Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Blaðsíða 23
DV. MÁNUDAGUR 25. APRlL 1983. 23 Ámi Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Alþýðuflokksins á Norðurlandi eystra: „Leiðinlegast stuðnings- manna minna vegna” „Ég verð að segja eins og er að þetta kom mér á óvart. Ég reiknaöi með að ná aftur kjöri því að mér fannst fólk vera mjög jákvætt í okkar garð,” sagði Árni Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Alþýðuflokksins í Norður- landskjördæmi eystra. Munaði 80 at- kvæðum að Árni kæmist afturá þing. „Það er erfitt aö geta sér til um ástæðuna fyrir þessu,” sagði Ámi. „Persónulega held ég að fólk hafi taliö mig örugglega inni og því hugsað sem svo að það gæti þess vegna gef ið öðrum atkvæöi sitt á kjördegi. En ég er mjög þakklátur því fólki sem studdi mig og vann fyrir Alþýöuflokkinn hér í kosn- ingunum. Mér þykir það leiðinlegast þess vegna hvernig f ór. Ég hef enn ekki haft tima til að hugsa um hvað viö taki hjá mér núna. Það kemur í ljós á næstu dögum hvaö ég fer að gera og hvort ég held áfram'í pólitíkinni.” -klp- Ingólfur Guðnason, efsti maður BB4istans á Norðurlandi vestra: „Erfitt að berjast á móti kerfinu” „Viö náöum ekki þeim mörkum sem við höfðum óskað okkur, emm heldur ókátir,” sagði Ingólfur Guönason, efsti maöur á BB-lista (göngumanna) í Norðurlandskjördæmi vestra. „Ég á von á því aö þetta skref sem við tókum verði mönnum ábending um að breyta vinnubrögðum. í sjálfu sér eru þaö ekki mikil vonbrigöi að koma ekki manni aö. Þaö er erfitt aö berjast á móti kerfinu, við vissum þaö fyrir- fram. Ég óska Vestur-Húnvetningum sem börðust á móti mér til hamingju með aö vera lausir viö þingmanninn sinn. Ég vona að framsóknarmenn í Norðurlandi vestra nái aö vinna sigur á þeim erfiðleikum sem við er að etja og beri gæfu til aö koma þessum málum í lag. Um úrslitin á landinu í heild er það aö segja aö stjómar- flokkar hafa aldrei verið vinsælir hér- lendis og því reiknaði maður með því að útkoman yrði ekki mjög góö.” — Hvaö tekur við hjá Ingólfi Guðna- syni? „Ég labba héma niður stigann og held áfram því starfi sem ég hef haft á hendi á tuttugasta og fjóröa ár. Semsé aö vera sparisjóðsstjóri á Hvamms- tanga og mun aö sjálfsögðu starfa eftirleiðis sem hingaö til fyrir ná- granna mína, sýslunga og sveitunga. I mér eru ekki nein sárindi út í einn eöa neinn.” ás STAÐGREIÐSLU AFSLÁTTUR AF SMÁAUGLÝSINGUM FRÁ OG MEÐ 1. APRlL. Ákveðið hefur veríð að veita 10% afslátt afþeim smáauglýsingum ÍDV sem eru staðgreiddar. Það telst staðgreiðsla efauglýsing ergreidd daginn fyrir birtingardag. Verð á einni smáaug/ýsingu af venjulegri stærð, sem erkr. 200," lækkar þannig íkr. 180,- efum staðgreiðslu er að ræða. Smáauglýsingadeild, Þverholti 11 — sími27022. GOODj GEFUR & A mmm KEMSTÞti lEHBRA Goodyear hjólbarðar eru hannaðir með það í huga, að þeir veiti minnsta hugsanlegt snúningsviðnám, sem þýðir öruggt vegagrip, minni bensín eyðslu og betri endingu. FULLKOMIN HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA Affelgum, felgum og jafnvægisstillum 'M Offidal VHeo Products of LA1984 Otympics Q9P Efþú átt 6000 krónur í útborgun — eigum við myndsegu/band fyrírþig. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 Sími 91 35200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.