Vísir - 20.06.1968, Qupperneq 8
ð
VI S IR . Fimmtudagur 20. juní 1968.
LJtgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson
Auglýsingar : Þingholtsstræti 1. Símar 15610 og 15099
Afgreiðsla : Hverfisgötu 55. Sfmi 11660
Ritstjórn : Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Askriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands
í lausasölu kr. 7.00 eintakið
Prentsmiðja Vfsis — Edda hf.
i
Styðjum Biafra-söfnunina
]\igería er langfjölmennasta ríki Afríku og eitt af
fjölmennustu ríkjum heims. Þar búa nú um 60 milljon-
ir manna, eða fimmti hver Afríkubúi. Þetta ríki var
lengi fyrirmyndarríkið í Afríku. Þegar það hlaut sjálf-
stæði árið 1960, höfðu Bretar lagt töluverða áherzlu
á að mennta þjóðina. Og þetta virtist ætla að bera ár-
angur. í rúmlega fimm ár ríkti friður og framfarir
' þessu unga ríki. En þá tók að syrta í álinn.
í ársbyrjun 1966 var sir Abubakar forsætisráðherra
myrtur í stjórnarbyltingu. Abubakar var mikill hæfi-
leikamaður og hafði farnazt vel hið erfiða hlutskipti
að halda saman þessu fjölmenna ríki margra þjóð-
flokka. Eftir lát hans fóru stjórnmálin gersamlega úr
skorðum í Nigeríu og þjóðflokkarígur magnaðist.
Iboar eru þjóðflokkurinn í Austur-Nigeríu. Þeir hafa
staðið á tiltölulega háu menningarstigi, miðað við
aðra þjóðflokka í ríkinu. Þeir höfðu þess v^gna dreifzt
töluvert út um allt ríkið og voru m. a. mjög fjölmenn-
ir í verzlunarstéttinni. Þróunin varð sú, að þeir bök-
uðu sér andúð og jafnvel hatur þjóðanna, sem fyrir
voru. Þá upphófst hið ægilega blóðbað í Norðui-
Nigeríu, er Iboum var slátrað í tugþúsunda tali á
nokkrum vikum. Flestir þeirra, er eftir lifðu, flýðu
til heimahaganna í Austur-Nigeríu.
Spennan milli kynþáttanna jókst nú dag frá degi.
I maílok í fyrra sagði Austur-Nígería sig úr lögum við
sambandsstjómina og stofnað var sérstakt ríki, sem
hlaut nafnið Biafra. Hófst þá styrjöld með þessum að-
ilum og hefur hún staðið látlaust síðan. Her Nigeríu-
stjórnar hefur gengið betur og smám saman þrengt
að Biafra-mönnum.
Styrjöld þessi er hin vdllimannlegasta. Biafra-búar
hafa þótzt vissir um, að hermenn Nigeríustjórnar
mundu ekki þyrma neinu kviku, þar sem þeir færu
um. Þess vegna hefur her Nigeríu yfirleitt komið að
auðum þorpum og bæjum. Allur landslýður í Biafra
hefur flúið undan þeim, á brott frá ökrum sínum og
iífsviðurværi. Óskaplegur fjöldi flóttamanna hefur því
safnazt saman á tiltölulega litlu svæði, sem enn er
á valdi Biafra-hers. Mikill hluti þessa fólks sveltur
beilu hungri og falla nú daglega hundruð manna úr
hungri, aðallega börn og gamalmenni.
Rauði kross íslands tekur þátt í alþjóðlegu átaki,
sem nú er að hefjast til hjálpar þessu illa stadda fólki.
Verður safnað hér fé til kaupa á skreið, lýsi og mjólk-
urdufti. Mikið liggur við, að íslendingar bregðist nú
skjótt við og láti sinn hlut ekki eftir liggja frekar en
fyrri daginn. Allar deildir Rauða krossins og dagblöð-
in í Reykjavík taka við franilögum þeirra, sem vilia
taka þátt í þessu mannúðarstarfi.
Dwight D. Eisenhower
— Herforingi og stjórnmálamaður
Eisenhower hershöfðingi, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna,
liggur nú á Walter Reed sjúkrahúsinu í Washington, eftir að
hafa fengið hjartaslag í annað skipti á sjö vikum.
