Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.02.1997, Qupperneq 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.02.1997, Qupperneq 9
3Dítgur-®mrám Þriðjudagur 25. febrúar 1997 - 9 Klárir í PJOÐMAL samkeppina Frá hádegisverðarfundinum á Fiðlaranum í gær. Birgir Guðmundsson aðstoðarritstjóri skrifar Páll Halldórsson, deilar- stjóri innanlandsflugs Flugleiða og verðandi framkvæmdastjóri hjá Flugfé- lagi íslands, sagði á hádegis- verðarfundi á Fiðlaranum á Ak- ureyri í gær að forsendan fyrir því að Flugfélag íslands næði sér á strik sem trúverðugt félag í innanlandsflugi væri að félag- ið væri rekið sjálfstætt og óháð. Páll lét þessi orð falla á fundi sem Atvinnumálanefnd Akur- eyrar, Iðnþróunarfélag Eyja- íjarðar, Dagur-Tíminn og Rann- sóknarstofnun Háskólans á Ak- ureyri boðuðu til um framtíð innanlandsflugs, en hann var annar tveggja frummælenda. 100 m.kr. viðsnúningur Það kom fram hjá Páli að hann telur þetta sjálfstæði á mark- aðnum m.a. felast í því að hags- munum Flugleiða mætti ekki hygla hjá fyrirtækinu. Páll benti á að árum saman hafi innan- landsflugið verið í rekstrar- vandræðum en á síðasta ári hafi verið farið út á þá braut að aðskilja innanlandsflugið frá annarri starfsemi og reka það með sjálfstæðari hætti en verið hefur. Þetta sagði Páll hafa gef- ist vel eins og sæist best á því að afkoma innanlandsflugsins hafi batnað um 100 milljónir króna á síðasta ári. Páll lýsti því yfir við fundarmenn að sá aukni sveigjanleiki sem næðist fram með aðskilnaði innan- landsflugsins og millilanda- flugsins ætti að tryggja áframhaldandi góða þjónustu þannig að hið nýja fyrirtæki gæti tekist á við þá samkeppni sem kæmi fram þegar flugið verður gefíð frjálst þann 1. júlí í sumar. Hagsmunir neytenda Hinn frummælandinn á fundinum var Ómar Benedikts- son, stjórnarformaður íslands- flugs. Hann virtist ekki eins sannfærður um ágæti hins nýja félags eða sjálfstæði þess gagn- vart Flugleiðum. Benti hann t.d. á að hið nýja félag tæki til starfa 1. júní þó flugfrelsið hæf- ist ekki fyrr en 1. júlí. í millitíð- inni væru menn að nota sérleyfi Flugleiða til að byggja sig upp. Ómar var almennt nokkuð hvass í garð Flugleiða og hins nýja félags. „Einhverjir þurfa að hyggja að hagsmunum neyt- enda,“ sagði hann m.a. og gaf þar með í skyn að neytendurnir væru ekki efstir á blaði sam- keppnisaðilans. Ómar sagði að fslandsflug væri mjög vel undir aukna samkeppni búið. Flug- vélakosturinn og uppbygging öll væri mun sveigjanlegri en hjá samkeppnisaðilum. Auk þess væri launakostnaðm- íslands- flugs hlutfallslegra mun lægri en hvorki flugmenn né deildar- stjórar hjá fyrirtækinu fengju jafn há laun og byðust hjá Flug- leiðum. Þrátt fyrir að það væri ekki aðalatriði fyrir íslandsflug að berjast í samkeppni var greinilegt á Ómari að íslands- flug ætlar að stimpla sig inn á Akureyri þegar l.júh'. Morgunferðir frá Akureyri Á fundinum voru frummælend- ur m.a. spurðir um hvað hið breytta fyrirkomulag muni þýða fyrir neytendur. Fundarmenn viðruðu m.a. áhyggjur af örygg- ismálum, bæði í fluginu og hvað varðar ferðir. Bæði Páll og Ómar sögðu að hvað sem á dyndi myndu menn ekki slaka á öryggiskröfum í fluginu, enda slíkt forsenda þess að viðskipta- vinir hefðu trú á félögunum. Um ferðaöryggið sögðu þeir að það myndi ekki minnka frá því sem nú er. Aðspurðir um hvort þeir myndu taka upp morgun- flug frá Akureyri snemma á morgnana lýsti Páll því yfir að því yrði komið á enda væri það eitt af því sem ynnist við sam- eininguna við Flugfélag Norður- lands, að unnt yrði að hafa áhafnir og vélar yfir nótt á Ak- ureyri. Það varð hins vegar færra um loforð þegar far- gjaldalækkun vegna aukinnar samkeppni bar á góma. Þó taldi Páll einsýnt að talsverðiu- þrýst- ingur myndi koma fram um lækkun á íjölfarnari leiðum. Ómar hins vegar sagði íslands- flug mundi hiklaust lækka far- gjöld ef félagið teldi það skyn- samlegt, t.d. til að auka nýtingu eða íjölga farþegum. Það yrði hins vegar að koma í ljós í fyll- ingu túnans. Útlendingar vaxtarbroddur Frummælendur virtust nokkuð sammála um að vaxtarbroddur í innanlandsflugi lægi að miklu leyti í flutningi erlendra ferða- manna milli Iandshluta og Páll taldi aðspurður líkur á að það yrði litið á það sem sérstakt hagsmunamál innanlandsflugs- ins að halda uppi beinu flugi til útlanda frá landsbyggðinni. í lok fundar voru báðir frum- mælendur spurðir um hvar þeir teldu að samkeppnin yrði mest