Tölvumál - 01.02.1995, Síða 18

Tölvumál - 01.02.1995, Síða 18
Febrúar 1995 mínúta í staðinn fyrir mín. “Ástin mfn” myndi hann lesa “Ástin mínúta”. En þetta er verið að laga auk þess sem unnið er að frekari þróun framburðarins, svo sem ýmissa sérhljóða. Þeir sem til þekkja, hafa haft orð á að íslenski talgervillin sé með þeim betri, sem framleiddir eru í Evrópu. Mun auðveldara er að skilja hann en aðra slíka, sem tala önnurtungumál. Á undanförnum árum hefur þróunin í tölvuheiminum orðið sjónskertu fólki fremur óhagstæð. Þegar Windows væðingin hóf inn- reið sína, hættu jaðartækin blindra- letursskjár og talgervill að virka. Þau lesa ekki úr grafískum tákrium. Eina leiðin sem sjónskertir hafa nú er að nota stóra skjái og stækka letrið til muna. En þeir sem sjá alls ekkert sita nú með sárt ennið. Að vísu er unnið að því að þróa vél- og hugbúnaðar, sem les grafísk tákn. Þeir sem lesa blindraletur, þurfa mjög öflugar tölvur, helst 486 með 16 mb. innra minni og 66 mhz. Ekki er enn vitað hvað tal- gervill þarf mikið vinnslurými, en væntanlegt er á þessu ári eða í byrjun næsta árs forrit frá Infovox, sem getur lesið úr grafískum skjölum. Þess má að lokum geta að á næstu árum mun talgervillinn stór- auka tölvunotkun sjónskertra, sér- staklega ef tekið er tillit til þess að í auknum mæli er nú farið að gefa út dagblöð og tímarit á stafrænu formi. Þá veita ýmis forrit, svo sem Kermit, sjónskertu fólki aðgang að gagnabönkum. Þá nýtist blindra- letrið mun betur en talgervill. Gísli Helgason er for- stöðumaður Hljóð- bókagerðar Blindra- félags Islands. Starfsmenn Stjóri 18 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.