Vísir - 24.05.1962, Side 5
Fimmtudagur 24. mai 1962.
VISIR
Hitaveita í alla Reykjavík á 3 árum
1
|D-listinn BÍLANEFND
Vesturbæjarstöð verður að þessu sinni að Vesturgötu
71, — Pétur Snæland h/f, — en EKKI að Seljavegi 2.
Boðaðir bílar komi vinsamlegast tímanlega til skrán
ingar á kjördegi að VESTURGÖTU 71. Upplýsinga-
sími bílanefndar 20124.
X-D-LISTINN. Látið skrá bifreið yðar!
íjOrð og álif borgaranna
f/
i
| „iigiB fyrir alla
i Framh. af 7. síðu.
1 verið unnið mikið og gott starf.
; Reykjavík hefur vaxið úr bæ í
borg. Hún hefur orðið að borg,
| sem hver einasti Reykvíkingur
getur verið stoltur af.
i Fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins, sem verið hafa í meirihluta
í borgarstjóm undanfarin ár
hafa fyllilega sýnt, að þeir hafa
reynzt trausts Reykvíkinga
verðugir. Af reynslu liðins tíma
vitum við, að þeir munu áfram
vinna ötullega að borgarmál-
efnum með hagsmuni borgar-
búa fyrir augum.
Af þessum ástæðum ætti sér-
hver sannur Reykvíkingur, að
1 greiða fulltrúum Sjálfstæðis-
i flokksins atkvæði sitt í kom-
| andi borgarstjórnarkosningum,
hvar í flokki, sem hann annars
1 kann að standa með tilliti til
| hugsjónabaráttu og landsmála.
Með atkvæði okkar tryggjum
[ við áfram örugga stjórn borg-
J armála, áframhaldandi þróun
og reisn Reykjavíkur, því að
enda þótt afrek hafi verið unn-
in, þá er enn mikið ógert og til
þess að áfram verði haédið á
réttri braut, þarf Reykjavík enn
örugga og styrkja stjórn —
stjórn Sjálfstæðisflokksins"
Fólk gefur -
Framh. af 7. síðu.
hvaða niðurstöðu ég hef kom-
izt að.
1 — Hvað virðist þér vera
barizt um?
\ — Ég held að allir flokkarn-
i ir beri hag borgaranna fyrir
| brjósti. Mér virðist það því
| fremur vera leiðir en markmið,
sem barizt er um.
— Þú hefur ekki áður verið
' hér í kosningabaráttu?
— Nei. Þess vegna hef ég
mjög gaman af að kynnast
| þessu. Mér finnst sérstaklega
sérkennilegt að sjá þegar blöð-
in birta myndir af forsíðum
hvers annars. Þegar Morgun-
i blaðic birtir mynd af forsíðu
| Tímans og Tíminn af forsíðu
Morgunblaðsins, veit maður
varla hvað maður er að lesa.
Annars fæ ég Vísi heim til mín
i daglega, sem hjálpar mér
\ mikið.
— Hvernig lízt þér á ástand-
ið í bæjarmálunum?
— Það er margt ógert, en
það er líka margt sem gert
hefir verið. Núna eru margar
athyglisverðar áætlanir á ferð-
inni, en ég þekki þetta ekki nóg
til að geta sagt mikið um þær.
1 Sumar þeirra eru líka þannig
' að maður sér ekki fyrr en eftir
nokkur ár hvernig þær ganga.
— Hvað finnst þér að helzt
mætti betur fara?
— Mér finnst fólk ákaflega
rólegt hér. Það bíður í róleg-
heitum eftir að hlutirnir komi
upp í hendurnar á þeim. Það er
svo margt sem maður getur
gert sjálfur. Það er ekki nóg
að hafa dýr og fín heimilistæki
og húsgögn, þegar húsið er ó-
pússað að utan og allt í óhirðu
í kring um það. Það þýðir ekki
alltaf að biða eftir að allt sé
gert fyrir mann. Með því að
snyrtá svolítið í kring um hús-
in má breyta mjög miklu Það
er ótr egt hvað lítill garður
getur sett mikinn svip á um-
hverfið, auk þess sem það er
gaman að rækta hann.
Aldrei verið...
Framh. af 7. síðu.
ar. Það voru sannarlega mikil
viðbrigði þegar við fengum
hitaveituna í Hlíðunum. Manni
þótti það gott þegar olíukynd-
ingin kom, í staðinn fyrir kol-
in, en ekki voru viðbrigðin
minni, þegar hitaveitan kom.
Það virðist helzt á andstæð-
ingunum að heyra að allt eigi
að gera í einu. Þeim virðist
aldrei detta í hug að hlutirnir
kosti neitt. Þeir minna mig
stundum á krakkann í vísunni
sem segir: „Ef að nú hjá pabba
einn fimmeyring ég fengi“. Vís
an endar svo: „og kaupa síðan
allt sem mig langar til að fá“
Það er hægara að tala um að
kaupa allt sem mann langar til
að fá fyrir fimmeyring, en að
gera það.
Það er annars undarlegt með
kommúnistana. Alltaf eru þeir
að tala um hvað gera þurfi fyr-
ir hina og þessa. Samt man ég
aldrei eftir að þeir hafi tekið
þátt í neinni mannúðarstarf-
semi. Það eina sem kemst að
hjá þeim er að safna fyrir
flokkinn.“
Fram af...
Framh. af 7. síðu.
framkvæmdir í þeim efnum,
nægir að nefna hina nýju
Sundlaug Vesturbæjar, nýju
sundlaugina í Laugardal og hið
glæsilega nýja íþróttahús sem
nú er -'erið að reisa á sama
stað.
