Dagur - 03.07.1999, Side 21
I
Xk^nr
LAUGARDAGUU 3. fÚLÍ 1999- 37
R A Ð j AUGLÝSIR I G A R
MENNTASKÓLINN
VIÐ SUND
Framhaldsskóla-
kennarar
Næsta skólaár er laus til umsóknar kennsla í eftir-
töldum greinum:
Stærðfræði (1-2 stöður)
efnafræði (1/2-1 staða),
tölvufræði (1/2-1 staða),
kvikmyndagerð (1/3 staða),
Umsóknarfrestur ertil 15. júlí 1999. í umsókn skal
greina frá menntun og fyrri störfum. Ráðið er í heil-
ar stöður frá 1. ágúst næstkomandi en í stunda-
kennslu frá 1. september. Starfskjör eru skv. kjara-
samningum ríkisins við stéttarfélög kennara. Ekki
þarf að nota sérstök eyðublöð. Afrit af vottorðum
um nám fylgi.
Umsóknir sendist í Menntaskólann við Sund,
Gnoðarvogi 49, 109 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsing-
ar veita konrektor í síma 568-0926 og Ársæll Más-
son í síma 552-9647.
T I L S Ö L II
Til SÖIu
LÆKJARGATA 6
Akureyrarbær auglýsir til sölu
fasteignina Lækjargötu 6 á Akureyri
Húsið er tveggja hæða timburhús með risi og er á lágum
hlöðnum kjallara, grunnflötur hússins er um 72 m2.
Fasteignin er skemmd eftir bruna og fylgja ógreiddar
brunabætur með í kaupunum. (samræmi við ákvæði laga
verða brunabætur greiddar samfara endurbyggingu
hússins og ber kaupanda að gera samkomulag við Vá-
tryggingafélag íslands hf. um þær.
Akureyrarbær mun gefa út lóðarsamning til samræmis við
nýja stöðu hússins og breytta lóðarstærð þegar kaup-
samningur verður gerður.
(Ekki er gert ráð fyrir flutningi hússins eins og í auglýs-
ingu um sölu hússins í febrúar sl.).
Þá eru gerðar kröfur um að við endurbyggingu hússins
verði fylgt endurbyggingarskilmálum sem Húsfriðunar-
sjóður ríkisins hefur látið semja, en nefndin hefur einnig
látið teikna húsið upp og skulu þær teikningar lagðar til
grundvallar endurbyggingunni. Kaupandi skal hafa náið
samráð við sjóðinn eða fulltrúa hans um endurbygging-
una og framkvæmdina alla. Þá hefur Húsfriðunarsjóður-
inn óskað eftir að vakin verði athygli á að framkvæmdir
við endurbygginguna séu styrkhæfar gagnvart sjóðnum.
Tilboðum í eignina skal skilað á skrifstofu bæjarlögmanns
fyrir lokun miðvikudaginn 21. júli nk.
Nánari upplýsingar veitir Einar Jóhannsson á bygginga-
deild Akureyrarbæjar í síma 462-1000 eða í farsíma 896-
5391.
Askriftarsíminn er
8oo 7080
Daytr
TILB0B ÚSKAST
vAtryggingafélag
ÍSLANDS HF
Vátryggingarfélag íslands hf. á Akureyri, óskar
eftir tilboðum í eftirtaldar bifreiðar, sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum.
1. Nissan Double Cab árg. 1995
2. Nissan Sunny - 1992
3. Toyota Corolla L/B - 1991
4. Fiat Uno 45 - 1991
5. Daihatsu Charade - 1989
6. Daihatsu Charade - 1988
7. Toyota Corolla H/B - 1987
8. Subary Justy J10 - 1986
Bifreiðarnar verða til sýnis í Tjónaskoðunarstöð
VÍS, Furuvöllum 11, mánudaginn 5. júlí nk. kl.
9.00 til 16.00. Tilboðum sé skilað á sama stað
fyrir kl. 16.00 sama dag.
T I L L E I 6 U
Fjarðará til leigu
Tilboð óskast í Fjarðará í Ólafsfirði
Tilboðsfrestur rennur út 20. júlí 1999. Áskilinn er
réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna
öllum. Tilboðum skal skilað til Sveinbjörns
Sveinbjörnssonar, Kálfsá, 625 Ólafsfirði.
