanrík-
isráðuneyti Bandarákjanna var
haft í fyrstu, einfeldnislegt og
auðhrakið. Hann nafngreindi
flugmanninn, sem bjargaðist í
fallhlíf og var handtekinn, og
kvað hann hafa játað allt. —
Flugvélin hafi verið í njósna-
leiðangri allt frá Pakistan til
Bodö í Noi'ður-Noregi, búin
margvíslegum tækjum, m.a. til
Ijósmyndunar úr lofti, og út-
búnaður var í henni, væri á
hana ráðist, til þess að granda
henni samstundis með öllu sem
í henni var, en þann útbúnað
hefði flugmaðurinn ekki notað
til þess að bjarga lífi sínu. —
Ki'úsév kvað flugvélina hafa
verið hæfða með fjarstýrðu
skeyti. Meðal braksins úr flug-
vélinni hefði fundizt filmur og
filmuleifar, ræfill af uppdrætti
af svæðinu, sem flogið var yfir
með merktum stöðum, og fleira
sem tæki af öll tvímæli um til-
ganginn með ferðinxxi.
□ Alþjóða lieimssýninga-
stofnunin í París liefur sam-
þykkt, að næsta Alþjóða-
heimssýning fari fram í
Moskvu. Hlaut Moskva 16
atkvæði, en Montreal» Kan-
ada 14.