Vísir - 20.06.1968, Side 13
Héraðsmót Sjálfstæðis-
flokksins í sumar
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar og Róbert og Rúrik annast skemmtiatriði
• 1 sumar efnir Sjálfstæðis-
flokkurinn til héraðsmóta viös
végar um landið. Er ákveðið að
halda 22 héraösmót á tímabil-
inu 5. júlí til 25. ágúst. Sam-
komur verða með svipuðu sniði
og héraðsmót flokksins undan-
farin sumur, en þá hefur veriö
tekin upp nýbreytni við fram-
kvæmd mótanna, er hefur
mælzt mjög vel fyrir, svo sem
kunnugt er.
Á héraðsmótunum í sumar
munu forustumenn Sjálfstæöis-
flokksins flytja ræður að venju
og auk þess mun sérstakur full-
trúi ungu kynslóöarinnar tala
á hverju móti.
Skemmtiatriði verða fjöl-
breytt. Hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar mun leika og ann-
ast ýmis skemmtiatriði. Hljóm-
syeitina skipa, Ragnar Bjama-
son, Grettir Bjömsson, Ámi
Scheving, Jón Páll Bjarnason og
Ámi Elfar. Söngvarar með
hljómsveitinni cru Erla Trausta
dóttir og Ragnar Bjamason. Þá
munu hinir þekktu leikarar Ró-
bert Arnfinnsson og Rúrik Har-
aldsson flytja þætti og gaman-
mál af ýmsu tagi. Ennfremur
verða spurningaþættir, sem
fram fara með þátttöku gesta
á héraðsmótunum.
Að loknu hverju héraðsmóti
veröur haldinn dansleikur, þar
sem hljómsveit Ragnars Bjama-
sonar leikur fyrir dansi og
koma söngvarar hljómsveitarinn
ar þar að sjálfsögðu fram.
Héraðsmótin verða að jafn-
aði þrjá daga í viku, föstudaga,
laugardaga og sunnudagá. Mót-
in verða á þeim stöðum sem
hér segir:
Búöardal 5. júlí, Arnarstapa
Mýrum, 6. júli, Hellissandi 7.
júlí, Miögarði, Skagaf. 13. júlí,
Víðihlíð, V-Hún. 14. júlí, Bíldu-
dal 19. júlí, Þingeyri 20. júlí,
Bolungarvík 21. júlí, Siglufiröi
26. júlf, Blönduósi 27. júlí, Sæ-
vangi, Strand. 28. júlí, Ólafs-
firði, 2. ágúst, Skjólbrekku,
S-Þing. 3. ágúst, Raufarhöfn, 4.
ágúst, Neskaupstaö, 9. ágúst,
Egiisstööum, 10. ágúst. Fáskrúös
firði, 11. ágúst, Vík, Mýrdal, 17.
ágúst, Flúðum, Ám. 18. ágúst,
Akranesi, 23. ágúst, Hellu, 24.
ágúst, Höfn, Homafirði, 25.
ágúst.
Nánar veröur skýrt frá tilhög
un hvers héraðsmóts áður en
það verður haldið.
BIFREIÐAEIGENDUR!
Höfum fengið eftirtaldar stærðir og gerðir
af Firestone hjólbörðum:
5.2QxlO 4ra strigalaga
5.50x12 4ra strigalaga
6.00x12 6 strigalaga
145SR13 Radial
5.20x13 4ra strigalaga
5.60x13 4ra strigalaga
5.90x13 4ra strigalaga
6.50x13 4ra strigalaga
7.25x13 Sport nylon
5.20x14 4ra strigalaga
5.90x14 4ra strigalaga
7.00x14 Commercial Van
8.25x14 Nylon
Munið að Firestone merkið tryggir ódýra,
sterka og endingargóða hjólbarða.
VÖKULL HF.
Hringbraut 121 (vesturenda), Sími 10600.
Koppalogn
út á land
# Leikför Leikfélags Reykjavík-
ur í ár verður með Koppalogn eft-
ir Jónas Árnason. Verður lagt upp
á fimmtudag og sýnt á um 20 stöð-
um á Vestur- Norður- og Austur-
landi.
Koppalogn Jónasar var frum-
sýnt á jólum í vetur og hefur verið
sýnt við mjög mikla aðsókn í Iðnó
í vetur, samtais 53 sinnum, en sýn-
ingum var hætt í maí, vegna þess
aö einn aðalleikandinn, Steindór
Hjörleifsson, fór þá utan.
