Tölvumál - 01.01.1990, Blaðsíða 20

Tölvumál - 01.01.1990, Blaðsíða 20
Tölvumál janúar 1990 í fyrsta lagi þá eru til í AM+ (útg. 3.02) tól til að búa til skráaskilgrein- ingar fyrir DB2 og ADABAS gagnasafnskerfi. Þá er einnig í AM+ brú til að flytja gögn úr AM+ yfir í þróunar- umhverfi ADABAS (og til baka aftur ef því er að skipta). Þessi brú er notuð hjá SKÝRR, en menn eru rétt að komast yfír byrjunarörðugleika við notkun hennar svo ég treysti mér ekki til að fjölyrða um hana. AUTO-MATE PLUS hjá SKÝRR Hver skyldu nú vera markmiðin með notkun AM+ hjá SKÝRR? - Samræming. Hjá fyrirtæki eins og SKÝRR er auðvitað mikil hagræðing í því að nota eina kerfisfræðiaðferð í stað þess að þurfa að viðhalda þekkingu starfsmanna á fleirum. LSDM var valin hjá SKÝRR því LSDM- aðferðin er heilsteypt og viðurkennd aðferð. Hún spannar nægilegan hluta hugbúnaðarferilsins (það gera ekki allar aðferðir). LSDM er viðurkennd aðferð (sbr. notkun hennar hjá hinu opinbera í Brctlandi). Líklegt er að aðferðin verði tekin upp eða notuð sem viðmiðun víðar í náinni framtíð. Aðalhugbúnaðarbirgir SKÝRR, Software AG, mun t.d. miða við þessa aðferð í sínum hugbúnaðar- verkfærapakka sem væntanlegur er innan skamms. - Aukin framleiðni ásamt meiri gæðum. - Minna og ódýrara viðhald. - Nákvæmari kostnaöaráætlanir. - Auðveldara eftirlit með verkefnum í heild og kostnaði við einstaka þætti þess. Til að ná þessum árangri hjá SKÝRR þá samþættum við LSDMAM+ inn í gæðakröfur okkar og gerum aðferðina að ófrávíkjan- legum þætti í okkar hugbúnaðar- gerð. Það að innleiða þessa tækni gerist þó ekki á einni nóttu, allt tekur þetta sinn tíma og menn verða að horfa fram á veginn en líta ekki bara rétt fram fyrir tær sér. Ákvörðun um það að nota hugbúnaðarverkfæri eins og AM+ getur alls ekki verið geðþótta- ákvörðun; það þarf að setja einhver markmið og það verður einnig að horfa á kostnaðarhliðina. Hvað vinnst með AUTO- MATEPLUS? - Allir kostir LSDM-aðferðarinnar eru innifaldir (sbr. umfjöllun hér á undanum LSDM). - Nú hafa menn kost á því að gera það sem þeir áður sögðust gera, þ.e. að skjala kerfi strax við greiningu þess og hönnun í stað þess að gera það eftirá eða alls ekki. - Vinna við AUTO-MATE PLUS er óneitanlega mun hraðvirkari en vinna með blýanti og pappír og auk þess sparast allt utanumhald um pappírsflóð sem menn voru að kikna undan í handvirkri útfærslu aðferðarinnar. - í sumum tilvikum prófar AM+ samræmi í hönnuninni. AM+ leitar að misræmi, þegar það er hægt með kerfisbundnum aðferðum og bendir notanda á hvar gallar eru við hönnun og greiningu. Að auki má segja það að án verkfæra eins og AM+ taki menn þá áhættu að ráða ekki nægilega við auknar kröfur og eftirspum frá hugbúnaðarkaupendum. Reynsla SKÝRR af AUTO- MATEPLUS Hjá SKÝRR eru flestir, sem á annað borð eru farnir að nota AM+, að vinna við sína fyrstu hönnun með verkfærinu. 20

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.