Vísir - 22.06.1966, Blaðsíða 5

Vísir - 22.06.1966, Blaðsíða 5
WSS1**. ffiSÖKikHdagur 22. júní 1966 Danskir flugmenn SAS fóru aS dæmi hinna norsku Afstaðo sænskra flugmanna óbreytt í NTB-frétt frá Stokkhólmi segir, að ef sænskir flugmenn i verkfalli hjá SAS reynist ekki tllleiðanlegir til samninga innan viku eða hálfs mánaðar, kunni sænska stjómln að taka til alvarlegrar ákvörðunar, að ákveða að deilan leysist með bindandi gerðardómi. Danskir flugmenn hafa nú farið að dæmi norskra flugmanna og fall izt á bindandi gerðardóm, og hefur það .jær afleiðingar, að flugferðir SAS munu verða komnar £ gang að % hlutum nú í vikunni. heims- horna milii Tflkynnt er í New York, að U Thant hafi þegið boð um aö fara £ heimsókn til Moskvu og muni heimsóknin eiga sér stað einhvern tíma sumars eða áður en Alls- herjarþingið kemur saman 1. sept- ember næstkomandi. Hann hefur ekki komið til Moskvu síðan þeir urðu æðstu valdamenn Brezhnev og Kosygin. INDIRA GANDHI forsætisráð- herra Indlands er væntanleg til Sovétríkjanna 12. júlt' næstkom- andi og Kosygin mun endur- gjalda henni heimsóknina á þessu ári. Skógareldar geisuðu i morgun i Norður-Sv£þjóð á tveimur stórum landsvæðum og unnu hermenn og sjálfboðaliðar svo hundruðum skipti að þvi að reyna að hefta útbreiðslu eldsins. Mikil hitabylgja hefur verið að undanfömu í Noröur-Sviþjóö og allur gróður er skraufþurr. Á öðr- um staðnum kom upp eldur, vegna þess að kona £ skógarferð gætti ekki nægrar varúðar, er hún kveikti eld til þess að hita vatn £ kaffi. í NTB-frétt frá Helsinld segir, að Kekkonen Finnlandsforseti hafl tek ið ákvörðun um að heimsækja Nor eg. Finnska utanrikisráðuneytið seg ir, að hann hafi tekið ákvörðunina í fyrra, er hann var við laxveiðar í Suður-Svfþjóð. Tekiö er fram, að forsetinn fari i einkaerindum og tilgangur heim sóknarinnar á engan hátt stjóm- málalegur. Meðan Kekkonen forseti dveist i Noregi mun hann sitja miðdegis- verðarboð Ólafs konungs. kona fíaug ein Moskvuheimsókn de Gaulle Sheila Scott fyrrverandi brezk leikkona lauk sl. mánudag hnatt flugi — flaug fyrst brezkra kvenna kringum hnöttinn, en hún lenti í London eftir að hafa lent 31 sinni í 26 löndum á 33 dögum á hnattflugi sínu. Mun hún verg methafl kvenna í „sóló hnattflugi kvenna“. — Shella | Scott er 38 ára. HAGLABYSSA Haglabyssa (Magneum) og Homet riffill til sölu og sýnis, aöeins í dag. Mávahlíö 1 ris hæö. Vidræðurnar í gær „fóru vel af stað## Viðræður de Gaulle Frakklands- forseta og leiðtoga Sovétríkjanna fóm vel af stað, að sögn stjóm- málafréttritara, en rætt var um vandamál Evrópu. Viðræður stóðu 3 klukkustundir og i dag verður þeim haldið áfram og rætt um Vietnam. Þótt vel hafi verið af stað farið, er tekið fram, að ekki beri svo að skilja, að samkomulag hafi náðst um vandamálin, en til mikilla bóta að um þau hafi verið rætt af gagn kvæmri velvild. Og þegar de Gaulle síðar talaði til mikils mannfjölda, sem safnazt hafði saman fyrir utan ráðhús Moskvu til þess að hylla hann þrátt fyrir úrhellis rigningu, beindi hann þeim orðum til allra Evrópuþjóða, einnig Vestur-Þjóð- verja, að fara að dæmi Frakka og hefja sínar viðræður við leiðtoga ' Sovétríkjanna milliliðalaust. I gærkvöldi voru de Gaulle og for setafrúin, heiðursgestir, á leiksýn- ingu i Bolshoi-leikhúsinu, en sýnt var leikritið Romeo og Julia. Þótt menn telji , að ekki verði gerður neinn sáttmáli stjórn- málalegs eðlis í Moskvu heimsókn- inni, er víst að gerður verður sátt máli sem er hinn mikilvægasti, en hann er um samstarf Frakka og Rússa á sviði geimvísinda. Maurice Schumann formaður utanríkisnefnd ar fulltrúadeildar franska þjóðþings ins staðfesti þetta í morgun í við tali við loftskeytastöðina í Luxem borg, og einnig, sagði hann, að yrði samið um aukið vísindalegt, tækni- legt og efnahagslegt samstarf. GJAFABRÉF FRÍ SUNDLAUGARSJÓDI SKáLATi)NSHBIMILI8INS ÞETXA BfiÉF Efi KVITTUN, EN PÓ MIKLU FREMVR VIDURKENNING FYRIR STUDN- ING VIÐ GOTT MÁIEFNI. UrxiAVlK, Þ. tf. VEl þveginn bíll NW""i ÞVOTTASTÖÐIN , SUÐURLANDSBRAUT 2 i SÍMI 38123 OPIÐ 8-22,30 SUNNUD.:9-22.30 Barzel - tillagan verkaði sem sprengja Mikill hvellur varð í Vestur-1 ins stakk upp á því til þess að Þýzkalandi, er dr. Barzel varafor | greiða fyrir samkomulagi um sam maður Kristilega lýðræðisflokks-1 einingu Þýzkalands, að Sov- étrikin hefðu áfram herlið í Þýzka landi eftir sameininguna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.