Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1916, Blaðsíða 27
Arminius Vambéry
27
hara voru þá aðalstöðvar trúarofstækis og prestaveldis;
þar var mikill sægur lærðra klerka, er þóttust öllum
fremri; reyndu þeir á ýmsan hátt kunnáttu og trúfestu
Vambérys, en tókst þó ekki með spurningum sínum að
koma honum í ógöngur; hann hafði altaf svör á reiðum
höndum og varð aldrei orðfall. Vambéry fræddist um
margt í Buchara. Par var jafnan mikil kaupstefna og
fjöldi þjóða saman kominn; þar sá hann líka nokkra
Gyðinga og Indverja; þeir urðu að hafa sjerstakan bún-
ing og snæri um sig miðja. Samkvæmt boðorðum kór-
ansins eiga þeir vantrúaðir menn, sem leyft er að dvelja
með sanntrúuðum, að hafa sjerstök einkenni, svo Mú-
hamedsmenn ekki í ógáti kasti á þá kveðjunni »Selam
Aleikum« (friður sje með yður), sem að eins sæmir trú-
uðum mönnum. I Buchara var þá mikill þrælamarkaður,
og var þar seldur fjöldi karla og kvenna, en Gyðingar
eru þar aldrei seldir mansali; þeir mundu eigi ganga út,
því þeir eru þar í augum rjetttrúaðra manna svo óhreinir,
að enginn getur haft samneyti við þá; ef Turkmenar ræna
Gyðinga, taka þeir alt frá þeim og skilja þá eftir allsbera,
en frelsi sínu týna þeir ekki.
Eftir 18 daga dvöl í Buchara fór Vambéry til Sam-
arkand og var þar rúma viku. Samarkand er eldgamall
bær, og þar eru margar rústir og minningar fornrar
frægðar. Alexander mikli vann Samarkand 329 f. Kr.,
og lóngu seinna (675 e. Kr.) unnu Arabar bæinn og eft-
ir það varð Samarkand frægur háskólabær og aðalstöð
vísinda-iðkana á Austurlöndum. 1221 unnu Mongólar
bæinn undir forustu Djengiskan’s, og 1404 varð hann
höfuðbær í ríki Tamerlans (Timur lenk, Timur halti).1)
*) Timnr lenk var fæddur 1336 nærri Samarkand; hann var mik-
ill herkonungur af Tatarakyni, ágætur herforingi, en mjög grimmur; dó
1405. Timur lagði undir sig Mið-Asíu, Persíu, Litlu-Asíu, mikinn hluta