Hann er nú sjötíu og sjö ára gamall og hefur dregið sig
í hlé frá mestöllum afskiptum af opinberum málum, en hann
á að baki merkilegan feril á sviði heimsmálanna, sem ef til
vill væri ekki úr vegi að rifja upp.
J sögunni koma menn ef til
vill til með að minnast
Dwight D. Eisenhowers sem
hins mikla herforingja, er á
friðartímum fannst erfiðara að
bera skikkju stjómmálamanns-
ins heldur en sverðið.
Hann fæddist árið 1890 og
óist upp við fábrotin kjör i
Kansasfylki. Þegar í æsku hlaut
hann gælunafnið „Ike“ sem
kom til meö að tolla við hann
allt hans líf. Hann var uppalion
á strangtrúuðu heimili og vand-
ist frá byrjun á vinnusemi og
skyldurækni.
Hann langaði til að ganga i
sjóherinn,. en þegar hann sótti
um það kom í ijós, aö hann
var oröinn of gamall til þess. í
staðinn var hann tekinn inn í
hinn fræga herstjórnarskóla,
.West Point, árið 1911. Hann út-
skrifaðist þaðan 25 ára gamall.
án þess að hafa sýnt sérstak$
námshæfileika.
Eisenhower tók ekki virkan
þátt í fyrri heimsstyrjöldinni.
en stóö sig ágætlega sem yfir-
maður æfingastöðvar í meðferð
bryndreka. Á millistríðsárunum
gegndi hann majórsstöðu í 16
ár. og það ieit ekki út fyrir, aö
ferill hans ætti eftir að veröp
sérlega glæsilegur.
Stuttu eftir árás Japana á
Pearl Harbour áriö 1941 var
hann kallaður til Washington
til að starfa i höfuðstöðvum
stríðsskipulagningarinnar. Og
nú hófst hinn ótrúlegi frægöar-
ferill hans. sem f stríðinu náði
hámarki, þegar hann var út-
nefndur yfirmaður alls herliös
Bandamanna í Evrópu. Hann
annaðist yfirstjórn stærstu
hernaðaraðgerðar í sögu mann-
kynsins, innrásinni i Frakkland.
6. iúnf 1944. Þangað til í nóv-
ember 1945 var hann yfirmaður
bandaríska hernámsliðsins >
Þýzkalandi. en þá var hann
kvaddur til Washington til pð
gerast yfirmaður Bandarfkja-
hers í stað George Marshalls.
Hann lél af því starfi 1948 og
var rektor Columbia-háskóla til
1950, er hann tók tilboði Tru-
mans forseta um að gerast yfir-
maður herja Atlantshafsbanda-
lagsins í Evrópu. 1 þessari stööu
fékk hann aftur not fyrir hæfi-
.eika sína sem foringi og stjóm-
málamaður.
Næstum því nauðugur tók
hann við útnefningu repúblík-
anaflokksins, sem frambjóðandi
hans við forsetakosningar 1952.
í nóvember sama ár vann hann
yfirburðasigur í kosningunum
yfir frambjóðanda demókrata.
Adlai E. Stevenson, og hann
flutti inn í Hvíta húsið sem 34.
forseti Bandaríkjanna. Hálfu ári
síöar gat hann tilkynnt þjóð
sinni, að sér hefði tekizt að
uppfylla eitt helzta. kosninga-
ioforð sitt — að binda endi á
Kóreustríöiö.
Upp frá því einbeittu Eisen-
hower og utanríkisráðherra
hans, John Foster Dulles, sér
einkum að því að leysa þrjú
höfuðvandamál. Þeir vildu fá
iárntjaldslöndin til að hætta
viö alla ásælni til landa með þvi
að ógna með miskunnarlausum
hemaðaraðgeröum og með því
aö byggja upp áhrifaríkt vam-
arkerfi í Vesturlöndum. Þeir
vildu, að Vestur-Þýzkaland yrði
sjálfstæður aðili að Atlantshafs-
bandalaginu og vildu auka sam-
starfið, sem Truman hafði byrj-
að við önnur lönd.
