Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1916, Blaðsíða 118
8
írjár norskar skáldkonur
útgáfum. »Fru Evas dagbog« er framhald af þeirri sögu.
Frú Hulda hefur ritað tvær hússtjórnarbækur, sem vel er
af látið, og leiðarvísi um skynsamlegan þjóðbúning. Eitt
sumar brá hún sjer til Færeyja og íslands, og er síðan
mörgum kunn á Islandi. Hún ritaði bók um ferð sína.
í Færeyjum fekk hún áhuga á söngdönsum eftir alþýðu-
kvæðum, »færeyskum dönsum*, og hefur með dug unnið
að útbreiðslu slíkra dansa á meðal æskulýðsins í Noregi,
og gefið út rit um þá.
.M
Barbra Ring.
Barbra Ring' er fædd í Dram-
men 4. júlí 1870. Hún hefur ritað
margar skáldsögur, flestar um börn
og ungar stúlkur. Hún ritar fagurt
mál og fjörugt. Einhver hin besta
af hinum fyrstu sögum hennar heitir
»Anna-Karine Corvin* (1907). Síð-
ustu bækur hennar heita »Den kær-
lighed« (.1913), »Jomfruen« (1914),
»För kulden kommer« (1915); sú bók
er lofuð mjög.
Sigrid Undset er fædd 20. maí 1882 í Kallundborg
í Danmörku. Faðir hennar, Ingvald Martin Und-
set, var norðan úr Þrændalögum og nafnfrægur forn-
fræðingur. Hann ferðaðist mjög víða um Norðurálfuna,
en andaðist rjett fertugur að aldri.
Eá er dóttir hans hafði lokið skóla-
námi, fór hún á verslunarskóla, og
vann fyrir sjer við skrifstofustörf 1899
—1909. En 1907 kom út fyrsta bók
hennar, skáldsaga um hjónaband
(»Fru Marta Oulie«), og árið eftir sög-
ur úr Kristjaníu (»Defi lykkelige al-
der«). Pær þóttu svo góðar, að S. 'U
Undset fekk svo mikinn styrk, að Sigrid Undset.