þegar frelsið brysti á. Virtust íjórir staðir efstir á blaði: Akur- eyri, Vestmannaeyjar, fsafjörð- ur og Egilsstaðir. Báðir virtust klárir í samkeppnina. Hefur bændaforystan misst trúna á landið? Stefán Tryggvason bóndi á Þórisstöð- um, Svalbarðs- strönd skrifar Það er stundum sagt að oft velti lítil þúfa þungu hlassi. Svo getur einnig verið um eitt orð. Fyrir stuttu ályktaði stjórn bændasamtak- anna um fyrirhugað álver í Hvalfirði. Ályktunin virtist að mestu meinlaus viðvörun um að fara skuli með gát ef til bygg- ingar álvers kemur. í lokin sagði þó: „Stjórnin lítur svo á, að framtíðarlausnir í atvinnu- og orkumálum þjóðarinnar séu ekki einvörðungu stóriðja, held- ur verði áherslan að vera á at- vinnurekstur sem fellur betur að þeirri ímynd, sem við höfum skapað okkur um hreint og ómengað land.“ Það er þetta orð, einvörð- ungu, sem mér er með öllu óskiljanlegt hvernig hér fær staðist í ályktun bænda um stóriðju. Setningin væri mjög eðlileg án þessa orðs. Ég átti þess kost að spyrja Sigurgeir Þorgeirsson framkvæmdastjóra BÍ á fundi með eyfirskum bændum hvort ekki væri um prentvillu eða mistök að ræða. Hann staðfesti hins vegar að svo væri ekki heldur væri um ágreining að ræða innan stjórn- arinnar í afstöðu til stóriðju. Sá ágreiningur snýst væntanlega um það að meirihluti stjórnar telur stóriðju vera framtíðar- lausn í atvinnu- og orkumálum þjóðarinnar en minnihlutinn ekki. Ég tek fram að með orð- inu stóriðja er að sjálfsögðu átt við mengandi stóriðju í líkingu við álver. Orðaleikir sem snúast um að kalla sjávarútveg, mat- vælaframleiðslu og aðrar stórar atvinnugreinar stóriðju eru ekkert annað en útúrsnúningur. Verðum að hafa kjark til að velja og hafna Ég hef svo sem ekki heyrt eða séð margt frá stjórn BÍ sem verða mætti landsbyggðinni til eflingar. Reyndar sá ég í síðasta Bændablaði að formaðurinn auglýsti eftir hugmyndum okk- ar í grasrótinni sem kynnu að koma að gagni til að bæta kjör bænda. Sjálfsagt á ég engar töfralausnir fremur en aðrir. Mér finnst þó að ef við töpum trúnni á landið og auðlindir náttúrunnar sjálfrar þá sé fokið í flest skjól. Því er mér svo mik- ið í mun að við áttum okkur á þeim auði sem felst í strjálbýl- inu á íslandi, náttúru þess og mannlífi. Vissulega mun vægi búvöruframleiðslunnar ekki aukast með sama hraða og gerst hefur á þessari öld en eft- ir sem áður verða það gæði landsins sem skapa niðjum okkar lífsviðurværi umfram allt annað. Eftirspurn eftir landinu okk- ar eykst stöðugt. Þar skiptir hins vegar í tvö horn. Annars vegar eykst eftirspurn eftir að nota landið til raforkufram- leiðslu og í framhaldi af því til stóriðju. Hins vegar eykst eftir- spurnin eftir að ferðast um landið, njóta þess og upplifa það. í mínum huga getur ekki verið vafamál hvor leiðin nýtist bændastéttinni betur, já og reyndar allri landsbyggðinni. Þjóðin verður á næstu misser- um að taka afstöðu til þessara tveggja valkosta. Reynist nauð- synlegt að fara milliveginn í þessu uppgjöri þjóðarinnar tel ég að skásti kosturinn sé að stóriðjan verði eingöngu stað- sett á Reykjanesi en að austur á Hellisheiði og uppi í Hvalfirði verði sett upp stór skilti við þjóðveginn þar sem vegfarend- ur á leið útá land verða boðnir VELKOMNIR í NÁTTÚRU ÍS- LANDS og landsbyggðin þannig markaðssett sem hinn hreini og ómengaði hluti landsins. Það er trú mín að slík stefna sé lands- byggðarfólki mun meira virði en stóriðja dreifð um landið. Náttúruleg lífssýn á nýrri öld Nú er það svo að stjórnarmenn BÍ kunna að vera fylgjandi stór- iðju t.d. sem framsóknarmenn, íhaldsmenn eða sveitarstjórnar- menn. En sem stjórnarmenn í samtökum bænda verður að gera þá kröfu til manna að hagsmunir stéttarinnar séu settir í öndvegi. Ég skora því á Búnaðarþingsfulltrúa að taka af skarið og lýsa afdráttarlausum stuðningi við landnýtingarstefnu sem byggir á virðingu fyrir landinu, sjálfbærum gildum og eflingu byggðar. Stuðningur við vistvæna framleiðslu og græna ferðaþjónustu sem megin burð- arása í atvinnuh'fi íslenskra byggða á nýrri öld, í landi sem lýst hefur sig stóriðjufrítt, lýsir slíkri framtíðarsýn. Stuðningur bændaforystunnar við stóriðju- stefnu er á hinn bóginn lífssýn liðinnar tíðar. Vonandi hafa þingfulltrúar kjark til að horfa fram til nýrr- ar aldar og þor til að veðja á nýjar leiðir. Ef ekki er þeim best að þegja. LIFANDI LANDSBYGGÐ - auðlind án álvera -

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.