Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Blaðsíða 40
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 Frjálst, óháð dagblaö ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1983. Revíuleikhús- inu boðinn Bíóbær Revíuleikhúsiö hefur fengiö tilboö um aö fá Bíóbæ í Kópavogi á leigu und- ir starfsemi sína en eins og komið hef- ur fram mun leikhúsið verða aö hverfa úr Hafnarbíói eftir einn mánuð. Eig- andi Bíóbæjar mun reiðubúinn til aö breyta húsinu nú þegar eftir þörfum leikhússins. Þórir Steingrímsson, framkvæmda- stjóri Revíuleikhússins, sagöi í samtali viö DV aö allir möguleikar yröu skoöaðir á næstu vikum. Hins vegar væri það mat manna aö leikhúsið yröi að vera sem næst miöbænum og væri Bíóbær aö því leyti ekki góöur kostur. En húsnæöi undir leikstarfsemi í miö- bænum lægi hins vegar ekki á lausu. „Ætli þaö verði ekki þrautalendingin aö við fáum gráa húsiö viö Austurvöll,” sagöi Þórir. Þess má einnig geta aö Sigmar í Sigtúni hefur sýnt áhuga á aö hýsa Revíuleikhúsið í Sigtúni en þaö mun krefjast mjög kostnaöarsamra breyt- inga. ÓEF ÉKÍÐÁKONU Sextíu og tveggja ára kona varö fyrir bíl á móts viö Suöurlandsbraut 4 laust eftir klukkan sextán í gær. Hún var flutt á slysadeild Borgarspítalans. Konan var á leiö norður yfir Suöur- landsbrautina þegar hún varð fyrir bíl sem ókíausturátt. Konan mun hafa hlotiö einhver meiðsl en DV er ekki kunnugt um hve alvarleg þau eru. Þess má geta aö tuttugu árekstrar uröu í Reykjavík í gær og hefur þeim því fækkaö nokkuö frá því í síðustu viku en þá uröu þeir nær fimmtíu einn daginn. -JGH Byrjað að bora Kennsla eldri nema í tannlæknadeild Háskólans hefst að nýju í dag. Tannlæknastólarnir 23 eru loks orönir nothæfir. Eins og DV skýröi frá varö að kalla til sérfræöing frá Bandaríkjunum þar sem tannlæknastólamir leiddu út rafmagn. Barry Knapp kom til Islands á föstudag og komst aö því aö lagfæra þurfti tengingar í stólunum. Tannlæknastólarnir vorú allir teknir sundur um helgina. Viðgerð lauk á hádegi á sunnudag. Rafmagnseftirlit ríkisins gaf svo stólunumstimpla sína. Framleiðendur stólanna, Dental-Iz í Bandaríkjunum, bera allan kostnaö af viðgerð þeirra. Stólamir vom keyptir til landsins í fýrrasumar. Meö fylgi- búnaöi kostar hver þeirra 500 til 550 þúsundkrónur. -KMU. LOKI Dönskukunnátta er greini- lega óþörf í nágrenni Vallarins. Mezzoforte: Komin Í40. sætið Velgengni hljómsveitarinnar Mezzo- forte í Bretlandi heldur áfram. Á vin- sældalistanum, sem birtist í morgun í Bretlandi, er litla platan meö lögunum Garden Party og Funk Suite No. 1 komin í 40. sæti listans en hún var í 61. sæti í síöustu viku. Stóra platan hreyf- isthægar, fór úr78. sætií 71. sæti. Mezzoforte, sem er stödd í Bretlandi um þessar mundir, var í viötali viö BBC í Lundúnum í gær og veröur því viötali dreift til um 30 BBC stöðva víös vegaríBretlandi. Ljóst er aö mjög spennandi verður aö fylgjast meö framgangi hljómsveit- arinnar í Bretlandi á næstu vikum. I útvarpinu í morgun var þaö hermt aö litla plata hljómsveitarinnar væri komin í 8. sæti á vinsældalista útvarps- stöövarinnarRadioLuxemburg. -SþS Gerðaskóli: Neitaði að kenna bekknum Fjárhagsáætlun Akureyrar loks tilbúin: Notkun gæslu- valla og bóka- safns skattlögð Fjárveiting Akureyrarbæjar til ný- bygginga á árinu lækkar um 26% að verðgildi miðað viö fyrra ár. Þetta kemur fram i frumvarpi aöf járhags- áætlun bæjarins, sem verður tekin til fyrri umræöu í bæjarstjóm