Tölvumál - 01.01.1990, Blaðsíða 17

Tölvumál - 01.01.1990, Blaðsíða 17
Tölvumál janúar 1990 Senn fer að líða að því að skeytaflutningskerfið X.400 verði tekið í notkun hér á landi. Uppsetning þessa kerfis markar einnig þau tímamót að ífyrsta sinn er notað kerfi frá CCITT er notar öll 7 lög Opna samskiptalíkansins OSI. MNP-5 villuvöm og gagnaþjöppun MNP -5 - [ 4800 á milli tölva 2400 á milli mótalda —1--------—H ±1± 7 •l-FT- I u (é) m • Öll gögn sem mótald fær frá tölvu eru villuvarin fyrir sendingu • Mögulegt er að ná allt að tvöfoldum línuhraða með samþjöppun gagna • Móttökumótald breytir þjöppuðum gögnum í rétt form • Biðminni og flæðistýring á móti tölvu Senn fer að líða að því að skey taflutningskerfið X.400 verði tekið í notkun hér á landi. Svokallaður tölvupóstur hefur lengi þekkst en þá bundinn við tölvukerfi einstakra fyrirtækja og stofnana og hvert kerfi með sínu sniði en með X.400 er ætlunin að samræma skeytaflutningskerfi á alþjóðavísu og jafnframt gera hann óháðan tölvugerðum. Þar sem staðlamir eru alþjóðlegir þá verður mögulegt að senda skeyti um allan heim um samskonar kerfi. Samskiptamöguleikamir verða ekki einvörðungu bundnir við tölvur, þar sem gáttir í önnur fjarskiptakerfi eru jafnframt í staðlinum. Tölva Pósts og síma til skeytaflutningsþjónustu verður bráðlega sett upp og tekin í notkun. Hún er af gerðinni IBM S/ 88 og er tvöföld og báðir hlutar hennar samstíga í öllum aðgerðum. Verði annar fyrir áfalli heldur hinn áfram vinnslu eins og ekkert hafi í skorist. Vegna þessarar tvöföldu uppbyggingar er mesta mögulega uppitíma náð og rekstur tryggður allan sólahringinn árið um kring. Hugbúnaðurinn fyrir X.400 þjónustuna kemur frá ICL í Bredandi og er byggður á CCITT stöðlum frá árinu 1984, en hann verður uppfærður í 1988 staðlana seinnihluta ársins 1990 og þjónustan komin í endanlegt horf árið 1991. Uppsetning þessa kerfis markar einnig þau tímamót að í fyrsta sinn er notað kerfi frá CCITT er notar öll 7 lög Opna samskiptalíkansins OSI. Notkunarmöguleikar X.400 kerfisins eru afar fjölbreyttir. Auk þess sem hægt er að senda skeyti og umbreyta á milli ólíkra kerfa, s.s. telex og telefax, þá gefst kostur á margskonar þjónustu svo sem staðfesting til sendanda á móttöku skeytis, forgangspóstur, dreifmg á marga aðila samtímis, afhending á fyrirfram ákveðnum tíma og vísun á annan ef móttakandi getur ekki tekið við skeyti. í staðlinum er gert ráð fyrir því að notendur geti sent gögn sín á milli í margvíslegu formi svo sem í textaformi og seinna sem grafík og hljóð. Skeytaflutningur um kerfið mun fyrst um sinn verða innanlands en smám saman tengjast við önnur lönd. X.400 kerfið er uppbyggt úr nokkrum einingum sem hver hefur tiltekið verksvið. 17

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.