Eisenhower hélt alla tið fast
við hina einbeittu afstöðu slna
til Kínverska alþýðulýðveldis-
ins. sem hann lét sér aldrei til
hugar koma að viðurkenna. 1
ágúst 1954 kunngjörði hann, aö
sjöundi floti Bandaríkjanna
mundi verja Formósu, ef Pek-
ing-stjómin gerði tilraun til að
ráðast á eyjuna. í næsta mán-
Dwight D. Eisenhower.
uði á eftir mynduðu Bandaríkin
og sjö önnur lönd, Suðaustur-
Asíurvarnarbandalagiö, SEATO.
Eftir að Sovétríkin höfðu
samþykkt að gera friðarsamning
yið Austurríki árið 1950, Býrjaði
Eisenhower fyrir alvöm að í-
huga möguleika á viðræðum
við Sovétríkin til að draga úr
„kalda strlöinu". Árangur þessa
var fundur æðstu manna í
C-nf, sumarið 1955, en hið svo-
nefnda „Genfarhugarfar" varð
ekki langlíft.
Árið 1957 kom hann fram
með hina svokölluðu „Eisen-
hower-kenningu.“ sem miða átti
að því að hefta beina og óbeina
ásælni kommúnista I Miö-
Austurlöndum.
í innanrlkismálum reyndi
Eisenhower að þræða milliveg-
inn til að fara að vilja hinna
hægfara I báöum flokkum.
Hann hafði frjálslyndar skoðan-
ir, sem framkvæma átti á „kon-
servatívan" hátt.
Einn mikilvægasti atburður-
inn í stjómartíð Eisenhowers
var hæstaréttardómur um
B-i► 13 síð?
Listir "Bækur -Menningarmál
Hjörleifur Sigurðsson skrifat myndlistargagnrýni:
Kj ar valssýning
Listamannaskálinn hefur enn
ekki lokið hlutverki sínu.
Snemma I vor virtist hann kom-
inn að falli — en síðustu dægr-
in hafa forsprakkar Kjarvals-
sýningarinnar dyttað rækilega
að honum: Hreinsaö loftið og
hengt það upp á ný og þakið
veggina gráum dúk, sem stingur
skemmtilega f stúf við Ijósa
fleti annarra sýningarsala. t
stuttu máli. Skálinn er aftur
orðinn vistlegt húsnæði Um
myndirnar sem einstaklinga og
samfélag segi ég hiklaust. aö
þær eru ein bezta Kjarvals-
kynning, er ég man eftir. Þegar
ég gekk inn I húsið átti ég von
nr"" i—MBik..ii> mww—■
á aö hitta fyrir allmargar net-
myndir, álfariss I klettaveggjum
og fantasíur manns og dýrs.
Sú varð og raunin. En jafnframt
sá ég hrein og klár landslög,
heit eða köld, og óumræðilega
töfrandi brátt fyrir veruleika-
blæinn. Klettavegginn, sem
hangir úti við dyr, met ég á-
kaflega mikils. Hann er nefni-
lega búinn helztu kostum ágæts
málverks. Einhver kann að
krefjast svars við slikri fullyrð-
ingu en ég segi bá fyrirfram og
til bráðabirgða. að þetta er
einkamál. vissa, sem hefur gróið
f hjartanu . . og hvergi nema
bar. Og samt sem áður — er
nokkur ástæða til að þegja yfir
þvl. að I myndinni hefur Jó-
hannesi Kjarval tekizt að láta
vitsmuni og heitar tilfinningar
blandast I nákvæmlega réttum
hlutföllum. Á vestari langveggn-
um standa strákarnir I fjörunní
og ræða um veðrið og afla-
brögðin. Fátt kom mér á óvan
I þeirri fersku og raunsæju
mynd. Aftur á móti kynntist ép
nokkrum nýjum hliðum per
sónuleika hins snjalla málar-
eða gerði mér að minnsta kosf-
betur grein fyrir beim. Verurn
ar, sem byggöu Vífilfell eru
prýðilegt dæmi um eina lar*
blöðin úr Borgarrirðl aora
Morgunroöi hina þriðju og þar
fram eftir götunum. Ég hygg
að reiturinn Kjarvals hafi aldrei
veriö fegurri og fjölbreytilegr
en einmitt nú í Listamannaskál
anum.