Þetta er annað leikrit Jónasar
Árnasonar, sem sýnt er á vegum
Leikfélags Reykjavíkur, en fyrir
níu árum lék félagið Deleríum bú-
bónis eftir þá bræöur Jónas og Jón
Múla Árnasyni. Sú sýning varö,
sem kunnugt er mjög vinsæl, Del-
erfum búbónis var sýnt i Iönó i
tvo vetur og síðan f leikför víöa
um iand, samtals 144 sinnum.
Þátttakendur í þessari leikför
Leikfélagsins með Koppalogn eru
tíu og eru það leikararnir Brynjólf
ur Jóhannesson, Steindór Hjörleifs
son, Jón Sigurbjörnsson, Jón Aðiis,
Sigríður Hagaiín, Margrét Óiafs-
dóttir, Guðmundur Pálsson, Borg-
ar Garöarsson bg Pétur Einarsson
og Ragnar Hólmarsson, sem verður
sýningarstjóri í ferðalaginu. Leik-
stjóri Koppalogns er, sem kunnugt
er, Helgi Skúlason og mun hann
leika með í nokkrum sýningum í
ferðinni. Leik mynd er eftir Stein-
þór Sigurösson.
Fyrsta sýningin verður á Akra-
nesi á fimmtudagskvöld, en síðar
verður sýnt á eftirtöldum stöðum:
Búðardal, Ásbyrgi, Blönduósi,
Siglúfiröi, Ólafsfirði, Akureyri,
Skjólbrekku í Mývatnssveit, Rauf-
arhöfn, Þórshöfn, Vopnafirði, Egils
stööum, Seyðisfirði, Reyöarfirði,
Neskaupstað, Eskifirði, Fáskrúös-
firði og Höfn í Hornafirði, en þar
lýkur leikförinni þriðjudaginn 9.
júli.
Leikfélag Reykjavíkur hefur efnt
til leikfarar náiega árlega nú um
15 ára skeið. Komið hefur tij tals
að fara íieikför meö aðra af sýn-
ingum félagsins í haust, yröi þá
Hedda Gabler sýnd á Akureyri.
Eisenhower —
. m->- 8. siðu.
kynþáttaaðskilnað i skólum.
Þessi dómur gerði hann vin-
sælli meðal hinna hörundsdökku-
íbúa, en þó dró talsvert úr vin-
sældum hans, þegar kynþátta-
óeirðimar urðu í Little Rock
í Arkansas-fylki 1957, þar sem
yfirvöld lögðust gegn því að
hætt yrði kynþáttaaðskilnaði i
æðri skólum. Margir voru þeirr-
ar skoðunar, að Eisenhower
hefði hikað of lengi við að láta
það mál til sfn taka.
Við forsetakosningarnar 1956
fékk hann aftur mikinn meiri-
hluta atkvæða, en hann beið
hálfgerðan ósigur að þvi leyti
að republíkanar misstu mikið
af þingsætum sínum i fulltrúa-
deildinni.
Alvarlegasta vandamáliö, sem
hann átti viö að etja á síöustu
árum sínum sem forseti, var
tæknikapphlaupiö við Sovét-
ríkin, og hinir mörgu sigrar,
sem Sovétmenn unnu á sviði
geimrannsókna. Öll þessi þróun
leiddi til þess, aö Eisenhower
neyddist til að endurskoða af-
stöðu sína til Sovétríkjanna.
Sumarið 1959 bauð hann Krúst-
sjov forsætisráðherra í heim-
sókn til Bandaríkjanna. Sú
heimsókn var fyrsta merkið um
nýtt tímabil í samskiptum
austurs og vesturs. Eisenhow-
er varð þó fyrir vonbrigðum,
þegar fundur æðstu manna I
París fór út um þúfur. Eisen-
hower gaf ekki kost á sér aftur
til forsetakjörs árið 1960.
Eftir að hinn nýi forseti,
John F. Kennedy, hafði unnið
embættiseið sinn um áramótin
1961, dró Eisenhower sig 1 hlé
á búgarði sínum í Gettysburg
i Pennsylvaníu-fylki, og eftir
það tók Ike ekki framar virkan
þátt í stjórnmálum.
Hagstæðustu verð.
Greiðsluskilmálar.
Yemclið verkefni
íslenzkra handa.
FJÖLIÐJAN HF.
Súni 21195
Ægisgötu 7 Kvk.
VÍSIR . Fimmtudagur 20. júnf 1968.