Vísir - 20.06.1968, Side 3
3
rfSmi . F%m»t«dagur 20. júní 1988.
I m ftW&h
iíx . : U'
'ut *
myndsjá
!i;
•■•• \s
iiíííí.'iSjíí
>S.\<Síí:
„HUNGRUÐ 0G
UPPGEFIN"
— Tugþúsundir á flótta frá vigvellinum i
Biafra — Islendingar safna fé til flóttafólksins
við vaxandi erfiðleika i sam-
bandi við sendingu hjálpar-
gagna til Biafra.
Alþjóðanefndin vinnur nú
sleitulaust að því að opna nýjar
leiöir fyrir þessa flutninga, og
hefur jafnframt sent út áður-
nefnda hjálparbeiðni.
Það er ekki óeðlilegt að við
íslendingar . minnumst þessara
vina okkar úr viðskiptunum á
árum áður, þegar þeir keyptu
af okkur megnið af skreiðarút-
flutningnum, og lóð hvers og
eins til söfnunar þeirrar, sem
nú er hafin þarf ekki að vera
stórt, aðeins að þátttaka sé al-
menn.
Eins og stendur er skortur-
inn á lyfjum, matvælum og
hjálpargögnum f Biafra svo
mikili aö Rauði krossinn ákvaö
að lýsa yfir neyðarástandi, enda
er styrjöldin þegar búin aö
Ieiða hungur og hörmungar yfir
íbúana. í lista yfir nauðsynjar
sem talin er hvað mest þörf
fyrir er þetta: Skreið, mjólkur-
duft og lýsi, vörur sem I’slend
ingar ættu að geta látið af
hendi.
^Jóðir vinir okkar fslendinga
og vinir í fjöldamörg ár
eru í miklum erfiðleikum. Eins
og menn vita af fréttum undan
farinna mánaða hefur blóðugt
stríð geisað í Nígferíu þar sem
Biafra-menn hafa orðið að flýja
heimili sín undan hinum ógn-
arlegu herjum sambandsstjórnar
Nígeríu í Lagos. í dag er mikill
fjöldi flóttamanna samankominn
á litlu svæði, sem er á valdi
Biafra.
Vandamálin eru uggvænleg og
hefur Alþjóða Rauði krossinn
því sent út hjálparbeiðni, en
samtökin hafa undanfarið unn-
ið mikið og gott starf í Biafra,
en nú þarf meira átak en fyrr.
Alþjóða Rauði krossinn hefur
starfandi fjölda hjálparsveita í
Nígeríu og Biafra, m.a. eru
finnskar, norskar og sænskar
sveitir starfandi i Enugu og
Nsukka, og alþjóðlegt hjálpar-
lið vlðs vegar í Biafra. Skömmu
eftir að Port Harcourt féll í
hendur sambandshersins sendu
sveitir“Rauöa krossins í Biafra
neyðarkall með útvarpi. I send-
ingu þessári var m.a. sagt að
þúsundir kvenna, barna og gam
almenna, hungruð og uppgefin,
væru á flötta frá nágrenni víg-
vallanna. Fjöldi þessara flótta-
manna var áætlaður vera um
600 þúsund, sem reynt væri að
koma fyrir í skólum og bráða-
birgðaskýlum. Fólk þetta er
gripið skelfingu, neitar að snúa
aftur til þorpa sinna, og hefur
hvorki mat né næg klæði.
Áður höfðu fulltrúar alþjóða-
nefndar Rauða krossins tilkynnt
um mikinn fjölda almennra borg
ara, sem fyndust látnir meö-
fram þjóðvegunum. Til þess að
hægt sé að bjarga hundruðum
þúsunda mannslifa í Biafra verð
ur að senda minnst 200 tonn af
matvælum daglega til Biafra eft
ir ýmsum leiöum, en að undan-
fömu hefur Rauöi krossinn átt
■ Efsta myndin sýnir sjúkling á einu sjúkrahúsanna, mað-
urinn er særður eftir skothríð. Svíinn OIov Stroh frá sænska
Rauða krossinum er þama f heimsókn á sjúkrahúslnii.
■ Myndin er frá Dahomey og er verið að taka á móti mat-
vörum, sem Svíar sendu til Biafra.
B Sjúkrabíll keyptur fyrir fé sem kom frá Norðurlöndum
er hér á myndinni. Hjúkrunarfólkið er nígerískt og er að
flytja slasaðan mann á sjúkrahús.
3£i
LÁTIÐ OKKUR INNHEIMTA...
Þaó sparar ybur tima og óbægindi
INNHEIMTUSKRIFSTOFAN
Tjarnargötu 10 — III hæd — Vonarstrætismegin — Simi 13175 (3linur)