Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Blaðsíða 45
DV. MANUDAGUR 25. APRIL1983. 45 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Ikörfu með körfuköllum -íHollý Það er ýmislegt sem þeir bralla í Hollywood. Frægastir eru þeir fyrir leikaraskapinn, blessaðir, sem þeir hafa verið með í gegnum árin. Leikaraskapurinn hefur þó tekið á sig nýja mynd ef það orö má nota í þessu tilviki. Það gerðist reyndar fyrir um átta árum. Þá tóku nokkrir Hollwúddar sig til og stofnuöu körfuboltafélag. Og þetta félag er svolítið merkilegt. Enginn í liðinu er nefnilega hærri en 130 cm og sá lægsti er 103 cm á hæö. Liðinu hefur þó gengiö bærilega og þeir fá marga áhorf- endur á leiki sína. Kannski ekki nema von, svona lið er ekki á hverju strái. Svo eru menn aö tala um að körfuboltinn sé bara íþrótt fyrir einhverja slána. Nei, í körfuna með allt slíkt tal, takk. ■ „Heyrðu, hvar er spjaldið eiginlega?" Hrafninn er lentur „Hrafninn er lentur,” gæti verið upplagt nafn á þessa mynd af honum Hrafni Gunnlaugssyni þar sem hann tekur á móti sænsku kvikmynda- gerðarmönnunum Bo Jonsson og Klas Olofsson á Keflavíkurflugvelli fyrir stuttu. Bo er formaður Viking Film í Svíþjóð og Klas er formaður sænsku kvikmyndastofnunarinnar. Bæði þessi fyrirtæki munu fjármagna 30% í myndinni Hrafninn flýgur. Þeir Bo og Klas skrifuðu undir samninga í Islandsferð sinni auk þess sem þeir heimsóttu íslenska kvikmyndagerðarmenn og ræddu við þá. Aö sögn Hrafns Gunnlaugssonar, leikstjóra myndarinnar, hefjast upptökur á myndinni þann 30. maí næstkomandi. Hún fjallar um tvo fóstbræður á landnámsöld, sem búa í Noregi, en flytja þaðan af pólitískum ástæðum. Þeir koma viö á Irlandi á leið sinni til tslands. Framkvæmdastjóri myndarinnar, sem hugsanlega getur oröið „jóla- mynd” á þessu ári, er Edda Andrés- dóttir. Heyrðu ÓH, er það ekki rétt hjá mér að manngildið og náungakærieikurinn sé i hávegum hafður i Framsóknarfiokknum? „Oh, sei, sei, jú, jú." Hvað segirðu þá um að gefa mér eitthvað af þessu tópasi, sem þú varstað narta iáðan?„Svona Vimmi, sem gamlir Aragötumenn ættiþað nú að vera hægt, en er þetta ekki eitthvað sem heitir samtrygging?" Ekki þetta Óli, þú veist vel, að þið eruð með samtryggingu i gömlu fjórflokkunum og i prinsippinu er ég á móti henni. ,, Já, Vimmi. þér finnst tópas greinilega gott, fvona rétt eins og bandalagið þitt. Best að pína þig ekki lengur." Takk, Óli. En láttu bara alis ekki mikið á þessu bera, þá gætu kjósendurnir nefnilega farið að biðja um nokkrar töflur líka og þá fæ ég ekki meira hjá þér. „Svona Vimmi, þetta er allt i lagi. Fáðu þér að minnsta kosti tvö. Eitt fyrir mig og eitt fyrir hann Geir. En mundu bara Vimmi, að það á að sjúga tópasið en ekki gleypa það i einhverju hasti. Það er mitt prinsipp i tópasmálum, Vimmi." Ég segi það satt Óli, þú hefur ekki orðið vinsæll út afengu. En samt samhryggist ég nú ykkur samtryggingarmönnum. DV-myndir: GVA V Það var og, sagði skáldið. Þetta var þá rétt hjá Steina. Gvari sjálfur bara farinn að dotta og bað hér á hörkukosningafundi á Húsavik. Ja, illa fara ráðherrastólarnir með menn. Ég segi nú ekki annað en guð sé oss næstur, ef Gvari ætlar að leiða kosningabaráttuna með þessum Þyrnirósarsvefni. Og hvað segja þeir hjá SÍS og KEA?„Ekki hafa hátt, Gvarisefur?" Nei, ég get ekki horft upp á þetta lengur. -JGH/DV-myndir: Einar Ólason \ ✓

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.