Tölvumál - 01.01.1990, Blaðsíða 9

Tölvumál - 01.01.1990, Blaðsíða 9
Tölvumál janúar 1990 Helgi Jónsson deildarstjóri á Reiknistofnun Háskólans: Tölvunet Háskóla íslands Áætlað er að netið nái til tíu bygginga á háskólalóðinni í ársbyrjun 1990. Milli bygginga á háskólalóð eru notaðir glerþræðir. Fyrir tveimur árum ákvað Háskóli íslands að stefna að uppsetningu á gagnaneti fyrir Háskólann. Reiknistofnun Háskólans var falið að annast gerð framkvæmda- og kostnaðaráætlunar. Vorið 1988 lá fyrir frumáætlun um hraðvirkt gagnanet á háskólalóðinni. Fyrsti hluti netsins var settur upp skömmu eftir fluming Reiknistofnunar í Tæknigarð eða snemma í febrúar 1989. Netið nær nú til fjögurra bygginga en þessa dagana er verið að vinna að undirbúningi uppsetningar í sex byggingar til viðbótar. Áætlað er að netið nái til tx'u bygginga á háskólalóðinni í ársbyrjun 1990. Reiknistofnun sér um þann hluta netsins sem liggur milli bygginga auk innanhússneta í húsnæði Reiknistofnunar. Gert er ráð fyrir að hússtjómir eða húsráðendur bygginga sjái um netvæðingu innanhúss, hver á sínum stað. Hlutverk Reiknistofnunar er nokkuð víðtækt. Fyrir utan skipulagningu, uppsetningu og rekstur á aðalneti má nefna ráðgjöf vegna netvæðingar innanhúss, aðlögun á samskiptahugbúnaði, umsjón gátta til annara neta, innanlands sem utan. Netbúnaður, samskipti og tengingar Tölvunetinu má lýsa í stuttu máli þannig: Netið fellur að IEEE 802.3 staðli en net samkvæmt þessum staðli eru oftast nefnd ETHERNET. Milli bygginga á háskólalóð eru notaðir glerþræðir. Tvær dreifistjömur fyrir glerþræði mynda stjömunet sitt hvora megin Suðurgötu en stjömumar eru tengdar saman með glerþræði. Við netvæðingu innan bygginga hefur verið notaður samása kapall en tilraun með dreifingu á snúnum vír verður framkvæmd í vetur. Áhersla er lögð á að samskiptahug- búnaður fylgi svonefndum TCP/IP eða Arpa samskiptastöðlum. Hér má nefna Telnet eða rlogin fyrir skjáaðgang frá einni tölvu til annarar, ftp fyrir skráaflutning milli tölva og NFS fyrir skráavinnslu milli tölva. Stefnan er að samskipta- hugbúnaður allra tölva fylgi sömu samskiptareglum. Þetta auðveldar mjög samskipti milli ólíkra tölva. Þá er lögð áhersla á notkun Unix stýrikerfis á þjónustustöðvum á netinu. Orðið þjónustustöð er tilraun til íslenskunar á enska orðinu “server”. Innanlandstengingar eru með þrennum hætti. í fyrsta lagi er um fastlínutengingar að ræða eins og nú er milli tölvunets Hafrannsókna- stofnunar og tölvunets Háskólans. Hafrannsóknastofnun sér um tengingu okkar við evrópska hluta Unix-tölvupósmetsins Eunet og þarmeð öll stærri rannsóknamet í heimi. Um þessa tengingu rennur mestallur tölvupóstur og ráðstefnu- gögn sem koma erlendis frá. í öðm lagi em tengingar um talsímanetið. Þær em venjulega að formi til sjálfvirk upphringi- sambönd. Aðalnotkun þeirra er flumingur á tölvupósti og ráðstefnugögnum. í þriðja lagi hafa verið gerðar tilraunir með tengingar milli tölvunets háskólans og innlendra aðila yfir gagnanet Pósts og síma. Nýlega komst á tenging frá tölvuneti háskólans við erlend tölvunet um gátt sem Reiknistofnun rekur fyrir Samtök um upplýsinga- net rannsóknaraðila á íslandi, SURÍS. Gáttin tengir tölvunet háskólans við NORDUnet en NORDUnet er tölvunet sem nær til allra helstu háskólastofnana á Norðurlöndum. NORDUnet er svo tengt evrópskum og bandarískum tölvunetum. Á öllum þessum tölvunetum eru notaðar sömu samskiptareglur eða TCP/IP. Allur tölvupóstur til og frá Norðurlöndum fer um þessa gátt. 9

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.