Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1916, Blaðsíða 68
68
Magnús Jónsson
og var hann svo heppinn með þá, að hann fekk þar
flestar þær matjurtir, sem hægt er að rækta á Islandi.
Á þeim 5 árum, sem jeg dvaldi þar, þangað til jeg var
io ára að aldri, óx svo mikið af kúmeni á milli garð-
anna og túngarðsins, að einu sinni var tínt af því 3
trjeskálar fullar, hver um það bil 6 merkur, og voru þó
þá liðin 16—17 ár frá láti lögmanns. Og sje nú þetta
nóg sagt frá Pingeyrastað, og getur um það borið sonur
Björns Porlákssonar frá Hjaltabakka, sem nú er hjer við
verslun.
Um íþróttaskóla.
Eftir
Magnús Jónsson
cand. jur. & polit.
Allskiftar eru skoðanir manna um þegnskyldumálið,
framkvæmd þess, fyrirkomulag og árangur. Sá árangur
einn er vís nú þegar, að málið er skoðað frá ýmsum
hliðum og liggur ekki í þagnargildi. Enn fremur virðist
það verða ljóst fyrir mönnum, að ekki er hlaupið að
því, að koma þessu í lag, og að ekki svo lítinn undir-
búning þarf, áður til fullra framkvæmda komi; óvíst er
meðal annars, að kostur væri á nógu mörgum verkfróð-
um mönnum og kennurum, og það þarf tíma til þess að
fá þá. Það þyrfti með öðrum orðum að kenna eigi all-
fáum mönnum þann verknað og þær íþróttir, sem þeir