Ég er þess fullviss að borg-
inni er betur borgið undir sam-
hentri stjórn meirihluta Sjálf-
stæðisflokksins, en undir stjórn
fjögurra eða fimm ósamstæðra
flokksbrota.
Fyrir árslok verður búið að Ieiða hitaveitu í öll hús í Laugameshverfi. Mynd þessa tók Ijós-
myndari Vísis í morgun þar sem starfsmenn voru að einangra hitaveitustokka. Verkið hefur
gengið mjög vel og er þetta fyrsti áfanginn í hinni miklu hitaveituáætlun.
* íVO i i i i i i i i
Síðustu vikur hafa menn orðið áhorfendur að því
í hverfunum inni í Laugarnesi. hve vinna hefur gengið
vel við að leggja hitaveitustokka þar, en hitaveita á
að vera komin í öll húsin þar fyrir árslok. Verktakinn,
Véltækni h.f. vinnur verkið í nokkrum áföngum eftir
fyrirfram gerðri áætlun og telur hann að hitaveitan
verði jafnvel komin nokkru fyrr inn í þann hluta
hverfisins, sem byrjað er fyrst á.
Þessar framkvæmdir í Laugarnesinu eru þó aðeins
fyrsti liðurinn í miklu víðtækari hitaveituframkvæmd-
um, en það hefur nú verið ákveðið og tryggt fjár-
hagslega undir styrkfi forustu Sjálfstæðismanna í
borgarstjóm að leggja hitaveitu í öll borgarhverfi á
næstu þremur árum og verður þeim framkvæmdum
lokið á árinu 1965. Þaðan í frá er það stefna Sjálf-
stæðismanna, að ný hús verði tengd hitaveitunni jafn-
óðum og þau eru tekin í notkun.
Hitaveituáætlun Sjálfstæðismanna
er ásamt gatnagerðaráætluninni
stærsta hagsmunamál Reykvíkinga
í dag. Það er þá vert fyrir borgar-
búa að íhuga það, hvernig borgar-
stjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokks
ins hefur lagt grundvöll fram-
kvæmdanna.
Menn hafa séð stóra gufuborinn
að verki í borgarlandinu inn við
Laugaveg og Suðurlandsbraut Það
er árangur þeirrar stefnu borgar-
stjórnarinnar að framkvæma leit
að heitu vatni.
I landi Reykjavíkur hafa nú ver-
ið boraðar 44 holur, sem eru sam-
tals 17 þúsund metrar á dýpt. Hol-
ur þessar hafa reynzt misjafnar
eins og gengur, en nokkrar mjög
góðar gufuholur hafa fengizt. Frá
þeim koma nú 150 lítrar á sekúndu
af vatni sem er að meðaltali 118
stiga heitt. Jafngildir þetta hita-
magn nær allri gömh hitaveitunni
frá Mosfellssveit.
Djúpborinn er þessa daga að
bora innst við Laugaveginn og vant
ar nú ekki mikið á að nægilegt
heitt vatn sé komið fyrir allan bæ-
inn.
Samkv. Hitaveituáætlun Reykja-
víkur er gert ráð fyrir að hitaveita
verði lögð í Laugarnesið á þessu
ári. Á næsta ári kemur röðin að
Hagahverfinu, Holtunum, Hvassa-
leitishverfiru og Heimunum. Sum-
um þeirra verkefna verður lokið
þegar á því ári, öðrum árið 1964,
en þá verða ennfremur hafnar fram
kvæmdir í Langholtshverfi og Smá-
íbúðahverfi. En öllu þessu verki
verður lokið fyrir árslok 1965.
Hitaveituframkvæmdir þessar
eru ávöxtur styrkrar stjórnar og
framtaks meiri hluta Sjálfstæðis-
flokksins. Þær eru tryggðar fjár-
hagslega með 86 milljón króna láni
frá Alþjóðabankanum, sem hefur
litið svo á að hér sé um svo merki-
lega framlivær. að ræða að hann
var fús til að greiða fyrir henni
með lánveitingu.
Reykvíkingar munu kunna að
meta framgang þessa mikla hags-
munamáls. Þeir geta líka tryggt
framgang þess með því að veita
Sjálfstæðisflokknum fylgi á sunnu
daginn.
Þór Sandholt ••••
Framh. af 8. síðu.
leiði hverjar afleiðingar það
gæti haft ef sundrung og ó-
samlyndi yrði meðal stjóm-
enda borgarinnar. Hvernig
yrði viðhorfið ef bindindis-
menn, Framsókn, Þjóðvörn,
kratar og kommar ættu að
fara að stjórna borginni sam-
an, flokkar, sem ekkert sam-
eiginlegt stefnumál hafa,
nema þá helzt að vilja hver
um sig ná meiri völdum, án
þess þó að hafa möguleika
til þess að mynda samstæð-
an meirihluta, til að fram-
fylgja hugsanlegum stefnu-
málum. Sjálfstæðisflokkur-
inn einn hefir þessa mögu-
leika og hefir sýnt getu sína
í verki.
Carpenter
kominn á
Soft
Bandaríska sjóliðsforingjanum
Scott Carpenter var skotið á loft
frá Cape Caraverd kl_ 12:45,15 eft-
ir íslenzkum tíma. Honum er ætlað
að fara nokkra hringi kringum
jörðina.
Banc.aríkjastjórn hefur lagt til
að þegar verði gert samkomulag i
bann við hernaðarlega notkun .
geimvídda.