Upplýsingar veittar í síma 462-7350 eftir kl. 19.00
eða í tölvupósti: kalfsa@simnet.is
Stjórn veiðifélags Ólafsfjarðarár.
Ý M I S L E 6 T
YLSTROND
Þjónustuhús í Nauthólsvík.
Val á arkitekt/hönnuði.
Garðyrkjustjóri og byggingadeild borgarverkfræðings f.h.
Reykjavíkurborgar óska eftir umsóknum arkitekta/teikni-
stofa um hönnun á þjónustuhúsi í tengslum við Ylströnd í
Nauthólsvík.
Rétt til þátttöku í valinu hafa allir þeir sem rétt hafa til að
skila inn aðaluppdráttum til byggingarnefndar Reykjavíkur.
Valinn verður arkitekt/hönnuður til að hanna þjónustuhús í
Nauthólsvík.
Miðað er við að velja yngri arkitekta/hönnuði, sem hafa
um 3 til 12 ára starfsreynslu.
Við val á þátttakendum verður árangur í samkeppnum
(verðlaun, innkaup) lagður til grundvallar, ásamt færni,
menntun, reynslu, afkastagetu og hæfileikum til samvinnu
og stjórnunar.
Samstarfshópur um Ylströnd í Nauthólsvík mun velja arki-
tekt til að hanna þjónustumiðstöðina.
Gögn liggja frammi hjá byggingadeild borgarverkfræð-
ingsins í Reykjavík, Skúlatúni 2, 5. hæð, 105 Reykjavík,
frá og með fimmtudeginum 1. júlí 1999.
Umsóknum skal skila til byggingadeildar borgarverkfræð-
ingsins í Reykjavík, Skúlatúni 2, 5. hæð, 105 Rekjavík,
eigi síðar en kl. 13:00, þriðjudaginn 12. júlí 1999,
merktum:
VAL
á arkitekt/hönnuði
vegna Þjónustuhúss í Nauthólsvík
Smásagnasamkeppni
Listahátíðar í
Reykjavík
Listáhátíð í Reykjavík efnir til smásagnakeppni á
Listahátíð árið 2000 í tilefni 30 ára afmælis
hátíðarinnar. Smásagnasamkeppnin er
samstarfverkefni Ríkisútvarpsins, Vöku-Helgafells
og Listahátíðar. Verðlaun verða veitt fyrir bestu
smásögurnar og mun Ríkisútvarpið í tilefni af 70
ára afmæli sínu, greiða verðlaunahöfum kr.
200.000 í fyrstu verðlaun, kr. 100.000 í önnur
verðlaun og kr. 50.000 í 3. verðlaun. Bókaforlagið
Vaka-Helgafell mun síðan gefa verðlaunasögurnar
út á bók ásamt 7 sögum úr keppninni til viðbótar
og annast greiðslur höfundarlauna skv. taxta
Rithöfundasambands íslands. Jafnframt verða
smásögurnar 10, sem bestar þykja, lesnar í
útvarpi.
Dómnefnd velur smásögurnar og þar af 3 til
verðlauna.
Skilafrestur til að senda inn smásögur er 15.
október 1999.
Framkvæmdastjórn Listahátíðar í Reykjavík,
Pósthólf 88,121 Reykjavík.
S T Y R K I R
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
Auglýsing um
námsstyrki
Styrkir til háskótanáms í Japan
Hér með framlengist til 9. júlí nk. frestur til að skila inn
umsóknum um styrki er japönsk stjórnvöld bjóða fram
handa íslendingum til rannsóknanáms í háskóla í Japan á
árinu 2000. Ætlast er til að styrkþegar hafi lokið
háskólaprófi og séu yngri en 35 ára miðað við 1. apríl
2000. Þar sem kennsla við japanska háskóla fer fram á
japönsku er til þess ætlast að styrkþegar leggi stund á
japanska tungu a.m.k. um sex mánaða skeið.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í
ráðuneytinu.
Norrænir starfsmenntunarstyrkir
Menntamálaráðuneyti Noregs og Svíþjóðar veita á
námsárinu 1999-2000 nokkra styrki handa íslendingum
til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir
eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf
eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í
iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og
ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á
íslandi. Fjárhæð styrks í Noregi 22.400 n.kr. og í Svíþjóð
um 15.000 s.kr.
Frestur til að skila inn umsóknum framlengist hér með til
9. júlí nk.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í
menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið, 30. júní 1999.
www.mrn.stir.is