í dag, þriðjudag. Samkvæmt áætluninni veröa tekj- ur bæjarsjóös á árinu rúmlega 248 milljón krónur, sem er 61,5% hækk- un, miðað viö áætlun fyrra árs. Gjalda megin fara rúmlega 177 millj- ónir króna í rekstur og rúmlega 38 milljónir króna í gjaldfæröan stofn- kostnað. Þá eru eftir rúmlega 32 milljónirtil eignabreytinga. Til nýbygginga er ætlaö að verja 34,1 milljón króna, sem er 74% af verðgildi þeirrar upphæöar sem var- ið var til þeirra hluta á fy rra ári. Þaö rýrir þessa upphæð enn aö nær þriöj- ungi hennar var ráðstafað til aö halda uppi framkvæmdum á fyrra ári. Aætlað er aö taka ný lán að upp- hæö 31,8 milljónir króna á árinu, sem er nær sama upphæö og fer til af- borgana á eldri lánum. Viö gerö áætlunarinnar var gert ráö fyrir ýmsum aögeröum til tekju- aukningar og sparnaöar. Til dæmis er áætlað aö spara 250 þúsund krónur með því að stytta opnunartíma dag- vista um klukkustund á dag. Þá er gert ráð fyrir að tekin verði upp 10 króna gjaldtaka fyrir hverja heim- sókn á gæsluvelli. Einnig er gert ráö fyrir 300 þúsund króna tekjum af út- lánskortum Amtsbókasafnsins og 200 þúsund króna auknum tekjum af leigu íþróttahúsanna til félaga og einstaklinga. GS—Akurcyri/PÁ Einn bekkur Gerðaskóla á Suöur- nesjum hefur verið án dönskukennslu í um vikutíma. Ástæðan er sú að kenn- arinn hefur neitaö að kenna bekknum vegna samstarfsöröugleika. I gær kvartaði annar bekkur yfir sama kenn- ara en ekki er ljóst hver veröur fram- vinda þessa máls. Að sögn skólastjórans, Jóns Olafsson- ar, hefur mál fyrri bekkjarins veriö leyst og mun kennarinn hefja kennslu ánýídag. Þaö sem deilunum olli var hirting sem kennarinn veitti einum nemenda bekkjarins. Taldi bekkurinn þetta vera aö tilefnislausu og kvartaði viö sveitar- stjóra. Var kallað til foreldrafundar og brá þá svo við að kennarinn þvemeit- aði aö kenna bekknum. Viö svo sat í eina viku en sem fyrr sagöi hefst dönskukennslan á ný í dag. -SþS Vilja flug milli Islands og Grænlands Grænlendingar vilja betri flug- samgöngur milli Islands og Græn- lands. Sendinefnd frá grænlensku heimastjórninni ræddi þessi mál við íslensk stjómvöld og flugrekstrar- aöila í gær. Engar reglulegar flugferöir hafa verið milli Islands og Grænlands síðan SAS felldi niður millilendingu félagsins á flugleið þess milli Kaup- mannahafnar og Grænlands. I viðræöum grænlensku sendinefndar- innar og samgönguráöuneytisins kom fram einlægur vilji beggja aöila til aö beita sér fyrir reglubundnum flugsamgöngum milli landanna. Þrír möguleikar á flugi era einkum taldir koma til greina: Aö flugfélagið Grænlandsflug millilendi á Islandi á flugleiðinni milli Kaupmannahafnar og Grænlands, sem félagiö hyggst byrja flug á næsta haust. Að Flug- leiðir fái leyfi til áætlunarflugs til Grænlands. Og loks að eitt af litlu flugfélögunum íslensku fái aö fljúga reglubundiö til Kulusuk. I grænlensku sendinefndinni voru þeir Jonathan Motzfeldt, Lars Emil Johansen, Moses Olsen og Emil Abelsen. I máli Steingríms Hermannssonar samgönguráöherra og Jonathans Motzfeldt, formanns grænlensku heimastjórnarinnar, á fundi meö blaöamönnum kom fram aö vegna samskipta þjóöanna á sviöi atvinnu- og menningarmála væri slæmt að hafa ekki reglubundið áætlunarflug milli Islands og Grænlands. -KMU. Samgönguráðherra, Steingrímur Hermannsson, boðaði blaðamenn til fundarmeðgrænlenskusendinefndinnii fyrradag. DV-mynd: GVA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.